Í vímu með þrjú börn í bílnum Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. júlí 2019 07:38 Ökumaðurinn var stöðvaður í Mosfellsbæ um klukkan níu í gærkvöldi. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar í Mosfellsbæ skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og/eða lyfja. Læknir kom á lögreglustöð og mat ökumanninn óhæfan til aksturs. Í bifreiðinni með ökumanni voru þrjú börn á aldrinum ellefu til tólf ára og var barnavernd kölluð til við afgreiðslu málsins. Þá stöðvaði lögregla bifreið í Fossvogi. Ökumaðurinn sem er aðeins 17 ára er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Málið var afgreitt með aðkomu móður og tilkynningu til Barnaverndar. Lögregla stöðvaði bifreið eftir hraðamælingu í Breiðholti á níunda tímanum. Mældur hraði var 72 km/klst en leyfður hámarkshraði á svæðinu er 30 km/klst. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann var síðan sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Þá var önnur bifreið stöðvuð í Höfðahverfi á níunda tímanum. Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna, vörslu fíkniefna og brot á vopnalögum. Einnig voru skráningarnúmer bifreiðarinnar fjarlægð vegna ástands hennar. Tilkynnt var um umferðarslys um klukkan hálf níu í Höfðahverfi þar sem maður á vespu hafði ekið út af veginum og á staur. Hann hlaut áverka á höfði og var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Maðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hann stýrði vespunni.
Barnavernd Lögreglumál Mosfellsbær Reykjavík Samgönguslys Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Brenndu rangt lík Erlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Fleiri fréttir Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Sjá meira