Fréttir
313 314 315 316 317 318 319 320 321 … 334 ›
Á þriðja tug látin eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Tuttugu og þrír hið minnsta eru látnir eftir að sprenging varð í flugeldaverksmiðju í Taílandi. Erlent 17.1.2024 14:48
Prinsessan af Wales lagðist undir hnífinn Kate Middleton, prinsessa af Wales, fór í aðgerð á maga í einkasjúkrahúsi í London og verður á spítala næstu tíu til fjórtán daga. Erlent 17.1.2024 14:40
Handboltatuðarar verða sér til skammar Mikill ofsi greip um sig á samfélagsmiðlum eftir ljótt tap Íslands gegn Ungverjum á EM í gærkvöldi. En handboltatuðararnir eru nú óðum að jafna sig eftir að hafa fengið útrás á samfélagsmiðlum. Innlent 17.1.2024 14:23
Seldu barni nikótínpúða en sleppa með skrekkinn Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi úrskurð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að leggja 200 þúsund króna stjórnvaldssekt á Svens. Starfsmaður Svens var ekki talinn bera ábyrgð á því að 16 ára piltur nýtti sér fölsuð skilríki til þess að kaupa nikótínpúða. Innlent 17.1.2024 14:06
Stjórnvöld hafi dregið lappirnar Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, telur að stjórnvöld hefðu átt að vera fyrr tilbúin með að sú sviðsmynd kæmi fram að ekki væri hægt að búa í Grindavík næstu mánuði eða jafnvel ár. Það þurfi að bregðast hratt við til að koma í veg fyrir enn meira tjón hjá Grindvíkingum. Innlent 17.1.2024 14:03
Vill þjálla nafn á hreppinn Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að kjósa um hvort breyta eigi nafni sveitarfélagsins, og hvert nýtt nafn ætti að vera. Sveitarstjóri telur að nýrra nafn verði að vera þjálla. Innlent 17.1.2024 13:40
Umsókn palestínsku drengjanna tekin til efnismeðferðar Palestínsku drengirnir og frændurnir Sameer Omran 12 ára og Yazan Kawave 14 ára hafa nú fengið það staðfest að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi verður tekin til efnislegrar meðferðar. Sú meðferð getur tekið marga mánuði. Innlent 17.1.2024 13:10
Pallborðið: Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Viðvarandi verðbólga og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppa, stöðugar jarðhræringar, óvinsæl ríkisstjórn, forsetakosningar framundan og hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Heimir Már Pétursson fær leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Innlent 17.1.2024 12:34
Slysið við Hvalfjarðarveg var banaslys Einn lést í þriggja bíla árekstri við gatnamót Hvalfjarðarvegar og Hringvegar í gærmorgun. Innlent 17.1.2024 12:21
Heildarfasteignamat í Grindavík um 107 milljarðar Hávær krafa er um að ríkissjóður bæti Grindvíkingum tjón sem íbúar í bænum hafa orðið fyrir vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Ýmsar tölur hafa verið nefndar um hvert verðmæti þeirra sé. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur nú tekið saman heildarfasteignamat bæjarins sem nemur um 107 milljörðum króna. Innlent 17.1.2024 11:51
Gefa sér ekki tíma til að óttast Pípulagningameistari sem fer fyrir vinnu í Grindavíkurbæ segir að unnið sé í kappi við tímann við að koma vatni og rafmagni á bæinn. Vinnumenn gefi sér ekki tíma til þess að óttast um eigið öryggi innan bæjarins en fari auðvitað varlega. Innlent 17.1.2024 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið í Grindavík en sú krafa verður æ háværari að ríkið stígi inn og kaupi eignir Grindvíkinga. Innlent 17.1.2024 11:38
Fyrsta stig verðmætabjörgunar í gangi og næstu til skoðunar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lýsir aðgerðum til að tryggja hita á húsum í Grindavíkurbæ sem stórri verðmætabjörgun. Áfram verður unnið að því í dag auk þess sem sérfræðingahópur á vegum almannavarna er að kortleggja sprungur og hættur í bænum. Innlent 17.1.2024 11:14
Hin látnu voru pólskir ferðamenn Þau tvö sem létust í bílslysi á þjóðveginum við Skaftafell síðastliðinn föstudag voru pólskir ferðamenn. Innlent 17.1.2024 10:57
Meira en 90 prósent barnaníðsefnis tekið upp af börnunum sjálfum Meira en 90 prósent alls barnaníðsefnis sem finna má á internetinu er tekið af börnunum sjálfum. Börnin, sem eru neydd til að taka upp efnið, eru allt niður í þriggja ára gömul. Erlent 17.1.2024 10:56
Gular viðvaranir vegna snjókomu vestanlands á morgun Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir vestanvert landið. Viðvaranirnar verða í gildi frá miðnætti fram á miðjan dag á morgun, þar á meðal á höfuðborgarsvæðinu. Veður 17.1.2024 10:27
Færeyingar safna fyrir Grindvíkinga Rauði krossinn í Færeyjum hefur hafið söfnun fyrir þá sem hafa orðið fyrir áhrifum af eldgosinu í Grindavík. Upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi segir þau hafa haft samband og viljað aðstoða. Söfnun íslenska Rauða krossins gengur mjög vel. Innlent 17.1.2024 10:26
Byggð verið skipulögð án þess að huga að náttúruvá Eldfjallafræðingur segir ekki hafa verið hugað nógu vel að náttúruvá þegar byggð og innviðir hafi verið byggð upp á undanförnum áratugum. Huga þurfi að vörnum áður en til neyðarástands komi. Innlent 17.1.2024 09:59
Telur ríkið eiga að kaupa allt íbúðarhúsnæði í Grindavík Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ríkið eigi að kaupa Grindvíkinga út og tekur þannig undir hugmyndir Vilhjálms Árnasonar, þingmanns sama flokks og íbúa í Grindavík. Þetta segir Óli Björn í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Innlent 17.1.2024 09:03
Vill að ríkið kaupi Grindvíkinga út: Fólk „vill bara komast í burtu“ Hilmar Gunnarsson, íbúi í Grindavík, segir það upplifun flestra sem hann hefur talað við frá Grindavík að fáum spurningum hafi verið svarað á íbúafundinum í gær. Hann upplifði gremju gagnvart ríkisstjórninni og að fólk upplifði að lítið hefði gerst síðustu tvo mánuði. Innlent 17.1.2024 08:45
Gefur óvænt út bók á fjórða degi á konungsstól Á fjórða degi sínum sem Danakonungur hefur Friðrik tíundi óvænt gefið út bók þar sem hann deilir með sér hugleiðingum um líf sitt og tilveru auk þess að líta í baksýnisspegilinn. Erlent 17.1.2024 08:43
Myrti tvífara sinn til að flýja þrúgandi fjölskyldu Réttarhöld yfir 24 ára gamalli þýsk-írakskri konu og 25 ára gömlum manni frá Kósovó hófust í Þýskalandi í gær. Parið er ákært fyrir hafa myrt 23 ára gamla konu í ágúst 2022. Hin ákærða kona er sögð hafa viljað sviðsetja dauða sinn í von um að flýja þrúgandi fjölskylduaðstæður. Erlent 17.1.2024 08:36
Landris heldur áfram við Svartsengi Landris heldur áfram við Svartsengi og kvika safnast enn upp. Tæplega sextíu jarðskjálftar hafa mælst í kvikuganginum frá miðnætti. Staðan er þó meira og minna óbreytt. Innlent 17.1.2024 07:47
Milljarðamæringar vilja borga meiri skatta Rúmlega 250 milljarða- og milljónamæringar í dollurum talið hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þess er krafist að ríkisstjórnir heims hækki skattana þeirra. Erlent 17.1.2024 07:34
Konan fannst heil á húfi Eldri kona sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í morgun er fundin heil á húfi. Innlent 17.1.2024 07:23
Fer að snjóa vestast og frost á landinu að tólf stigum Veðurstofan spáir hægt minnkandi norðanátt í dag, en síðdegis verður þó enn strekkingsvindur suðaustan- og austantil á landinu. Veður 17.1.2024 07:21
Ákærður fyrir að brjótast inn í sumarhús og brenna það til kaldra kola Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir húsbrot og stórfelld eignaspjöll með því að brjótast inn í sumarhús og kveikja í því, með þeim afleiðingum að húsið brann til grunna. Innlent 17.1.2024 07:01
„Mér varð hreinlega óglatt" „Þetta er alrangt. Og það get ég sagt það með góðri samvisku,“ segir Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður. Innlent 17.1.2024 07:01
Tvö börn sögð hafa látið lífið í árás Íran á Pakistan Pakistanar segja að tvö börn hafi látið lífið og að þrír séu særðir eftir að Íranir gerðu loftárásir innan landamæra nágrannaríkisins í gær. Erlent 17.1.2024 06:55
FBI rannsakar kynferðisglæpi tískumógúls Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur nú til rannsóknar meint kynferðisbrot tískumógúlsins og fyrrverandi framkvæmdastjóra Abercrombie & Fitch. Rannsókninni var hrundið af stað í kjölfar fréttaumfjöllunar breska ríkisútvarpsins um málið. Erlent 17.1.2024 06:28