Fannar öflugur 19. apríl 2005 00:01
Íslenski landsliðsmiðherjinn Fannar Ólafsson skoraði 15 stig og tók 12 fráköst á 21 mínútu í 94-87 sigri Ulm á Crailsheim Merlins í þýsku 2. deildinni í körfubolta um helgina. Ulm hefur nú unnið fjóra leiki í röð. Þetta var langbesti leikur Fannars með liðinu til þessa en þetta var aðeins í annað skiptið sem hann nær að leika yfir 20 mínútur. Mike Taylor, þjálfari Ulm, valdi Fannar mann leiksins á heimasíðu sinni og sagði hann hafa blásið liðsfélögum sínum kapp í brjóst með baráttu sinni eftir að hafa komið af bekknum. Fannar skoraði 12 stig og tók 9 fráköst í stórsigri á Kronberg í sínum öðrum leik hjá Ulm en eftir það fékk hann lítið að spreyta sig þar til hann spilaði stórt hlutverk í að landa góðum sigri um helgina. Ulm er sem áður segir í öðru sæti suðurhluta þýsku 2. deildarinnar, sex stigum á eftir liði Nürnberg. Fannar gekk til liðs við liðið í febrúarbyrjun og hefur nú leikið ellefu leiki með liðinu. Ulm hefur unnið níu þeirra, þar af tíu af síðustu ellefu leikjum. Fannar hefur spilað 12,2 mínútur að meðaltali í 2. deildinni í vetur og á þeim tíma hefur hann skorað 5,1 stig og tekið 3,2 fráköst að meðaltali í leik.
Körfubolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor aftur heim í Stjörnuna Tímabilið búið hjá Rodri? Bara tvær fljótari en Sveindís Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Bandaríkjamenn að eignast Everton Leiðrétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Haaland ekki refsað Viðar Ari fjórbrotinn Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Clark slegin í augað í frumraun Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Sjá meira