Sport

Shaq fær $100 millur næstu 5 árin

Körfuboltasnillingurinn Shaquille O Neal komst í dag að samkomulagi við lið sitt í NBA deildinni, Miami Heat um nýjan 5 ára samning sem færir honum 100 milljónir dollara í laun á tímabilinu. O Neal er því launahæsti leikmaðurinn í deildinni og verður það að öllu óbreyttu a.m.k. næstu 2 tímabilin. O Neal átti eitt ár eftir að eldri samningi sínum hjá Miami sem hefði fært honum 30.6 milljónir dollara á komandi tímabili en miðað við nýja samninginn fær hann 20 milljónir dollara á ári



Fleiri fréttir

Sjá meira


×