Ekkja mannsins féll frá bótakröfu Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. október 2014 09:45 Frá fyrirtöku málsins í júní síðastliðnum. vísir/pjetur
Ekkja mannsins sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í október í fyrra vegna mistaka hjúkrunarfræðings féll frá stærsta lið bótakrafna við fyrirtöku málsins í dag. Hafði hún krafist bóta upp á tæplega 7,5 milljónir króna vegna missis framfæranda sem nú hefur verið fallið frá. Fjórar einkaréttarkröfur eru tilgreindar í ákærunni en ekkja mannsins og börn hennar fara fram á samtals sex milljónir króna, 1,5 milljónir króna hver í miskabætur, auk rúmlega 220 þúsund króna hver fyrir útfararkostnaði. Nánar má lesa um kröfurnar í ákærunni neðst í fréttinni. Hjúkrunarfræðingurinn neitaði sök í málinu í júní síðastliðnum og það gerði lögmaður spítalans sömuleiðis fyrir hönd spítalans. Hjúkrunarfræðingurinn gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisvist. Mál þetta markar ákveðin tímamót þar sem aldrei fyrr hefur nokkur verið ákærður fyrir mál af þessu tagi af hálfu ríkisins. Hinn 21. maí síðastliðinn gaf ríkissaksóknari út ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingnum fyrir manndráp af gáleysi og brot á hjúkrunarlögum. Málið á rætur sínar að rekja til ársins 2012. „Verklagsreglur sem ákærða þekkti vel til“Í ákærunni segir að hjúkrunarfræðingurinn hafi unnið kvöldvakt í beinu framhaldi af dagvakt á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut miðvikudaginn 3. október 2012. Við umönnun sjúklingsins hafi hjúkrunarfræðingnum láðst að tæma loft úr kraga barkarraufartúbu þegar hún tók sjúklinginn úr öndunarvél og setti talventil á túbuna. Þá hafi hún ekki veitt því athygli að slökkt var á öryggishljóði vaktara (monitors) sem gefið hefi frá sér hljóð þegar súrefnismettun sjúklingsins fór fallandi. Afleiðingarnar hafi orðið þær að sjúklingurinn gat einungis andað að sér lofti en ekki frá sér og lést hann skömmu síðar. Ríkissaksóknari höfðar málið á hendur hjúkrunarfræðingnum. „Nefnt eftirlit var hluti af starfsskyldum ákærðu samkvæmt verklagsreglum spítalans sem ákærða þekkti vel til,“ segir í ákærunni. Einnig er hún sökuð um að hafa brugðist tilkynningaskyldu með því hafa ekki látið þann hjúkrunarfræðing sem varð eftir á stofu sjúklingsins vita að hún hafi sett á hann talventil. „Þessi vanræksla ákærðu stuðlaði enn frekar að því að mannsbani hlaust af gáleysi hennar.“ Margir samverkandi þættir - Algengasta ástæða mistaka Niðurstaða rannsóknar spítalans var sú að margir samverkandi þættir hefðu valdið mistökunum, en það er algengasta ástæða mistaka í heilbrigðiskerfinu. Það þýðir að samspil umhverfis, starfsmanna, aðstæðna og í sumum tilfellum sjúklingsins skapi augnablik eða kringumstæðum þar sem mistök eiga sér stað. Ekkjan vildi ekki kæra Maðurinn var 76 ára þegar hann lést en hann lá inn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa undirgengist hjartaaðgerð. Ekkja mannsins vildi ekki leggja fram kæru og í samtali við Stöð 2 óskaði hún hjúkrunarfræðingnum alls hins besta. Gagnaöflun í málinu er lokið og verður því framhaldið hinn 30. janúar næstkomandi.
Hjúkrunarfræðingur sýknaður af ákæru um manndráp Dómsmál Tengdar fréttir Hjúkrunarfræðingurinn neitar sök Lögfræðingur Landspítalinn neitaði einnig sök fyrir hönd spítalans og hafnaði bótakröfum. 24. júní 2014 10:53 "Hún getur ekki verið ein ábyrg“ Landspítalinn og hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild spítalans voru í dag ákærð fyrir manndráp af gáleysi vegna atviks sem kom upp á spítalanum í október 2012, en ekkja mannsins sem lést segist ósátt við ákæruna. Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum segir íslenskt heilbrigðiskerfi standa á krossgötum. 21. maí 2014 19:08 Heilbrigðisstarfsfólk líklegra til að hylma yfir mistök sín „Ef við ætlum að læra af mistökum okkar þá verðum við að fá þau upp á yfirborðið,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 21. maí 2014 16:20 Óskað eftir frekari gögnum í máli hjúkrunarfræðingsins Ríkissaksóknari lagði fram ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi gjörgæsludeildar í maí síðastliðnum fyrir manndráp af gáleysi. 4. september 2014 11:15 Hjúkrunarfræðingur ákærður - Ekkja mannsins vildi ekki kæra „Ég vona að þeir hlúi að þessari konu og hjálpi henni yfir þetta því það er ekkert gaman að vera með svona á bakinu.“ 21. maí 2014 14:22 Sextán tíma vaktir hjúkrunarfræðinga sjaldgæfar Þingfesting í máli hjúkrunarfræðings Landspítalans sem ákærður hefur verið fyrir manndráp af gáleysi verður á föstudag. 3. júní 2014 07:00 Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp Hinum ákærða hefur þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. 21. maí 2014 10:46 Röð mistaka leiddi til andlátsins Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. 22. maí 2014 16:19 Landlæknir setur spurningamerki við ákæru um manndráp Landlæknisembættið hefur skoðað kerfi Norðmanna þar sem mistök í heilbrigðisþjónustu er ekki tilkynnt til lögreglu nema grunur sé um glæpsamlegt athæfi. 23. maí 2014 07:00 Heilbrigðisstarfsmenn uggandi vegna ákæru um manndráp Fagfólk og aðstandandi sjúklings óttast breytt viðhorf og meiri þöggun um mistök vegna ákærunnar 22. maí 2014 07:00 Mest lesið Þau fái heiðurslaun listamanna Innlent Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Innlent Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Innlent Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Innlent Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Innlent ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Erlent Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Innlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Witkoff fundar með Selenskí Erlent Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Innlent Fleiri fréttir Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Flugvél á leið til Egilsstaða snúið við yfir Hallormsstað Gengst ekki við falsfréttum en viðurkennir að tímasetningar séu misvísandi Sigmundur Davíð og Kemi Badenoch meðal gesta í boði Meloni Keyptu ekki skýringar um neyðarvörn í Mjóddinni Bakkaði á ofsahraða með lyfjakokteil í blóðinu Laufey Rún hætt störfum hjá Miðflokknum Sanna býður sig fram undir merkjum Vors til vinstri Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Viðreisn stundi hræðsluáróður í stað þess að ræða málin Inflúensan á uppleið og seinni bylgjan handan við hornið Flensan á flugi og Sundlaugarmenningunni fagnað í Vesturbæjarlauginni Játaði en áfrýjaði samt og krafðist sýknu Páll Winkel meðal umsækjenda um embætti ráðuneytisstjóra Vilja takmarka fjölda barna sem getin eru með sama sæði Sjá meira
Hjúkrunarfræðingurinn neitar sök Lögfræðingur Landspítalinn neitaði einnig sök fyrir hönd spítalans og hafnaði bótakröfum. 24. júní 2014 10:53
"Hún getur ekki verið ein ábyrg“ Landspítalinn og hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild spítalans voru í dag ákærð fyrir manndráp af gáleysi vegna atviks sem kom upp á spítalanum í október 2012, en ekkja mannsins sem lést segist ósátt við ákæruna. Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum segir íslenskt heilbrigðiskerfi standa á krossgötum. 21. maí 2014 19:08
Heilbrigðisstarfsfólk líklegra til að hylma yfir mistök sín „Ef við ætlum að læra af mistökum okkar þá verðum við að fá þau upp á yfirborðið,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 21. maí 2014 16:20
Óskað eftir frekari gögnum í máli hjúkrunarfræðingsins Ríkissaksóknari lagði fram ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi gjörgæsludeildar í maí síðastliðnum fyrir manndráp af gáleysi. 4. september 2014 11:15
Hjúkrunarfræðingur ákærður - Ekkja mannsins vildi ekki kæra „Ég vona að þeir hlúi að þessari konu og hjálpi henni yfir þetta því það er ekkert gaman að vera með svona á bakinu.“ 21. maí 2014 14:22
Sextán tíma vaktir hjúkrunarfræðinga sjaldgæfar Þingfesting í máli hjúkrunarfræðings Landspítalans sem ákærður hefur verið fyrir manndráp af gáleysi verður á föstudag. 3. júní 2014 07:00
Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp Hinum ákærða hefur þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. 21. maí 2014 10:46
Röð mistaka leiddi til andlátsins Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. 22. maí 2014 16:19
Landlæknir setur spurningamerki við ákæru um manndráp Landlæknisembættið hefur skoðað kerfi Norðmanna þar sem mistök í heilbrigðisþjónustu er ekki tilkynnt til lögreglu nema grunur sé um glæpsamlegt athæfi. 23. maí 2014 07:00
Heilbrigðisstarfsmenn uggandi vegna ákæru um manndráp Fagfólk og aðstandandi sjúklings óttast breytt viðhorf og meiri þöggun um mistök vegna ákærunnar 22. maí 2014 07:00