Merkel og May ræddu um að fresta Brexit Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2019 10:09 Merkel og May nýttu tækifærið á leiðtogafundi í Egyptalandi til að ræða Brexit. Myndin er frá fundi framkvæmdastjórnar ESB í desember. Vísir/EPA
Möguleikinn á að fresta útgöngu Breta úr Evrópusambandinu kom til tals á fundi Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, og Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, á leiðtogafundi í Egyptalandi. Frestunin er þó ekki sögð hafa verið rædd af alvöru. Bretar ætla að ganga úr Evrópusambandinu 29. mars. Enginn útgöngusamningur liggur þó enn fyrir eftir að breska þingið hafnaði samningi sem May bar á borð í janúar. Varað hefur verið við því að útganga án samnings gæti haft mikil og skaðleg áhrif á efnahag Bretlands.Reuters-fréttastofan hefur eftir breskum embættismanni að May og Merkel hafi tæpt á möguleikanum á að fresta útgöngunni þegar þær hittust á leiðtogafundi Evrópusambandsins og Arababandalagsins í Egyptalandi. „Þetta var ekki eitthvað sem forsætisráðherrann briddaði upp á,“ sagði embættismaðurinn sem fullyrti að May vildi ekki fresta útgöngunni. May sagði við fréttamenn þegar hún var á leið til Egyptalands að viðræður hennar við Evrópusambandið hefðu verið jákvæðar og að það væri innan seilingar að ganga úr sambandinu á settum tíma, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Hún hefur lofað þingmönnum atkvæðagreiðslu um útgöngusamning 12. mars.
Bretland Brexit Evrópusambandið Þýskaland Tengdar fréttir Vilja fresta útgöngu Bretlands úr ESB náist samningar ekki Ráðherrar í ríkisstjórn Theresu May telja betra að fresta útgöngu en að hrynja út úr ESB án samnings. 22. febrúar 2019 23:30 Atkvæðagreiðslu þingsins um Brexit frestað Bretland mun ganga út úr Evrópusambandinu 29. mars. 24. febrúar 2019 16:49 Mest lesið Situr í súpunni eftir að hafa selt bankaþjófi jeppa Innlent Reikna með tveggja daga aðalmeðferð í máli Alberts Innlent „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Erlent Gat keypt afmælisblómin eftir að ókunnugur mætti með skóflu Innlent Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Innlent Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Innlent Ferðin á Keflavíkurflugvöll það erfiðasta við utanlandsferðina Innlent Féll til jarðar rétt eftir flugtak Erlent Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Erlent Hæstiréttur ógildir skammir Persónuverndar í garð ÍE Innlent Fleiri fréttir Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Sjö látnir eftir flugslysið í Kentucky Tugir látnir eftir fellibyl á Filippseyjum „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Féll til jarðar rétt eftir flugtak Fundu 1,7 tonn af kókaíni í kafbát á miðju Atlantshafi Náðu myndum af háhyrningum að velta hvítháfum og éta úr þeim lifrina Fer fram og til baka með SNAP Dick Cheney, einn arkítekta Íraksstríðsins, er látinn Með meðvitund fastur í rústunum en lést á leið á sjúkrahús Hyggjast banna klám sem sýnir kyrkingar Ítrekar hótanir sínar og hvetur íbúa til að kjósa Cuomo Ætlar ekki að láta „óða“ Demókrata kúga sig Ódæðin í Súdan mögulega glæpir gegn mannkyninu Handtekin fyrir að leka myndbandi af misþyrmingu á fanga Myndar stjórn með fjarhægriflokkum Miðaldaturn í Róm hrundi að hluta Áfengisneysla „Evrópumeistara í unglingadrykkju“ dregst saman Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Mamdani mælist með gott forskot degi fyrir kosningar Að minnsta kosti 20 látnir eftir stóran skjálfta í Afganistan Segir Bandaríkin ekki geta ráðist inn Konur í Afganistan óttist raunverulega að heimurinn gleymi þeim Annar hinna handteknu látinn laus: „Drepið mig, drepið mig, drepið mig“ Andrew sviptur síðustu hernaðartigninni Fjórir útskrifaðir af spítala en tveir enn í lífshættu Drónaumferð við herstöð í Belgíu Sjá meira
Vilja fresta útgöngu Bretlands úr ESB náist samningar ekki Ráðherrar í ríkisstjórn Theresu May telja betra að fresta útgöngu en að hrynja út úr ESB án samnings. 22. febrúar 2019 23:30
Atkvæðagreiðslu þingsins um Brexit frestað Bretland mun ganga út úr Evrópusambandinu 29. mars. 24. febrúar 2019 16:49