Konu í Oregon í Bandaríkjunum brá heldur en ekki í brún á dögunum þegar hún fann feitan kött fastann í kattalúgunni sinni. Kötturinn, sem er nokkuð feitur og kallaður Herkúles, ætlaði sér inn í húsið í leit af kattamat. Ekki tókst honum að trofa sér í gegnum lúguna og sat þar fastur þegar húsráðandi vaknaði.
Dýraverndarsamtökum í Oregon var þegar falið að sjá um Herkúles á meðan eiganda hans væri leitað. Það tólk nokkra daga og þurfti hjálp bandarískra fjölmiðla til þess. Herkúles er nú kominn aftur til eiganda sína og hefur það gott, þrátt fyrir aukakílóin.