

Erlendur ferðamaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til fimmtudags vegna gruns um kynferðisbrot gegn íslenskri konu.
Engar upplýsingar fást um það hvort hinn grunaði og sú sem kærði séu ferðamenn eða ekki.
Svisslendingar eyða tæplega fimm sinnum meira en meðalferðamaður hér á landi.
Undanfarna mánuði hefur Tómas Boonchang, eigandi veitingastaðarins Ban Thai, ítrekað lent í því að gestir hans stingi af eftir matinn án þess að borga reikninginn.
Ekki ónýtt eftir jólamánuðinn þar sem útgjöld eiga til að vera meiri en í öðrum mánuðum.
Leiðsögumaðurinn Owen Hunt hefur verið fastagestur í Jökulsárlóni frá árinu 1984. Hann segist aldrei hafa séð jafnmikinn ís á svæðinu.
Prentútgáfa Luxury Travel Guide er gefin út í liðlega hálfri milljón eintaka og er lesendahópurinn fyrst og fremst auðugir ferðamenn.
Fjöldi kylfinga á Íslandi samsvarar um tíu prósentum af þjóðinni. Forseti Golfsambandsins segir að klúbbarnir á Íslandi velti samtals tveimur milljörðum á ári. Hann telur unnt að reka íþróttina án opinbers stuðnings.
Kínverskur ferðamaður sem kom að banaslysi við Hólaá um jólin má ekki fara úr landi.
Fyrir tíu þúsund krónur fengu ferðamennirnir rútuferð og leiðsögn á brennu, kaffisopa á kaffihúsi og freyðivínsglas á miðnætti með gott útsýni yfir flugeldasýningu landsmanna.
Tæpar fimm milljónir farþega fóru um völlinn á liðnu ári.
Hjólin eru heldur betur farin að snúast hjá IceWind sem hefur gert samning við bandarískan fjárfesti um fjármögnun fyrirtækisins.
Hér fær ferðafólk ókeypis björgun. Víða erlendis þekkist að tryggingu þurfi til að komast á ákveðin svæði. Sjálfboðaliðar finna fyrir auknu álagi.
Erlendi ferðamaðurinn sem leitað hefur verið að frá því síðdegis fannst látinn á sjöunda tímanum í kvöld.
Dýrð flugeldanna yfir höfuðborginni á miðnætti heillaði þá fjölmörgu erlendu ferðamenn sem staddir voru á Íslandi um áramótin.
Fjöldi verslana og veitingastaða hafa lokað á nýársdegi en þó var eitthvað um að staðir væru opnir.
Elín Hirst vill þannig vernda björgunarsveitir landsins sem bera kostnað af glæfraskap erlendra ferðamanna.
Fimm göngumenn á hálendinu treystu sér ekki til að halda áfram til byggða.
Fjórfalt fleiri hafa látist í umferðinni í ár en í fyrra. Skýringar má meðal annars finna í fjölgun ferðamanna en einnig má rekja fleiri banaslys en áður til andlegra veikinda og hás aldurs ökumanna.
"Mér virðist sem hvergi hafi verið mat að fá."
Erlendur ferðamaður lést þegar tveir bílar skullu saman á brúnni yfir Hólá.
Húnar björguðu ferðalöngum frá Suður-Kóreu á meðan landsmenn flestir gæddu sér á jólasteikinni.
Engar áætlunarferðir eru um íslenska flugvelli í dag.
Jólin eru svo sannarlega hvít í Reykjavík og raunar um allt Ísland.
Tugir leita daglega á slysadeildina í Fossvogi eftir að hafa dottið í hálkunni. Norðmenn ráðleggja ferðamönnum að ganga eins og mörgæs til að hrasa ekki.
Bókunarstaða hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum í desember er góð að sögn ferðamálastjóra. Brennur og flugeldar á gamlárskvöld heilla. Útlit fyrir að aðstæður til norðurljósaskoðunar verði góðar víða um land yfir jólin.
Bláa lónið verður lokað frá 5. janúar til þess 22. sama mánaðar meðan unnið verður að stækkun lónsins. Meðan framkvæmdir standa yfir verður lónið tæmt, í fyrsta sinn frá árinu 1999.
Ögmundur Jónasson skrifaði grein í Fréttablaðið 14. júlí þar sem hann fjallaði um gjaldtöku fyrir bílastæði á fjölsóttum ferðamannastöðum [1]. Tilefnið var að það á að rukka fyrir bílastæði í Þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Mannanna verk standa ekki öll um aldur og ævi. Sum endast vel og lengi og skila hlutverki sínu eins og til var ætlast en önnur þarfnast viðhalds og lagfæringar fljótlega eftir að þau eru tekin í gagnið. Allt fer það eftir því hvernig staðið var að framkvæmdum í upphafi og hvaða hlutverki verkið átti að þjóna þegar það var undirbúið.