
Innlent

Kemur til greina að fara dómstólaleiðina
Ríkissáttasemjari segir skref í rétta átt hafa verið tekin í kjaradeilu kennara og ríkis og sveitarfélaga um helgina en samninganefndir hittast á morgun í fyrsta sinn á formlegum fundi í meira en hálfan mánuð. Kennarar við Menntaskólann í Reykjavík bættust í morgun í hóp þeirra kennara sem lagt hafa niður störf. Sveitafélögin íhuga að leita til dómstóla.

Fjárlög samþykkt en VG sat hjá
Fjárlagafrumvarp ársins 2025 var samþykkt á Alþingi í dag með 26 atkvæðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Þingflokkur Vinstri grænna sat hjá við atkvæðagreiðsluna líkt og aðrir flokkar stjórnarandstöðunnar. Þannig sátu 24 þingmenn hjá við atkvæðagreiðsluna en tólf þingmenn voru fjarverandi.

Sækir um leyfi til hrefnuveiða vegna ofgnóttar fyrir vestan
Þrjú fyrirtæki hafa sótt um halveiðileyfi til viðbótar við Hval hf. Öll þrjú sóttu um leyfi til veiða á hrefnu en ekki liggur fyrir hvenær umsóknirnar verða afgreiddar. Eigandi eins fyrirtækisins segir sjómenn á Vestfjörðum hafa orðið vara við breytingar á lífríkinu vegna ofgnóttar af hrefnu.

Alþingi að ljúka og bjartsýnistónn í deiluaðilum í Karphúsinu
Kennaraverkföll standa enn og í morgun hófst verkfall í Menntaskólanum í Reykjavík. Fundur í deilunni hefur verið boðaður á morgun.

Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa
Íslenskur öryrki sem er búsettur í Brasilíu furðar sig á því að þurfa að greiða 6.500 krónur fyrir að kjósa utan kjörfundar í komandi alþingiskosningum.

Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman
Bílar sem lentu í árekstri í gærkvöldi á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastalundi skullu saman úr gagnstæðri átt.

Tóku skref í rétta átt um helgina
Samninganefndir kennara og ríkis og sveitarfélaga ætla að funda á morgun í fyrsta sinn í meira en hálfan mánuð. Þetta staðfestir ríkissáttasemjari við fréttastofu.

Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings
Vinur læknis, sem stunginn var í Lundi í Kópavogi í sumar, er með réttarstöðu sakbornings vegna áfloga milli hans og árásarmannsins. Eftir að árásarmaðurinn flúði vettvang stökk vinurinn upp á rafhlaupahjól árásarmannsins og elti hann uppi.

Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega
Verkfall kennara við Menntaskólann í Reykjavík hófst nú á miðnætti og mun það standa fram til 20. desember ef ekki verður samið í millitíðinni. Kennarar og leiðbeinendur sem eru í KÍ leggja niður störf, sem og náms- og starfsráðgjafar.

Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar
Alls hafa fjögur fyrirtæki sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar en samkvæmt svörum frá matvælaráðuneytinu liggur ekki fyrir hvenær afgreiðslu umsókna lýkur.

Fengu ekki inni hjá borginni og gistu í fangageymslum
Tveir heimilislausir menn gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, eftir að tilkynningar bárust um að þeir væru þar sem þeir voru óvelkomnir.

Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð
Formaður garðyrkjudeildar Bændasamtakanna segir garðyrkjubændur standa frammi fyrir hátt í 25 prósenta hækkun í verði á raforku sem fæstir bændur geti staðið undir. Hann segist ekki vilja að talað sé um íslenskan garðyrkju í þátíð og segi öryggisleysi almennings í orkumálum óboðlegt.

Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti
Brunavarnir Suðurnesja sinntu krefjandi verkefni í nótt, þegar eldur kom upp í eggjabúi á Vatnsleysuströnd. Baráttan við eldinn fór fram í sex stiga frosti og stóð yfir í margar klukkustundir. Mikil áskorun var að tryggja að eldur breiddist ekki yfir í fleiri byggingar.

Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn
Jón Guðmundsson, fasteignasali og eigandi Fasteignamarkaðsins, er látinn 82 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Jóhönnu Hreinsdóttur og fjögur börn.

Alvarlegt bílslys við Þrastalund og þrír fluttir með þyrlunni
Þrír voru fluttir á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að tveir bílar skullu saman úr gagnstæðri átt við Þrastalund. Alls voru sex í bílunum tveimur.

Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastalund
Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna umferðaslyss við Þrastalund þegar um korter vantaði í átta í kvöld. Óljóst er um fjölda bíla.

Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar
Brynjar Níelsson tekur ekki sæti í stjórn Mannréttindastofnunar eins og staðið hafði til. Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins tekur sætið þess í stað og vera formaður hennar.

Segir verkföll ekki mismuna börnum
Formaður Kennarsambandsins segir félagið ekki mismuna börnum með verkföllum sínum sem hafa nú staðið yfir í þrjár vikur í völdum grunn-, og tónlistarskólum en ótímabundin verkföll standa yfir í fjórum leikskólum. Næsti formlegi sáttafundur verður haldinn á þriðjudaginn.

Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana
Foreldrar sem eiga börn í skólum í verkfalli upplifa mikið vonleysi. Fjögurra barna móðir segist neyðast til að nota sumarfrísdagana sína og önnur þurfti að hætta í vinnunni því hún hefur ekki getað mætt í rúmar tvær vikur.

Formaður Kennarasambandsins svarar gagnrýni
Foreldrar sem eiga börn í skólum í verkfalli upplifa mikið vonleysi. Fjögurra barna móðir segist neyðast til að nota sumarfrísdagana sína og önnur þurfti að hætta í vinnunni því hún hefur ekki getað mætt í rúmar tvær vikur. Við ræðum við formann Kennarasambandsins í beinni útsendingu í myndveri.

„Hvers konar hrokasvar er þetta?“
„Hvers konar hrokasvar er þetta? Ég er að tala um að fólk vill eignast börn og þín stjórnvöld hafa verið að gera það sífellt flóknara og erfiðara,“ sagði Snorri Másson, frambjóðandi Miðflokksins, við Ásmund Einar Daðason barnamálaráðherra eftir að Ásmundur spurði hvort innflytjendur væru ekki svarið við lækkandi fæðingartíðni Íslendinga.

Bein útsending: Frambjóðendur ræða listir og menningu
Bandalag íslenskra listamanna og Listaháskóli Íslands boða til pallborðsumræðu um listir og menningu þar sem fundargestum gefst tækifæri að ræða við frambjóðendur um stefnumál þeirra í málaflokknum.

Vinstri græn kynna áherslumál sín fyrir kosningarnar
Vinstrihreyfingin - grænt framboð kynnir helstu áherslumál sín fyrir komandi kosningar klukkan 12:30 í dag á kosningaskrifstofunni Suðurlandsbraut 10.

„Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“
Fulltrúi nemenda í Fjölbrautarskóla Suðurlands segir þá ósátta við útfærslu Kennarasambandsins á verkfalli sinna félagsmanna. Skólinn hefur verið eini framhaldsskólinn í verkfalli hingað til. Nemendur sjá ekki fyrir sér að komast í skólann fyrir áramót.

Nýr prófastur ætlar ekki að hætta með kindurnar sínar
Það stendur mikið til í Hrunakirkju í dag skammt frá Flúðum en þá fer fram innsetningarmessa þar, sem séra Óskar Hafsteinn Óskarsson verður settur inn í embætti prófast í Suðurprófastsdæmi af biskupi Íslands. Biskup segist hlakka mikið til fyrir innsetningunni enda ekki sett prófast í embætti áður.

Fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust
Framkvæmdastjóri eggjabús á Suðurnesjum segir bruna sem kom upp í búinu í nótt mikið áfall. Um fimmtán prósent allra hænsna á búinu drápust. Umfang tjónsins liggur ekki fyrir.

Áfallið mikið en „svo er bara að bretta upp ermar“
Framkvæmdastjóri Nesbús segir eldsvoða sem kviknaði í varphúsi eggjabúsins í nótt vera mikið áfall. Erfitt sé að meta tjónið en bygging á sambærilegu húsi kosti um 150 milljónir. Betur fór þó en á horfðist þökk sé brunavörnum og starfi slökkviliðs.

Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi
Áhrif tryggingagjalds á smærri fyrirtæki, kosningabaráttan fyrir alþingiskosningarnar og orkuskipti eru á meðal efnis umræðuþáttarins Sprengisands sem hefst á Bylgjunni rétt eftir klukkan 10:00.

Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu
Nokkuð var um pústra í miðbæ Reykjavíkur í nótt og segir lögregla að töluverður hiti hafi verið í fólki. Sex gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Hafnarfirði.

Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga
Um sex þúsund hænsni drápust í eldsvoða á eggjabúi Nesbús við Voga á Vatnsleysuströnd í nótt. Slökkvilið glímdi við eldinn í þaki eins vinnslurýma búsins langt fram á morgun.