Ferðaþjónusta

Farþegar gætu orðið fleiri árið 2024 en fyrir faraldur
Fleiri farþegar gætu farið um Keflavíkurflugvöll árið 2024 en 2019 ef bjartsýnasta spá Isavia gengur eftir. Samkvæmt henni verða þeir tæplega 7,9 milljónir talsins sem er meira en mældist árið fyrir heimsfaraldurinn.

Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi 2021
Haustráðstefna Stjórnvísi fer fram á Grand Hotel milli klukkan níu og ellefu í dag. Þema ráðstefnunnar er Nýtt jafnvægi.

Segja Ísland munu verða útundan með strangar aðgerðir á landamærunum
„Ef löndin í kringum okkur verða með mun léttari aðgerðir getum við ekki ætlast til þess að ná sama árangri. Við höfum alveg séð það skýrt að harðar aðgerðir á landamærum hafa áhrif á ferðavilja og á orðspor Íslands sem áfangastaðar.“

Reikna með töluverðum áhrifum á ferðaþjónustuna
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, fagnar því að Ísland sé ekki lengur á rauðum lista Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna og reiknar með því að breytingarnar muni hafa töluverð áhrif í för með sér. Um sé að ræða stærsta og einn mikilvægasta hóp ferðamanna hér á landi.

Ísland ekki lengur á rauðum lista vestanhafs
Ísland er ekki lengur á rauðum lista Sóttvarnarstofnunar Bandaríkjanna. Það þýðir að stofnunin ræður ekki lengur öllum Bandaríkjamönnum frá því að ferðast til Íslands vegna stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi.

Vill ekki vera kölluð Gugga þótt hún stýri Bjarkalundi
Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit, sem frægt varð fyrir sjónvarpsþættina um Georg Bjarnfreðarson og félaga, hefur verið tekið undir vinnubúðir. Þar má samt enn sjá leikmuni úr Dagvaktinni, þar á meðal morðvopnið sem notað var til að drepa hótelstýruna Guggu.

Lúxushótelið við Hörpu opnar loks í næstu viku og býður opnunartilboð
Nýjasta viðbótin í flóru íslenskra lúxushótela opnar síðar í þessum mánuði þegar The Reykjavík Edition tekur á móti sínum fyrstu gestum. Ítrekaðar tafir hafa orðið á verklokum en upphaflega stóð til að opna nýja fimm stjörnu hótelið við hlið Hörpu árið 2018.

Svona vörðu landsmenn ferðagjöfinni í sumar
Síðasti dagurinn til að nýta ferðagjöf stjórnvalda var fimmtudagurinn síðastliðinn og liggur nú fyrir að sóttar hafi verið 231.331 ferðagjafir fyrir alls 1.157 milljónum króna.

Fall WOW var upphafið að endalokum Hótels Sögu
Formaður Bændasamtakanna segir fall WOW flugfélagsins í mars 2019 hafa markað upphafið að endalokum Hótels Sögu en rekstrarfélag þess var tekið til gjaldþrotaskipta í síðustu viku. Alger óvissa ríki um framtíð húsnæðisins.

Öskurherferðin vann til þrennra Effie-verðlauna
Markaðsherferðin Looks Like You Need To Let It Out, Öskurherferðin svokallaða sem unnin var fyrir áfangastaðinn Ísland, hlaut þrenn gullverðlaun alls við afhendingu Effie verðlaunanna í Norður-Ameríku í gær.

206 þúsund sótt ferðagjöfina sem rennur út á miðnætti
Um 206 þúsund manns hafa nú sótt ferðagjöfina en hún rennur út á miðnætti. Handhafar ferðagjafarinnar eru í kringum 280 þúsund þannig að um 70 þúsund einstaklingar eiga eftir að sækja gjöfina.

Auglýsa eftir hundrað flugliðum og fimmtíu flugmönnum
Flugfélagið PLAY leitar nú að um hundrað flugliðum til starfa fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf. Jafnframt stendur til að auglýsa eftir um fimmtíu flugmönnum í næstu viku.

Tengdir Íslandi þurfa ekki að framvísa neikvæðu Covid-19 prófi
Felld verður niður krafa um að einstaklingar með tengsl við Ísland þurfi að framvísa neikvæðu Covid prófi við komu til landsins. Farþegar í tengiflugi sem ekki fara út fyrir landamærastöð verða einnig undanþegnir framvísun slíks vottorðs. Breytingarnar taka gildi 1. október.

Rekstrarfélag Hótel Sögu gjaldþrota
Félagið Hótel Saga ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Blóð, sviti og tár farið í Skógarböðin sem eru að taka á sig mynd
Framkvæmdir við Skógarböðin við Akureyri er í fullum gangi. Heita vatnið úr Vaðlaheiðargöngunum verður nýtt í laugarnar, sem forsvarsmenn baðstaðarins vona að muni bæta afþreyingarmöguleikana á svæðinu.

Eigandi bílsins skilaði sér sjálfur í Landamannalaugar
Björgunarsveitarfólki sem var kallað út vegna mannlauss bíls nærri Landmannalaugum var snúið við á leiðinni eftir að eigandi bílsins skilaði sér sjálfur í skála þar. Eigandinn var erlendur ferðamaður sem hafði verið að njóta náttúrunnar.

Munu leiða markaðsstarf og stafræna vegferð Kynnisferða
Axel Gunnlaugsson og Atli Björgvinsson ráðnir til Kynnisferða til að leiða markaðsstarf og stafræna vegferð Kynnisferða.

Óttast að vegagerð á Vestfjörðum verði skorin niður eftir kosningar
Straumur ferðamanna liggur enn að fossinum Dynjanda þótt komið sé fram á haust. Dýrafjarðargöng hafa þegar lengt ferðamannatímann á Vestfjörðum úr þremur mánuðum í fimm, að sögn rútubílaeiganda, sem óttast að frekari vegarbætur í fjórðungnum lendi í niðurskurði eftir kosningar.

Hagkerfið að snúa við blaðinu: Spá frekari hækkunum á húsnæði og óvissu með fjölda ferðamanna
Greining Íslandsbanka spáir því að 4,2% hagvöxtur mælist á þessu ári og 3,6% á því næsta. Talið er að um 600 þúsund ferðamenn komi til landsins í ár og verði um þriðjungur af fjöldanum árið 2019.

Róbert setur hótelið og aðrar eignir tengdar ferðaþjónustu á Sigló á sölu
Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, hefur ákveðið að setja allar eignir sínar tengdar ferðaþjónustunni í bænum á sölu.

Villa í ferðagjafaupplýsingum Mælaborðs ferðaþjónustunnar
Meinleg villa er í upplýsingum um ferðagjöfina fyrir árið 2020 en þar segir nú að sóttar ferðagjafir séu 360.792 talsins, þegar hámarksfjöldi „útgefinna“ ferðagjafa er í kringum 280.000.

Styttist í slitlagið á fyrstu kaflana á Dynjandisheiði
Miklar samgöngubætur verða á Vestfjörðum á næstu vikum þegar tveir erfiðir vegarkaflar, á Dynjandisheiði og í botni Arnarfjarðar, verða leystir af hólmi með nýjum slitlagsköflum, samtals yfir tólf kílómetra löngum.

Sjá fyrir endann á ferðabanni til Bandaríkjanna: „Þetta eru auðvitað miklar gleðifréttir“
Utanríkisráðherra segir öllu muna að nú sjái loks fyrir endann á ferðabanni til Bandaríkjanna og Íslendingar geti ferðast þangað á ný. Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að leyfa í nóvember bólusettum farþegum frá Schengen-svæðinu að koma aftur til landsins. Bannið hefur nú verið í gildi í eitt og hálft ár.

Bandaríkin slaka á ferðabanni til landsins
Yfirvöld í Bandaríkjunum munu frá og með nóvember næstkomandi slaka á ferðabanni til landsins sem verið hefur í gildi frá því í mars á síðasta ári. Fullbólusettir íslenskir ferðamenn munu því að öllum líkindum geta ferðast til Bandaríkjanna á ný eftir langt hlé.

Stíflur hafa myndast í göngunum sem tengja Fjallabyggð við umheiminn
Í sumar hafa stíflur myndast í einbreiðu göngunum sem tengja Fjallabyggð við umheiminnn vegna mikillar umferðar. Heimamenn vilja ný göng á dagskrá sem fyrst.

Dregur úr vilja til ferðalaga til Íslands
Dregið hefur úr áhuga á ferðalögum til Íslands eftir að allir farþegar voru skyldaðir í lok júlí til að framvísa neikvæðu PCR eða hraðprófi á brottfararstað, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki. Mest munar um Bandaríkjamenn í fjölgun farþega í sumar sem leið.

Þrjátíu og tveimur bjargað úr rútu sem festist
Fyrr í dag voru björgunarsveitir á Suðurlandi kallaðar út að Akstaðaá á Þórsmerkurleið.

Bein útsending: Ferðaþjónustudaginn 2021
Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir Ferðaþjónustudeginum 2021 í Silfurbergi í Hörpu klukkan 14 í dag. Yfirskrift Ferðaþjónustudagsins er Viðspyrna í ferðaþjónustu – samtal við stjórnmálin.

Hver ferðamaður eyðir þrisvar sinnum meira en áður
Tekjur af erlendum ferðamönnum voru þrefalt hærri á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama tíma í fyrra. Formaður SAF segir afar ánægjulegt að sjá að ferðamenn séu að dvelja lengur hér á landi og eyða meiru en áður.

Oft komnir á fremsta hlunn með að hætta við
Aðstandendur útsýnispallsins á Bolafjalli voru oft komnir á fremsta hlunn með að hætta við byggingu pallsins, að sögn bæjarstjóra Bolungarvíkur. En ástríðan fyrir verkefninu trompaði öll bakslög og nú er pallurinn nánast tilbúinn.