Ferðaþjónusta

Fyrirtæki skella í lás: „Við lifum á skrítnum tímum“
Fyrirtæki tilkynna um lokun. Það á við um fleiri fyrirtæki en tilmæli stjórnvalda ná til.

Ferðaþjónustan fagnar björgunarhring ríkisstjórnarinnar
Jóhannes Þór hjá SAF segir þetta afgerandi efnahagslegar aðgerðir.

Flestum flugferðum aflýst og sárafáir ferðamenn að koma
Sárafáir ferðamenn koma til landsins þessa dagana og segir ferðamálastjóri fjölda þeirra sem fara um Leifsstöð vera allt niður í fjórðung af því sem áður var. Hann vonar að landsmönnum sem ferðast innanlands fjölgi í sumar.


Kynna fjölþættar aðgerðir stjórnvalda í Hörpu á morgun
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, boða til blaðamannafundar í Hörpu á morgun klukkan 13.

Lundabúðum lokað
Nordic Store lokar meirihluta verslana sinna í miðborginni.

Hefði lítið upp á sig að beina spjótum okkar að erlendum ferðamönnum
Sóttvarnalæknir segist telja að smithætta af Íslendingum sem koma hingað til lands sé mun meiri en af erlendum ferðamönnum með tilliti til kórónuveirunnar. Tölur yfir smitaða sýni fram á það.

„Þurfum að meta okkar eigin hagsmuni“
Íslensk stjórnvöld eiga ennþá eftir að taka formlega afstöðu til þess hvernig brugðist verður við ákvörðun leiðtoga Evrópusambandsins um að setja á tímabundið bann við ónauðsynlegum ferðalögum á Schengen-svæðinu.

Center-hótel loka fimm af sjö hótelum
Nú herðir að starfsemi hótela og gistihúsa á landinu.

Mótmæltu fyrirhuguðu ferðabanni
Íslensk stjórnvöld hafa mótmælt hugmyndum innan Evrópusambandsins um ferðabann innan Schengen svæðisins.

Tilmæli ESB byggi ekki á vísindalegum grunni
Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra, segja íslensk stjórnvöld hafa komið á framfæri mótmælum við sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi í gær.

Atvinnuleysi í janúar jafnmikið og rétt eftir hrun
Staðan á vinnumarkaði minnir töluvert á ástandið hér á landi á árinu 2008 þegar fjármálakerfið hrundi til grunna með víðtækum afleiðingum fyrir fyrirtæki og launafólk, að því er fram kemur í nýrri Hagsjá Landsbankans.

Hefur dregið úr flugframboði um 30 prósent á síðustu dögum
Óvissa ríkir um háannatíma sumarsins en Icelandair gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25 prósent miðað við það sem áður hafði verið kynnt.

Ferðaskrifstofur mega vinna saman til að koma fólki heim
Samkeppniseftirlitið hefur veitt ferðaskrifstofum heimild til að vinna saman að því að tryggja að viðskiptavinir þeirra komist til síns heima og takmarka tjón sem hlýst af kórónuveiruheimsfaraldrinum.

Jarðhitaráðstefnunni í Hörpu frestað fram á næsta ár
Ráðstefnan átti að fara fram í Hörpu dagana 27. apríl til 1. maí næstkomandi, þar sem búist var við þrjú þúsund gestum.

Norræna siglir farþegalaus til Íslands
Farþegaferjunni MS Norrænu verður ekki siglt frá Færeyjum til Seyðisfjarðar á mánudag eins og til hafði staðið.

Vonast til þess að frumvarp um frestun gjalda verði að lögum á morgun
Fyrirtækjum verður veittur mánaðarfrestur á helmingi tryggingagjalds og staðgreiðslu opinberra gjalda sem voru á gjalddaga í mars, samkvæmt frumvarpi Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra.

Segir Icelandair vel undirbúið miðað við önnur flugfélög fyrir áföll af þessum toga
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að ferðabann Bandaríkjastjórnar komi til með að verða talsvert högg fyrir íslenska þjóðarbúið.

Vonar að skilaboð Bandaríkjastjórnar berist ekki víðar
Ferðabann Bandaríkjastjórnar er gríðarlegt reiðarslag fyrir íslenska ferðaþjónustu og efnahagslífið allt að mati framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar

Forstjóri Vinnumálastofnunar: „Þetta er algerlega óþekkt ástand“
Unnur Sverrisdóttir vonast til hægt verði að milda höggið á atvinnulífið vegna kórónuveirunnar með sérstökum aðgerðum sem ætlað er að hvetja atvinnurekendur til að lækka starfshlutfall, í stað þess að grípa til uppsagna.

„Forgangsmál að láta þennan tíma líða og að skaðinn verði sem minnstur“
Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri, segir að ferðabann til Evrópu sem Donald Trump, Bandaríkjaforseti, setti á í nótt og gildir næstu fjórar vikur sé högg fyrir ferðaþjónustuna í landinu.

Hátt í þriðjungur hótelbókanna hverfur vegna ákvörðunar Trump
Formaður félags fyrirtækja í hótelrekstri segir stjórnvöld verða að bregðast hratt við.

Framkvæmdastjóri Gray Line segir uppsagnir ekki vera fyrsta kost
Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri Gray Line, segist hafa miklar áhyggjur af ástandinu í ferðaþjónustunni sem skapast hefur vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og þeirra aðgerða sem hefur þurft að grípa til.

Icelandair fækkar enn ferðum í mars og apríl
Tímabundið ferðabann bandarískra stjórnvalda til og frá Evrópu mun hafa veruleg áhrif á flugáætlun Icelandair á tímabilinu.

Ferðabannið gríðarlegt reiðarslag fyrir þjóðina
Ferðabann Bandaríkjaforseta er gríðarlegt reiðarslag að mati fjármálaráðherra, sem segist hafa snöggreiðst þegar hann heyrði af ákvörðun Donald Trump í nótt.

Ferðabann Trump mun bíta Íslendinga
Íslendingar mega vænta umtalsverðra efnahagslegra áhrif af ferðabanni Bandaríkjaforseta

Vísindavika norðurslóða á Akureyri flutt yfir í netheima vegna veirunnar
Greint var frá því í vor að von væri á um 1.200 gestum til Akureyrar vegna Vísindavikunnar sem haldin er 27. mars til 2. apríl næstkomandi.

Uppsagnir fyrirhugaðar hjá Icelandair vegna kórónuveirunnar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group segir útlit fyrir að félagið þurfi að grípa til uppsagna vegna ástandsins sem nú ríkir á flugmarkaði.

Ekki að fara á límingunum þó krónan sé að veikjast
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, telur Seðlabankann ekkert sérstaklega mótfallinn veikingu krónunnar.

Bjargaði lífi manns kviknakinn um miðja nótt í brunagaddi
Þráinn Ársælsson fann ekki fyrir kulda þegar hann náði að losa mann sem var nær dauða undan fjallatrukki.