Hið minnsta 26 eru látnir eftir að eldur kom upp í meðferðarstofnun í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, í morgun.
Fjórir voru jafnframt fluttir alvarlega særðir á sjúkrahús. Eldsupptök eru ókunn en á sjónvarpsmyndum má sjá að eldurinn var gríðarlegur. Að sögn Al Jazeera er búið að ráða niðurlögum hans.
Rimlar eru fyrir mörgum gluggum stofnunarinnar, þar sem langt leiddir áfengis- og vímuefnasjúklingar hafa sótt meðferð. Talið er að það hafi orðið til þess að margir sjúklinganna hafi ekki átt neina undankomuleið þegar eldurinn kom upp.
Byggingin er sögð gjörónýtt eftir brunann.
