
Handbolti

„Þetta verður persónulegra“
„Þessi stemning sem að hefur oft verið í liðinu kemur bara frá hjartanu okkar. Þetta kemur innan frá – að berjast fyrir land og þjóð, og ég hef engar áhyggjur af því. Við erum alltaf tilbúnir þegar við förum í landsliðstreyjuna. Við verðum stemmdir, það vantar ekki.“

Segir að Ýmir sé að komast í hóp bestu varnarmanna heims
Ýmir Örn Gíslason er að komast í hóp bestu varnarmanna heims. Þetta segir Einar Andri Einarsson.

Grænlendingar telja sig svikna: „Nú er þetta meira en hlægilegt“
Grænlendingar furða sig á því að þeim skuli enn vera haldið utan HM í handbolta í Egyptalandi, þrátt fyrir að Bandaríkin hafi þurft að hætta við þátttöku.

„Hann kveikir í öllu“
Innkoma línumannsins Elliða Snæs Viðarssonar vakti athygli á Ásvöllum í hans fyrsta mótsleik fyrir íslenska landsliðið, í stórsigrinum gegn Portúgal í undankeppni EM. Elliði er í 20 manna landsliðshópnum sem mættur er á HM í Egyptalandi þar sem Ísland hefur leik á morgun.

Erlingur ætti að pakka í tösku
Það gæti vel farið svo að Ísland muni eiga flesta þjálfara á HM í handbolta sem hefst í Egyptalandi í kvöld. Erlingur Richardsson gæti orðið sá fimmti sem þjálfari hollenska landsliðsins.

Sviss tekur sæti Bandaríkjanna sem hafa hætt við þátttöku á HM
Bandaríska landsliðið hefur ákveðið að draga sig úr keppni á HM í handbolta sem hefst í Egyptalandi á morgun. Sviss kemur í stað þeirra.

Guðmundur telur það best að taka eitt skref í einu
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins í handbolta, fór sparlega í yfirlýsingarnar fyrir HM í Egyptalandi sem hefst á morgun.

Ýmir og Elvar Örn eru bjartsýnir á gott gengi í Egyptalandi
Ymir Örn Gíslason og Elvar Örn Jónsson voru nokkuð brattir í viðtali fyrir brottför íslenska landsliðsins til Egyptalands þar sem HM í handbolta fer fram. Báðir hafa mikla trú á íslenska liðinu og telja að Ísland geti staðið með sóma.

Norður-Makedónía tekur sæti Tékklands á HM í handbolta
Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, staðfesti nú rétt í þessu að Norður-Makedónía myndi taka sæti Tékklands á HM í handbolta eftir að síðarnefnda landið þurfti að draga sig úr keppni.

Tékkar ekki með á HM vegna hópsmits
Tékkland hefur dregið sig úr keppni á heimsmeistaramótinu í handbolta karla í Egyptalandi vegna kórónuveirusmita í herbúðum liðsins.

„Geislar af sjálfstrausti og klárt að hann byrjar fyrsta leik á HM“
Ágúst Jóhannsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, segir að nafni sinn, Elí Björgvinsson, muni byrja í marki Íslands gegn Portúgal í fyrsta leik liðsins á HM í Egyptalandi á fimmtudaginn.

Hópsmit hjá andstæðingum Alfreðs á HM
Sjö leikmenn karlalandsliðs Grænhöfðaeyja í handbolta eru með kórónuveiruna. Liðið er á leið á HM í Egyptalandi þar sem það er í riðli með strákunum hans Alfreðs Gíslasonar í þýska landsliðinu.

„Hann er fyrirbæri, þessi gaur“
„Fyrir mér á hann að geta orðið einn sá allra besti,“ segir Einar Andri Einarsson um Elvar Örn Jónsson sem sérfræðingar Seinni bylgjunnar telja að verði mikilvægasti leikmaður Íslands á HM í Egyptalandi.

Dagur Sigurðsson mætti með liðið sitt langt á undan öllum öðrum
Strákarnir okkar eru komnir til Egyptalands en það eru bara rétt rúmir tveir sólarhringar í fyrsta leik íslenska liðsins á HM í handbolta.

Átján smitaðir í bandaríska handboltalandsliðinu og aðeins tólf fara á HM
Hvorki fleiri né færri en átján leikmenn bandaríska karlalandsliðsins í handbolta eru með kórónuveiruna. Aðeins tólf leikmenn fara á HM í Egyptalandi en fyrsti leikur Bandaríkjanna á mótinu er gegn Austurríki á fimmtudaginn.

(Líf)línumaðurinn frá Eyjum
Elliði Snær Viðarsson lék sinn fyrsta keppnisleik með íslenska handboltalandsliðinu þegar það vann níu marka sigur á Portúgal, 32-23, í undankeppni EM í fyrradag.

Flugu með mótherjunum á HM og fóru beint í próf
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er mætt á heimsmeistaramótið í Egyptalandi þar sem það spilar sinn fyrsta leik á fimmtudagskvöld gegn Portúgal.

Segir HM í Egyptalandi afar ófyrirsjáanlegt
Góðar líkur eru á því að Ísland og Noregur mætist í milliriðli á HM í handbolta í Egyptalandi. Norðmenn eru líklegir til að vinna til verðlauna eftir að hafa leikið til úrslita á síðustu tveimur heimsmeistaramótum. Bjarte Myrhol segir ekkert lið afgerandi líklegt til að vinna titilinn að þessu sinni.

Ekki gerst hjá Frökkum í tuttugu og fimm ár
Franska landsliðið í handbolta kemur ekki á fljúgandi siglingu inn á HM í Egyptalandi en úrslit þeirra hefur ekki verið upp á marga fiska.

Thea Imani á leið í Val
Thea Imani Sturludóttir er á leið í Val og mun leika með liðinu í Olís deild kvenna. Þetta herma heimildir íþróttadeildar.

Alfreð vill að málið gleymist en Wolff hélt áfram að skjóta á þríeykið
Umræðan um þýska landsliðið í handbolta hefur snúist um eitthvað annað en þjálfarinn Alfreð Gíslason hefði kosið, nú þegar heimsmeistaramótið fer að hefjast í Egyptalandi. Markvörðurinn Andreas Wolff ber ábyrgð á því.

Sigurinn glæsti í gær gæti losað strákana okkar við Frakka eða Dani
Með hinum frábæra 32-23 sigri á Portúgal í gær fór Ísland langt með að tryggja sér sæti á EM í handbolta í janúar að ári liðnu. Sigurinn gefur liðinu líka betri möguleika á mótinu sjálfu.

Þrjátíu stiga hitasveifla hjá strákunum okkar
Íslenska karlalandsliðið í handbolta ferðast í dag til Egyptalands þar sem strákarnir okkar munu eyða næstu vikum á heimsmeistaramótinu í handbolta.

Bjarka vantaði ekki mikið upp á að fá tíu fyrir sóknarleikinn sinn í gær
Bjarki Már Elísson fékk hæstu einkunnina hjá HB Statz af íslensku strákunum í sigrinum á Portúgal í undankeppni EM í gær.

Þakklátur fjölskyldunni fyrir stuðninginn
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson fer með íslenska landsliðinu til Egyptalands í dag á heimsmeistaramótið í handbolta eftir að hafa misst af útileiknum gegn Portúgal á dögunum.

Arnór Þór Gunnarsson: Þetta verður hörkuleikur út í Egyptalandi
„Þetta var mjög sérstakur leikur við vorum á hælunum fyrstu 20 mínútur leiksins síðan fara bæði lið að spila með aukamann sóknarlega sem við nýttum betur og komum okkur inn í leikinn. Það var kraftur í okkur í seinni hálfleik og gerðum við það sem við töluðum um að gera inn í klefa sem skilaði sér í góðum sigri,” sagði Arnór Þór Gunnarsson eftir 32-23 sigur Íslands á Portúgal í undankeppni EM.

Jafntefli hjá Erlingi í undankeppninni
Holland tryggði sér eitt stig með því að skora tvö síðustu mörkin í 27-27 jafntefli við Slóveníu í undankeppni EM 2022 í handbolta. Erling Richardson þjálfar hollenska landsliðið.

Bjarki Már Elísson: Við erum fæddir með karakter
„Það er mjög gaman að vinna seinni hálfleikurinn var góður en sá fyrri alveg skelfilegur, við gerðum vel í að snúa þessu við og fara inn í hálfleikinn einu marki undir í stað fleiri sem við nýttum síðan í seinni hálfleik og unnum leikinn,” sagði markahæsti leikmaður liðsins kátur eftir 32-23 sigur Íslands á Portúgal í undankeppni EM í handbolta.

Guðmundur Guðmundsson: Held að enginn í handbolta heiminum nema sjálfur Moustafa vilji hafa áhorfendur
„Þetta var mjög erfiður fyrri hálfleikur. Við vorum alls ekki góðir fyrir utan seinustu fimm mínúturnar, við vorum mjög óöruggir sóknarlega þar sem menn sóttu á markið með hálfum hug og vorum við að klikka á dauðafærum sem má alls ekki gerast á HM,” sagði Guðmundur um slæman fyrri hálfleik Íslands.

Engir áhorfendur á HM
Engir áhorfendur verða á HM í handbolta sem fram fer í Egyptalandi frá 13. janúar.