Jordan Peterson, sem er prófessor í sálfræði við University of Toronto, hefur slegið í gegn með bók sinni Tólf lífsreglur – Mótefni við glundroða en hún trónir um þessar mundir á toppi metsölulista víða á Vesturlöndum. Peterson er líka einn eftirsóttasti fyrirlesari í heimi um þessar mundir og fyllti Silfurbergið í Hörpu tvisvar fyrr í þessum mánuði.
Í tilefni af heimsókn sinni til Íslands fyrr í þessum mánuði ræddi hann um efni bókar sinnar, Tólf lífsreglur, í viðtali í Íslandi í dag á Stöð 2 og Vísi.
Á fundinum fór Peterson yfir lífsreglurnar, heimspeki sína og sat fyrir svörum um þjóðfélagsmál. Eftir erindið gafst nemendum við Oxford-háskóla tækifæri til að bera fram spurningar. Ein af þeim sem notaði tækifærið var ung kanadísk kona sem spurði:
Nú er ég ég kanadísk og við höfum þjóðarleiðtoga sem er eða reynir að minnsta kosti að vera mesti rétttrúnaðar þjóðarleiðtogi (politically correct leader) á jörðinni. Ef þú fengir áheyrn hans í fimm mínútur, hvaða skilaboð hefðir þú handa honum og hvar myndir þú segja að hann væri á villigötum?
Peterson tók sér smá pásu til að svara og fór síðan í löngu máli yfir það að Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada ætti að vera varkár og kannski að hugsa sig tvisvar um áður en hann beitti sér í viðkvæmum málum. Afleiðingarnar gætu aðeins verið góðar fyrir hann sjálfan og engan annan.
Peterson vísaði þar til áherslna Trudeau á að laga réttarstöðu kanadískra frumbyggja en eitt helsta baráttumál hans þegar hann náði kjöri árið 2015 var að leiðrétta réttarstöðu og hagsmuni frumbyggjaættbálka. Trudeau sagði að leiðrétting á réttindum frumbyggja í Kanada væri „heilög skylda“. Deilur um hagsmuni frumbyggja í landinu snúast fyrst og fremst um eignarrétt, landsvæði og sjálfsstjórnarhéruð.
Mjög skiptar skoðanir eru meðal leiðtoga ólíkra frumbyggjaættbálka í Kanada um hugmyndir Trudeau og hversu miklum árangri þær eru líklegar til að skila. Þá hefur hann líka verið gagnryndur fyrir að tala mikið um vandamálið en gera minna.
Peterson sagði á fundinum í Oxford Union að Trudeau ætti að fara varlega. „Ég myndi líklega biðja hann um að íhuga þann möguleika að áherslur hans á ójöfnuð mismunandi ættbálka gætu mögulega haft meiri skaðlegar afleiðingar í för með sér en góðar. Ég skynja að hugmyndin um skaðsemi þessara aðgerða sé ekki einu sinni hugleidd (í Kanada).“
Peterson sagði að Trudeau þyrfti að setja mælistiku á afleiðingar aðgerða sinna og skynja þær til fulls. Róttækar breytingar þyrfti að nálgast af mikilli varkárni því ekki væri ljóst hvaða afleiðingar þær hefðu.
Sjá má upptöku af svarinu hér fyrir neðan.