Flughlað ekki á dagskrá á kjörtímabilinu Sveinn Arnarsson skrifar 1. júní 2015 07:00 Höskuldur Þórhallsson formaður samgöngunefndar Alþingis Fréttablaðið/GVA
Ekki er gert ráð fyrir nýju flughlaði á Akureyrarflugvelli í samgönguáætlun til ársins 2018 sem Ólöf Nordal, innanríkisráðherra hefur lagt fyrir þingið. Eru þetta nokkur tíðindi þar sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar þingsins sem og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra sögðu á síðasta ári mikilvægt að ljúka við gerð flughlaðsins sem fyrst. Í samgönguáætlun þeirri sem nú er til meðferðar í þinginu segir að framkvæmdakostnaður við gerð flughlaðsins rúmist ekki á áætluninni. Stækkun flughlaðs Akureyrarflugvallar gerir flugvellinum kleift að taka á móti stærri og fleiri vélum og eykur líkurnar á millilandaflugi um völlinn. Hafa menn bent á mikilvægi þess að dreifa ferðamönnum um landið og því mikilvægt að ljúka gerð flughlaðsins. Höskuldur Þórhallsson, formaður samgöngunefndar Alþingis, sagði í október í fyrra að mikilvægt væri að fá fjármagn til verksins á fjárlögum ársins 2015 og sagðist bjartsýnn á að það næðist. Það fjé fékkst ekki og samkvæmt samgönguáætluninni verður ekki ráðist í framkvæmdina á kjörtímabilinu. Ekki náðist í Höskuld þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðsins.
Alþingi Mest lesið Sveitarstjórn reyni að skrá íbúa úr sveitarfélaginu og ógni grundvallarréttindum Innlent Lögregla kölluð til eftir að bremsuvírar voru klipptir á reiðhjólum barna Innlent Skoða að efla geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi eftir röð áfalla Innlent Hleypur 110 kílómetra á dag til að setja heimsmet Innlent Kjölur ekki á dagskrá Innlent Fólk deili lyfseðlum og „míkródósi“: „Við getum ekki réttlætt þá meðferð“ Innlent Lögregla hafi hlaupið á sig á Siglufirði: „Þetta eru einstök prúðmenni“ Innlent „Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil vanvirðing“ Innlent Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi Innlent Starfsfólk Alcoa vilji setja fyrirtækinu mörk Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn reyni að skrá íbúa úr sveitarfélaginu og ógni grundvallarréttindum Skoða að efla geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi eftir röð áfalla Kjölur ekki á dagskrá Lögregla kölluð til eftir að bremsuvírar voru klipptir á reiðhjólum barna Hleypur 110 kílómetra á dag til að setja heimsmet Fólk deili lyfseðlum og „míkródósi“: „Við getum ekki réttlætt þá meðferð“ Deila lyfseðlum fyrir þyngdarstjórnunarlyf og undankeppni HM hefst Starfsfólk Alcoa vilji setja fyrirtækinu mörk Lögregla hafi hlaupið á sig á Siglufirði: „Þetta eru einstök prúðmenni“ Ætla að rannsaka meint undirboð á kísilmálmi „Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil vanvirðing“ Hélt eiginkonu og fimm börnum í heljargreipum Breyta Korpuskóla til að anna eftirspurn í Klettaskóla Vegabætur á Vestfjörðum opni tækifæri í vetrarferðamennsku Vilja aðgerðir strax Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi „Geta verið dauðsföll, þú veist ekkert hvað er í þessu“ Öllum börnum undir sex mánaða boðin forvörn gegn RS veiru Vildu fá að vita hvort ríkisstyrkir hefðu farið í málsóknir gegn orkuframkvæmdum Vara við ólöglegum megrunarlyfjum sem eru í umferð Konan er fundin Sextán ára kveikti í herbergi sínu Þremur sleppt úr haldi og brotaþoli útskrifaður „Það kemur að því að við lendum í veseni“ Ekki hægt að þaga þegar stjórnmálamenn leika sér að því að særa fram tröllin 252,6 milljónir runnið í ríkissjóð úr dánarbúum án lögerfingja á tíu árum Þrjú söfn í eina sæng Yfirgefið hreysi víkur fyrir hundrað íbúðum Líkamsárás á gistiheimili „Ekkert óeðlilegt við það að endurskoða þetta kerfi“ Sjá meira