Handbolti

Uppgjörið: Olympiacos-Valur 31-27 [4-5] | Valsmenn Evrópubikarmeistarar eftir sigur í vítakeppni
Olympiacos vann leikinn 27-31 en Valur vann heimaleikinn einnig með fjórum mörkum og það þurfti vítakeppni til að krýna Evrópubikarmeistara. Valur skoraði úr öllum fimm vítunum en Savvas Savvas klikkaði á síðasta vítinu.

Afmælisbarnið klárt í slaginn eftir alls konar bras
Valur er 60 mínútum frá fyrsta Evróputitli í sögu íslensks handbolta. Afmælisbarn gærdagsins, Björgvin Páll Gústavsson, er eðlilega spenntur fyrir leik Vals við Olympiakos í Aþenu í dag.

Bullurnar mæta með læti
Búast má við hátt í tólf þúsund manns í stúkunni þegar Valur mætir Olympiakos í síðari úrslitaleik liðanna um EHF-bikarinn í handbolta á morgun í Aþenu. Bullurnar á bandi heimamanna verða á svæðinu.

Öruggt hjá Bjarka og félögum í fyrsta leik
Bjarki Már Elísson og félagar í Telekom Veszprém eru komnir í 1-0 úrslitaeinvíginu um ungverska meistaratitilinn í handbolta.

Tryggvi og félagar einum sigri frá titlinum eftir tvíframlengdan leik
Íslendingaliðið Sävehof er komið 2-1 yfir í úrslitaeinvíginu um sænska meistaratitilinn í handbolta eftir mikla dramatík í kvöld.

Haukar sækja sér reynslumikinn markvörð á Selfoss
Litháinn Vilius Rasimas verður ekki áfram með Selfyssingum en spilar þó áfram í Olís deildinni í handbolta næsta vetur.

Ómar Ingi með tíu mörk í tíunda sigurleik toppliðsins í röð
Ómar Ingi Magnússon fór á kostum þegar Magdeburg náði tveggja stiga forskoti á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í kvöld.

Óðinn skoraði sigurmark Kadetten í lífsnauðsynlegum sigri
Íslenski landsliðshornamaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson var hetja Kadetten Schaffhausen í kvöld þegar liðið jafnaði metin í 1-1 í úrslitaeinvíginu um svissneska meistaratitilinn á móti HC Kriens-Luzern.

Íslendingarnir ekki meira með á leiktíðinni
Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson missa báðir af síðustu leikjum Melsungen í þýsku úrvalsdeild karla í handbolta. Um er að ræða mikið áfall fyrir félagið sem er í harðri baráttu um sæti í Evrópu á næstu leiktíð.

Lærisveinar Guðmundar í úrslit: Er eiginlega orðlaus
Guðmundur Þ. Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia eru komnir alla leið í úrslitaeinvígið um danska meistaratitilinn í handbolta. Þetta varð ljóst eftir stórsigur liðsins á Íslendingaliði Ribe-Esbjerg í gærkvöld, miðvikudag.

Myndasyrpa: FH jafnaði metin með minnsta mun
FH hefur jafnað metin gegn Aftureldingu í úrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Tæpara mátti það vart vera en FH vann eins marks sigur í Mosfellsbæ í kvöld.

Uppgjörið og viðtöl: Afturelding-FH 27-28 | FH-ingar jöfnuðu einvígið
FH vann eins marks sigur gegn Aftureldingu 27-28. Leikurinn var æsispennandi en á lokakaflanum gerðu FH-ingar þrjú mörk í röð sem var of stór biti fyrir Mosfellinga.

Mikilvæg mörk frá Sigvalda Birni í fyrsta leik úrslitaeinvígisins
Sigvaldi Björn Guðjónsson spilaði stóra rullu þegar lið hans Kolstad lagði Elverum naumlega í fyrsta leik úrslitaeinvígis efstu deildar karla í handbolta í Noregi.

Landsliðskonum fjölgar hjá Val
Línumaðurinn Elísa Elíasdóttir hefur gengið til liðs við kvennalið Vals í handbolta og skrifað undir þriggja ára samning. Hún kemur til liðsins frá ÍBV.

Óðinn og félagar misstu frá sér fimm marka forskot
Kadetten Schaffhausen er komið 1-0 undir í úrslitaeinvíginu um svissneska meistaratitilinn eftir tveggja marka tap á heimavelli fyrir HC Kriens-Luzern í dag.

„Þetta einvígi er rétt að byrja“
Mosfellingar sigruðu FH í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Afturelding hefur ekki unnið titilinn síðan 1999 en Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var þó með báðar fætur á jörðinni eftir sigurinn.

Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð
Bjarki Már Elísson og félagar hans í Telekom Veszprém eru ungverskir bikarmeistarar í handbolta eftir þriggja marka sigur gegn Pick Szeged í úrslitum í kvöld, 33-30.

Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna
FH tók á móti Aftureldingu í fyrsta leik úrslitaeinvígisins í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Leikurinn endaði með þriggja marka sigri Aftureldingar og leiða Mosfellingar einvígið 1-0.

Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag
Gummersbach vann mikilvægan fimm marka sigur er liðið tók á móti Rhein-Neckar Löwen í Íslendingaslag í þýska handboltanum í dag, 31-26.

Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni
Haukur Þrastarson og félagar hans í Kielce eru lentir undir í úrslitaeinvígi pólsku deildarinnar í handbolta eftir tap í vítakeppni gegn Wisla Plock.

Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli
Strákarnir hans Guðmundar Guðmundssonar í Fredericia komu til baka og tryggðu sér þriðja leik gegn Ribe-Esbjerg í undanúrslitum um danska meistaratitilinn. Liðin gerðu jafntefli á fimmtudaginn, 27-27, og jafntefli varð aftur niðurstaðan í dag, 23-23.

Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi
Einvígi FH og Aftureldingar um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta hefst í kvöld. Þessi lið hafa einu sinni áður mæst í úrslitum um titilinn.

Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli
Valsmenn eru með fjögurra marka forystu í úrslitaeinvígi Evrópubikars karla í handbolta eftir sigur gegn gríska liðinu Olympiacos í kvöld, 30-26.

Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum
Ómar Ingi Magnússon og Viggó Kristjánsson áttu báðir stórleiki er lið þeirra, Magdeburg og Leipzig, unnu örugga sigra í þýska handboltanum í dag.

Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur
Bjarki Már Elísson og félagar hans í Telekom Veszprém eru komnir í úrslit ungversku bikarkeppninnar í handbolta eftir öruggan ellefu marka sigur gegn Dabas í dag, 38-27.

„Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“
Eftir vonbrigði í vikunni býður handboltaliði Vals heldur betur spennandi og krefjandi verkefni þegar liðið leikur til úrslita Evrópubikarsins gegn Olympiacos. Fyrri leikur liðanna fer fram á Hlíðarenda í kvöld, einvíginu lýkur svo í Grikklandi eftir viku.

„Þurfum bara okkar besta leik í vetur“
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, sagði liðið þurfa að sýna sitt allra besta þegar Olympiacos mætir á Hlíðarenda í kvöld og fyrri leikur liðanna í úrslitum Evrópubikarsins fer fram.

Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen
Íslendingalið HBW Balingen-Weilstetten mátti þola sitt tíunda tap í röð er liðið heimsótti Stuttgart í þýska handboltanum í kvöld.

Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru
Valsmenn standa nú í sporum sem Mulningsvélin svokallaða stóð í fyrir 44 árum. Framundan úrslitaeinvígi í Evrópubikarnum í handbolta. Þorbjörn Jensson var einn af prímusmótorunum í Evrópuævintýri Vals árið 1980. Þátttöku liðsins í Evrópukeppni var fyrst fleygt fram í gríni. Grín sem varð fljótt að mikilli alvöru.

Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar
Valur vann þriggja marka sigur gegn Haukum 28-25 og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann einvígið 3-0 og vann alla titla sem í boði voru á Íslandi á þessu tímabili.