
Áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi og samfélag manna
Loftslagsbreytingar
Stöðugt berast tíðindi af öfgum í veðri, fellibyljum, kuldaköstum eða hitabylgjum og þurrkum með tilheyrandi afleiðingum víðs vegar um heiminn. Á málþinginu fjallaði Jón Egill Kristjánsson, veðurfræðingur og prófessor við Óslóarháskóla, um loftslagsbreytingar og orsakir þeirra. Margir þættir hafa áhrif á loftslagið, svo sem aska eða ryk vegna eldgosa eða af mannavöldum, braut jarðar um sólu, og ýmsar innri sveiflur, en ekki er vafi á að losun koldíoxíðs af mannavöldum hefur sívaxandi áhrif. Öfgar í veðri hafa alltaf verið til staðar á jörðinni en nú eru sumar tegundir veðuröfga orðnar æ algengari, til dæmis hafa orðið gífurlegar hitabylgjur í Rússlandi, Mið-Evrópu og Bandaríkjunum á síðustu árum. Svo langvinnar og víðfeðmar hitabylgjur hafa til þessa verið afar fátíðar en nú hefur þeim fjölgað mjög með hrikalegum afleiðingum. Vandinn nær langt út yfir svæðin þar sem hitabylgjurnar verða, því loft- og sjávarhiti fara ört hækkandi á hnettinum öllum. Þessa sér þegar stað í bráðnun jökla og breyttum vistkerfum. Jón Egill segir nánast ógerlegt að útskýra hnattræna hlýnun án tillits til losunar gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum. Ef komast á hjá þeim alvarlegu breytingum sem vofa yfir vistkerfum heimsins verður að draga verulega úr losun koldíoxíðs án tafar.
Áhrif á jökla og sjávarborð
Bráðnun jökla er einhver áþreifanlegasta birtingarmynd hlýnunar. Á málþinginu ræddi Helgi Björnsson, jöklafræðingur og vísindamaður við Háskóla Íslands, um bráðnun jökla sem reynist nú mun hraðari en gert var ráð fyrir í skýrslu Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2007 um hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra. Jöklar hopa um allan heim, meðal annars hér á landi, hafís er óðum af hverfa á norðurslóðum og jöklar utan heimskautavæða rýrna hratt. Hert hefur á bráðnun Grænlandsjökuls og vesturhluta Suðurskautslandsins. Allt leiðir þetta til þess að sjávarborð hækkar, jökulár vaxa og jökulhlaupum fjölgar. Nú er talið að við næstu aldamót verði sjávarborð einum metra hærra en nú er. Við það eykst sjávarrof, sjávarflóð magnast, grunnvatn mengast, og láglendi fer á kaf víða um heim, á mörgum þéttbýlustu svæðum jarðar í Asíu en einnig í Norður-Evrópu og Ameríku, á strandsvæðum þar sem hundruð milljóna manna búa.
Einnig nýta hundruð milljóna manna leysingarvatn frá jöklum til drykkjar og við áveitur og þegar jöklar hverfa verður gríðarlegur vatnsskortur allt frá fjallahéruðum til sjávar, ekki síst á mjög fjölmennum svæðum í Indlandi og Kína.
Vistkerfið
Loftslagsbreytingar hafa bein áhrif á vistkerfi, gróður og dýralíf, eins og Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógvistfræðingur og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands, ræddi á málþinginu. Ísland er kjörið landsvæði fyrir rannsóknir á þessu sviði þar sem landið er á mörkum tveggja gróðurbelta, hins kaldtempraða og heimskautabeltisins. Bjarni sýndi hvernig Ísland hefur gróðurfarslega færst suður á bóginn vegna hlýnunar síðan um 1990, sem hefur t.d. haft mikil áhrif á landbúnað. Þetta sést enn fremur á því að suðrænni plöntur og dýr hafa tekið sér bólfestu á Íslandi á undanförnum árum og einnig eru byrjuð að koma fram neikvæð áhrif á einstaka heimskautalífverur og vistkerfi. Mestar breytingar hafa enn sem komið er orðið í vistkerfi hafsins. Nýir suðlægari fiskistofnar, eins og makríll, veiðast nú hér við land, og veiði annarra sem áður voru hér á norðurmörkum sínum, eins og skötusels, hefur aukist til muna.
Þótt skammtímaáhrif loftslagsbreytinga á náttúrufar á Íslandi séu að ýmsu leyti jákvæð geta þau orðið afdrifarík fyrir íslenskt samfélag til lengri tíma. Talið er að neikvæð áhrif loftslagsbreytinga muni bitna verst á almenningi í þróunarlöndum og auka fólksflótta frá þurrari svæðum. Það mun ógna pólitískum og efnahagslegum stöðugleika í veröldinni, og hin iðnvæddu ríki munu því ekki geta vikist undan þátttöku í lausn þess vanda.
Samfélag manna
Fá viðfangsefni vísinda og fræða eru eins samofin pólitísku valdatafli og orsakir loftslagsbreytinga. Guðni Elísson, prófessor í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, hefur kynnt sér samfélagsleg áhrif loftslagshlýnunar og sérstaklega hvernig umræðu um þau er háttað. Þótt mikið hafi verið fjallað um loftslagsmál og þá vá sem vofir yfir virðist boðskapurinn ekki ná í gegn til almennings. Hvarvetna virðist vera of langt á milli orða og gerða. Ef til vill er það að hluta vegna þess að hættan virðist vera of fjarlæg til að hægt sé að vekja almenning til vitundar um hana. Svo fjarlæg að einfalt er að leiða umræðuna hjá sér. En ekki má gleyma því að gífurlegir fjárhagslegir hagsmunir eru tengdir orsakavöldum loftslagshlýnunar og aðgerðir til að stemma stigu við þeim munu snerta efnahag og hagsmuni mjög valdamikilla aðila í viðskipta- og fjármálaheiminum, og hafa áhrif á hagkerfi á heimsvísu. Því er ljóst að ákvarðanir um aðgerðir í þessum efnum verða ekki teknar átakalaust.
Lokaorð
Það er engum vafa undirorpið að loftslag er að breytast með tilheyrandi áhrifum á vistkerfi jarðar og samfélög manna. Brýnt er gera upplýsingar og umræður um loftslagsbreytingar og hlýnun jarðar aðgengilegar almenningi með öfgalausum hætti og á vísindalegum grunni. Málþing um áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi og samfélag manna var framlag Vísindafélags Íslendinga til þeirrar umræðu, en ræða þarf frekar fjölmargar hliðar þessa mikilvæga máls, ekki síst hvernig snúa má af þeirri óheillabraut sem leiðir af síaukinni mengun andrúmslofts.
Skoðun

Kann Jón Steindór ekki að reikna?
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Lífið sem var – á Gaza
Israa Saed,Katrín Harðardóttir skrifar

Vöxtur inn á við og blönduð borgarbyggð er málið
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar

Tilskipanafyllerí Trumps
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Öfgar á Íslandi
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar

Borg þarf breidd, land þarf lausnir
Ásta Björg Björgvinsdóttir skrifar

Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum
Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar

Rjúfum þögnina og tölum um dauðann
Ingrid Kuhlman skrifar

Fátækt á Íslandi: Áskoranir, viðkvæmir hópar og leiðir til úrbóta
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Verndum vörumerki í tónlist
Eiríkur Sigurðsson skrifar

Hann valdi sér nafnið Leó
Bjarni Karlsson skrifar

Misskilin sjálfsmynd
Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar

Hvenær er nóg nóg?
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Byggðalína eða Borgarlína
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Úlfar sem forðast sól!
Jóna Guðbjörg Árnadóttir skrifar

Aldrei aftur
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Tala ekki um lokamarkmiðið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf
Einar G. Harðarson skrifar

Þétting í þágu hverra?
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu
Þórður Snær Júlíusson skrifar

POTS er ekki tískubylgja
Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir skrifar

Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024
Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar

Hvað er verið að leiðrétta?
Ægir Örn Arnarson skrifar

Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið
Arnar Þór Jónsson skrifar

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu
Clara Ganslandt skrifar

Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig!
Magnús Guðmundsson skrifar

Vetrarvirkjanir
Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar