Eins og að ferðast með Elvis 30. ágúst 2005 00:01 "
Það hefði auðvitað verið betra að ná að vinna þennan leik, en ég er samt mjög ánægður með leik liðsins í dag," sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari íslenska liðsins eftir leikinn í gær. Magnús Þór Gunnarsson var stigahæstur íslenska liðsins með 21 stig, en Hlynur Bæringsson kom næstur með 18 stig og hirti 11 fráköst. Eftir að liðið tapaði illa fyrir Kínverjum í fyrri leik liðanna á dögunum, sagði Sigður að allt annað hefði verið að sjá til strákanna í gær. "Vörnin gekk miklu betur hjá okkur í gær og baráttan meiri, auk þess sem langskotin voru að detta hjá okkur," sagði Sigurður og bætti við að liðið væri komið á gott skrið fyrir leikinn mikilvæga gegn Dönum í Keflavík á laugardaginn. "Ég hef engar áhyggjur af leiknum við Dani ef við spilum í líkingu við það sem við vorum að gera hérna í dag, því þetta kínverska lið er auðvitað gríðarlega sterkt. Við misstum Hlyn og Friðrik báða út af með fimm villur í leiknum og máttum ekki eiga neina slæma kafla, því þá var okkur refsað strax," sagði Sigurður, en íslenska liðið var með forystu 24-22 eftir fyrsta leikhlutann, en eftir það tóku Kínverjar leikinn í sínar hendur og unnu eins og áður sagði með 16 stiga mun. "Ég get ekki annað en hrósað öllum strákunum fyrir frammistöðuna í dag og þetta er búið að vera frábært ferðalag hérna út. Fólk hérna er mjög hrifið af körfubolta og hrósaði þeim Hlyni og Magga fyrir leik sinn í dag. Stemningin er ólýsanleg og það er bara eins og við séum að túra með sjálfum Elvis hérna, þvílík eru lætin í kring um Yao Ming," sagði Sigurður, sem ásamt strákunum í landsliðinu fékk lögreglu- og herfylgd í burtu frá höllinni þar sem leikurinn var spilaður.
Körfubolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Viktor aftur heim í Stjörnuna Tímabilið búið hjá Rodri? Bara tvær fljótari en Sveindís Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Bandaríkjamenn að eignast Everton Leiðrétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Haaland ekki refsað Viðar Ari fjórbrotinn Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Mætti tárvotur í viðtal og óviss um framhaldið Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Clark slegin í augað í frumraun Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Glæsimörk Mundu eftir tveggja ára bið Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Dagskráin í dag: Blikar geta komist á toppinn Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Refsing fyrir að blóta gæti flýtt fyrir því að Verstappen hætti Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Liðsfélagi Arnórs með bitför eftir andstæðing Arteta vildi ekki tjá sig um rauða spjaldið Atlético Madrid gerði enn eitt jafnteflið Uppgjörið og viðtöl: Fram - Fylkir 2-0 | Langþráður sigur Fram setur níu tær í efstu deild að ári Sjá meira