Skoðun

Fimm ár í felu­leik

Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Í dag 15. júní eru fimm ár síðan ég fékk það staðfest sem mig hafði grunað í nokkurn tíma aðég er með Parkinson sjúkdóminn. Ég kaus að kalla það P dæmið því ég gat ekki sagt orðið. Èg vildi ekki tala um það eða að neinn nema mínir nánustu hefðu vitneskju um þessi örlög mín. Hvað þá að ganga í Parkinson félagið.

Skoðun

Sunnudagsblús ríkis­stjórnarinnar

Jens Garðar Helgason skrifar

Þingfundur á sunnudegi er nánast óþekkt fyrirbæri í sögu Alþingis. Árið 1914 var þing kallað saman vegna upphafs fyrri heimstyrjaldarinnar. Hins vegar hefur það aðeins gerst tvisvar sinnum á lýðveldistímanum, og þá vegna losunar fjármagnshafta og aðdraganda þess.

Skoðun

Hver er í raun í fýlu?

Daði Freyr Ólafsson skrifar

Í pistli sem nýverið birtist hér er því haldið fram að stjórnarandstaðan á Alþingi sé í fýlu og að hún beiti málþófi og þverrandi þátttöku í nefndarstörfum í von um að grafa undan ríkisstjórninni. Þó þessi sýn geti hljómað sannfærandi fyrir þá sem ekki fylgjast náið með þingsköpum, þá er hún bæði einfölduð og villandi.

Skoðun

Tál­sýn um hugsun

Þorsteinn Siglaugsson skrifar

Snemma í júní birti Apple Machine Learning Research nýja rannsókn á stórum mállíkönum (Large Language Models), sem vakið hefur verðskuldaða athygli og bendir til að rökleg geta mállíkana sé takmarkaðri en margir hafa talið.

Skoðun

Hand­hafar sann­leikans og hið gagns­lausa væl

Helgi Héðinsson skrifar

Ríkisstjórnin þreytist ekki á að klappa sjálfri sér á bakið. Ítrekað hefur hún lýst yfir eigin ágæti, samstöðu, árangri og ábyrgð, en þegar grannt er skoðað eru verk hennar ansi langt frá þeim háleitu yfirlýsingum sem almenningi hefur verið boðið upp á.

Skoðun

Flokkarnir sem raun­veru­lega öttu við­kvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá

Þórður Snær Júlíusson skrifar

Nýtt örorkulífeyriskerfi á að taka gildi 1. september næstkomandi. Um er að ræða kerfi sem varð að lögum fyrir um ári síðan, þegar báðir gömlu valdaflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn, sátu í ríkisstjórn ásamt Vinstri grænum, sem eru ekki lengur á meðal þingflokka eftir að hafa verið hafnað af kjósendum.

Skoðun

Gervigreindarskólinn Alpha: Fram­tíðar­sýn fyrir ís­lenska grunn­skóla

Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hvað ef barnið þitt gæti klárað bóklegu vinnuna fyrir hádegi og varið eftirmiðdeginum í skapandi verkefni sem undirbúa það fyrir raunverulegt líf? Þetta hljómar kannski eins og fjarlæg framtíð, en er nú þegar raunveruleikinn í bandaríska skólanum Alpha, sem notar gervigreind til að gjörbylta menntun.

Skoðun

Vald­hafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin

Ágústa Árnadóttir skrifar

Þeir sem fara með völdin eiga að þjóna þjóð sinni af ábyrgð, skýra ákvarðanir sínar og standa fyrir stefnu sinni. En þegar borgarar leyfa sér að spyrja krefjandi spurninga um stefnu stjórnvalda, bregðast ráðamenn ítrekað við með stimplun, ásökunum og þöggun í stað heiðarlegra svara.

Skoðun

Til hamingju með daginn á ný!

Árni Guðmundsson skrifar

Þann 16. júní 2025 eru nákvæmlega fimm ár síðan ÁTVR kærði ólöglega netsölu til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Netsölu sem er ólögleg því hún selur áfengi í smásölu af lager á Íslandi til neytenda. Lögreglan hefur ekki klárað þetta samfélagslega mikilvæga mál á fimm árum, hálfum áratug. Til hamingju með daginn! Þessi staða er auðvitað með ólíkindum.

Skoðun

Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum

Davíð Stefán Guðmundsson skrifar

Þann 14. júní ár hvert sameinast heimurinn í að fagna Alþjóðlega blóðgjafadeginum. Á þeim degi er þakklæti sýnt þeim sem gefa blóð af fúsum og frjálsum vilja. Dagurinn er einnig nýttur til að vekja athygli á brýnni þörf fyrir fjölgun á blóðgjöfum. Þema dagsins í ár er: „Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum“og undirstrikar það mikilvægi þess að blóðgjafar bjarga mannslífum og mikilvægi samfélagslegrar samstöðu.

Skoðun

Versta sem gæti gerzt

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Versta mögulega staðan sem gæti komið upp, næði frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um bókun 35 við EES-samninginn ekki fram að ganga og málið færi í kjölfarið hugsanlega fyrir EFTA-dómstólinn, væri sú að komizt yrði að þeirri niðurstöðu að fara bæri að kröfu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu gagnvart innlendri lagasetningu. 

Skoðun

Að­lögun á Austur­velli

Heiða Ingimarsdóttir skrifar

„Hvernig er svo dvölin á leikskólanum við Austurvöll?“ var ég spurð í grænmetiskælinum í Bónus þegar ég skrapp heim í helgarfrí. Það er ekki nema von að fólk spyrji enda minnir sú mynd sem gjarnan er dregin upp á samskipti í hópi leikskólabarna.

Skoðun

Auð­lindin er sam­eign – en verðmætasköpunin er ekki sjálf­gefin

Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Það er vinsælt í íslenskri umræðu að tala um sjávarauðlindina sem sameign þjóðarinnar. Það er rétt. Enginn á fiskinn í sjónum. En það virðist stundum gleymast að fiskurinn veiðir sig ekki sjálfur, frystir sig ekki sjálfur og selur sig ekki sjálfur á mörkuðum erlendis.

Skoðun

Brotin stjórnar­and­staða í fýlu

Arnar Steinn Þórarinsson skrifar

Ef þú ert eins og flest allir Íslendingar, þá fylgist þú ekki endilega mikið með því sem er að gerast á Alþingi, nema kannski lestu aðra hverja frétt á Vísi eða Mbl. Þú hefur kannski séð að það hafa verið mikil átök um bókun 35 og að umræðurnar sem hafa átt sér stað niðri á þingi hafa verið frekar „tense“.

Skoðun

Út­hlutun Matvælasjóðs

Fjóla Einarsdóttir skrifar

Ég sem fædd og alin upp á Íslandi hef skilning á því að fiskurinn í sjónum kringum Íslandsstrendur var og er okkar auðlind. Ég sem bóndadóttir úr afskekktum en guðdómlega fallegum dal í Skagafirði skil sjálfbærni, nýtni og hversu mikilvægur búskapur hefur verið og er íslensku þjóðinni.

Skoðun

Opið bréf til Ölmu Möller, heil­brigðis­ráðherra

Anna Margrét Hrólfsdóttir og Lilja Guðmundsdóttir skrifa

Kæra Alma, Okkur hjá Endósamtökunum er verulega brugðið vegna ákvörðun þinnar að stöðva niðurgreiðslur aðgerða á Klíníkinni fyrir konur með endómetríósu. Þetta er ekkert annað en skerðing á þjónustu og afturför í þá tíma þegar ríkti ófremdarástand í málaflokknum.

Skoðun

Rétt­læti næst ekki með rang­læti

Ingibjörg Isaksen skrifar

Í umræðum á Alþingi spurði ég hæstvirtan dómsmálaráðherra, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur einfaldrar, en mikilvægrar spurningar: Telur hún sem dómsmálaráðherra að það standist stjórnarskrá að skerða áunnin réttindi tugþúsunda sjóðfélaga í lífeyrissjóðum?

Skoðun

Hve­nær kemur að okkur?

Hjördís María Karlsdóttir skrifar

Það er spurning. Fátækt er vaxandi vandamál á Íslandi, bilið lengist á milli þeirra ríku og þeirra sem fátækir eru. Fátækt er til í allskonar myndum.

Skoðun

Frjór jarð­vegur fyrir glæpa­gengi til að festa rætur

Halldóra Mogensen skrifar

Dómsmálaráðherra benti réttilega á í nýlegri grein að Ísland stendur frammi fyrir vaxandi ógn af skipulagðri brotastarfsemi. Hún vísaði til reynslu nágrannaþjóða okkar á Norðurlöndum, þar sem gengjastríð og ofbeldi hafa orðið að skelfilegum veruleika, og ungmenni eru notuð sem verkfæri glæpahópa.

Skoðun

Án greiningar, engin á­byrgð

Gísli Már Gíslason skrifar

Ný ríkisstjórn hefur sýnt mikinn metnað í lagasetningu, en í hraðanum virðist mikilvægt grundvallaratriði hafa gleymst: vandaðar greiningar á áhrifum stórra lagafrumvarpa. Þegar verið er að breyta burðarstólpum í samfélaginu og ráðstafa milljörðum af almannafé er það ekki bara óskynsamlegt, heldur beinlínis óábyrgt að sigla í blindni.

Skoðun

Rödd barna og ung­menna hunsuð í barnvænu sveitar­fé­lagi?

París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir og Íris Ósk Sverrisdóttir skrifa

Ungmennaráð Akureyrar lýsir yfir miklum áhyggjum og vonbrigðum vegna nýlegra skipulagsbreytinga á félagsmiðstöðvastarfi í bænum. Breytingarnar fela í sér að öll starfsemi Félagsmiðstöðva Akureyrar (FÉLAK), þar á meðal Ungmennahúsið og Virkið, verður færð alfarið undir stjórn grunnskólanna í bænum.

Skoðun

Verkin sem ekki tala

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Það veldur greinilega óþægindum hjá ríkisstjórninni og fylgismönnum hennar hve virk stjórnarandstaðan hefur verið á Alþingi að undanförnu. Umræðan er sögð of mikil, of gagnrýnin, og að þeirra mati, helst til bagaleg. Það ætti að segja sitt.

Skoðun