Endalaust malar hið illgjarna bull
Fyrsta erindi þessa brags, sem heitir Arnþrúður er full, er svohljóðandi:
Þegar útvarpsmennirnir alræmdu og slyngu
opna fyrir símann ég æli,
því boðið er upp á beina útsendingu
frá brjálæðingahæli.
Þar er hatast við Islam og Evrópusambandið
og aðdáun lýst á fasisma.
Öllu skal fórna fyrir föðurlandið,
fávitaskap og rasisma.
Og áfram mallar hið illgjarna bull
því Arnþrúður er full.
Endalaust mallar hið illgjarna bull
og Arnþrúður er full.
Þetta erindi er hluti 13 pönkópusa Séra Davíðs Þórs sem austfirska pönkhljómsveitin Austurvígstöðvarnar hefur verið að æfa að undanförnu og stefnir í hljóðver með í maí. Þannig að til stendur að gefa þetta út.
Pönkformið kallar á að menn gargi
„Við treystum á að fólk taki þessu létt,“ segir trymbill hljómsveitarinnar, Jón Knútur Ásmundsson í viðtali við Vísi.

„Lífið er of stutt. Þetta er ljóðapönk. En, þetta verður eitthvað. Það verður bara að koma í ljós, eins og sagt er. Um að gera að hafa smá sponk í þessu. Ef ekki er tekin nein áhætta í svona tónlist, þá veit ég ekki af hverju við ættum að vera að brasa í þessu. Pönkformið kallar á að menn gargi,“ segir Jón Knútur brattur.
Kveðskapinn allan má finna hér. Þar er auk þess sem sungið er um Arnþrúði til að mynda kveðið um VG, sem eru „gröð í völd“ en í þeim brag eru Bjarna Ben og Sigríði Á. Andersen ekki vandaðar kveðjurnar og talinn heldur ókræsilegur félagsskapur: „En við erum gröð í völd/og viljum þau strax í kvöld,/þó að gera þurfi samninga við glæpalýð/með grútskítugan skjöld.“
Væringar Davíðs Þórs og Arnþrúðar
Slegið hefur í brýnu milli þeirra Davíðs Þórs og Arnþrúðar Karlsdóttur þá er Davíð Þór gegndi prestskap á Austfjörðum. Hann hefur gagnrýnt Útvarp Sögu harðlega og talað fyrir því að útvarpsstöðin sé beitt viðskiptaþvingunum á þeirri forsendu að þar sé verið að breiða út útlendingahatur. Heyra má viðtal við Séra Davíð Þór þar um hér neðar. (Mínútu 11:53)
Rotið stjórnvald kveikjan
Austurvígstöðvarnar voru stofnaðar á Reyðarfirði sumarið 2016 og eru stofnfélagar Davíð Þór Jónsson, söngvari og laga og textasmiður, Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, bassaleikari og Jón Knútur Ásmundsson, trommari. Smám saman bættust fleiri í hópinn, fyrst Jón Hafliði Sigurjónsson, gítarleikari, þá Þórunn Gréta Sigurðardóttir, hljómborðsleikari og loks Díana Mjöll Sveinsdóttir, söngkona.
Í kynningu á hljómsveitinni segir meðal annars að markmið Austurvígstöðvanna sé að flytja blóðhráa, grimmpólitíska, andfasíska pönktónlist.
„Kveikjan að stofnun sveitarinnar var uppsafnað óþol fyrir pólitískri spillingu og misbeitingu valds á Íslandi. Hvert hneykslismálið af öðru varð sveitinni innblástur og mörg laganna eru bein viðbrögð við atburðum sem afhjúpa siðferðislega rotið stjórnvald. Því miður bendir fátt til að sveitin verði uppiskroppa með yrkisefni í fyrirsjáanlegri framtíð. Á meðan félagslegt óréttlæti veður uppi hafa Austurvígstöðvarnar skuldbundið sig til að öskra sannleikann yfir gauðrifna gítara, drynjandi bassatóna og dúndrandi trommuslátt.“
Hafnfirskur klerkur pönkvæðir Eskifjörð
Vísir innti Jón Knút eftir því hvað í veröldinni ylli því að gamaldags pönk spretti fram nú og á Austfjörðum af öllum stöðum?
Að klerkur úr Hafnarfirði hafi pönkvætt Austfirði?
„Já, ég held að þetta sé nokkuð glögg ályktun. Hann pönkvæddi allavega Eskifjörð. Reyðarfjörður á sér pönksögu. Kristur drepinn hét gamla pönkbandið hans Helga Seljan. Mér finnst engin tilviljun að pönkið eigi rætur á Reyðarfirði. Er ég bjó á Norðfirði fannst mér Reyðarfjörður vera eins og Hlemmur Austfjarða. Og nú bý ég hér.“
Búið að bóka stúdíó
Jón Knútur er sem sagt búsettur á Reyðarfirði og segist fást við eitt og annað en starfi sem skrifstofumaður. Þar hefur hann búið síðan 2009 og undir hag sínum vel. Jón Knútur hefur lagt gjörva hönd á margt og var til að mynda ritstjóri fjölmiðilsins Austurgluggans fyrir margt löngu og var þá völlur á fjölmiðlun eystra.

Norðfirðingum boðið á æfingu
Hinir austfirsku pönkarar eru býsna þéttir og Jón Knútur mótmælir því ekki. „Já. Ég veit. Við komum sjálfum okkur á óvart.“
Hann segir að meðlimir hljómsveitarinnar hafi dreifst um landið og því þurfi skipulag að vera gott þegar koma á saman. Þau sem eru fyrir austan eru byrjuð að æfa fyrir hljóðverið.
„Við spilum í sumar á vel völdum giggum. Eistnaflug bókað. Svo vonandi í Havarínu hjá Svavari og Berglindi. Og eitthvað í bænum líka. En, fyrst ætlum að bjóða Norðfirðingum að mæta á æfingu hjá okkur einhvern tímann á næstunni. Það er skilyrðið fyrir því að æfa í félagsheimilinu Egilsbúð.“