Hljómsveitin Sigur Rós ætlar að ljúka tónleikaferðalagi sínu um heiminn með tónleikum í Laugardalshöll sunnudagskvöldið 23. nóvember. Þar munu þeir Jónsi, Kjartan, Georg og Orri, stíga einir og óstuddir á svið í fyrsta sinn á Íslandi síðan 2001.
„Þetta hefur verið í pípunum síðan í sumar. Þeir vildu alltaf enda tónleikaferðina hérna," segir Kjartan Sturluson, umboðsmaður Sigur Rósar. „Seinni hlutann á tónleikaferðinni hafa þeir verið að hverfa aftur til fortíðar, hafa verið fjórir á sviði, og þeir sem hafa séð þá hafa talað um mikinn kraft og mikið sjónarspil"
Þeir félagar eru staddir í Japan ásamt fylgdarliði þar sem þeir komu fram á fernum tónleikum sem uppselt var á, í Nagoya, Osaka og Tókýó. Í byrjun nóvember spila þeir svo aftur í Evrópu áður en þeir koma heim og halda lokatónleikana sína.
Tónleikaferð Sigur Rósar um heiminn í ár til stuðnings útgáfu Með suð í eyrum við spilum endalaust hófst í Mexíkó 5. júní. Ferðin hljómsveitarinnar lá um Bandaríkin, Evrópu og Asíu þar sem hún spilaði fyrir fimm til tíu þúsund manns í hvert sinn við frábærar undirtektir.
Plata þeirra hefur nú selst í um hálfri milljón eintaka víða um heim. Hér á landi hefur hún selst í sjö þúsund eintökum.
Forsala miða á tónleikana hefst 4. nóvember og kostar miðarnir 3.900 og 4.900 krónur. Einnig verða í boði miðar á bekkina fyrir neðan stúkuna fyrir unglinga á grunnskólaaldri. Kosta þeir eitt þúsund krónur. „Það má búast við frábærum tónleikum. Það er rosa hugur í strákunum enda hefur þeim gengið virkilega vel í ár og eru án efa ein af sterkari útfluningsvörum okkar," segir Kári. - fb
Sigur Rós lýkur tónleikaferðinni heima
