Erlent

Óska eftir leyfi fyrir bóluefni Pfizer og Biontech í Evrópu

Kjartan Kjartansson skrifar
Bóluefni Pfizer og Biontech er eitt af nokkrum sem eru í þróun og bíða vottunar yfirvalda í Evrópu og Bandaríkjunum.
Bóluefni Pfizer og Biontech er eitt af nokkrum sem eru í þróun og bíða vottunar yfirvalda í Evrópu og Bandaríkjunum. Jakub Porzycki/NurPhoto/Getty

Þýska lyfjafyrirtækið Biontech og bandaríski lyfjarisinn Pfizer hafa óskað eftir leyfi fyrir notkun á bóluefni þeirra gegn Covid-19 í Evrópu. Þau segja að fáist leyfið verði hægt að taka efnið í notkun fyrir lok þessa mánaðar.

Áður hafa fyrirtækin sagt að bóluefnið veiti 95% vernd fyrir Covid-19-smiti. Þau hafa þegar sótt um leyfi til notkunar á efninu í Bandaríkjunum og Bretlandi. Umsóknin til Lyfjastofnunar Evrópu var lögð fram í gær.

Anja Karliczek, menntamála- og rannsóknaráðherra Þýskalands, segir að lyfjastofnunin muni fjalla um umsóknina á opnum fundi 11. desember, að sögn AP-fréttastofunnar.

Lyfjafyrirtækið Moderna sótti einnig um leyfi til neyðarnotkunar á bóluefni sínu í Evrópu og Bandaríkjunum í gær.


Tengdar fréttir

Sækja um neyðarheimild fyrir bóluefni Moderna

Lyfjafyrirtækið Moderna sótti um neyðarheimild fyrir notkun nýs bóluefnis gegn Covid-19 í Evrópu og Bandaríkjunum í dag. Niðurstöður úr tilraunum með bóluefnið benda til þess að það veiti um 94% vernd fyrir smiti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×