Skjálftavirkni nær nú upp af dalnum Nátthaga suður af Fagradalsfjalli sem gefur vísbendingar um að þar liggi syðsti endi kvikugangsins. Þetta kom fram á fundi vísindaráðs almannavarna sem fram fór í dag. Gögn sýna að kvikugangurinn heldur áfram að stækka en nokkur óvissa er um hversu hratt kvikuflæðið er.
Síðustu daga hafa gögn bent til þess að kvikugangurinn hafi verið að færast í átt að suðurströndinni en nýjustu mælingar benda ekki til að gangurinn hafi færst að ráði síðasta sólarhringinn, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.
Líkt og fram hefur komið þarf að gera ráð fyrir því að það geti gosið á svæðinu á meðan kvikugangurinn heldur áfram að stækka.
„Eftir því sem núverandi ástand varir lengur aukast líkur á gosi.“
Hafa bætt við mælistöðvum vegna mögulegrar gasmengunar
Mikil skjálftavirkni hefur verið upp af dalnum Nátthaga frá miðnætti og klukkan 7.43 í morgun mældist skjálfti á svæðinu sem var 5,0 að stærð.
Farið var yfir mögulega gasmengun ef kemur til goss á fundi vísindaráðs Almannavarna. Fór Umhverfisstofnun yfir þau mælitæki sem komið hefur verið fyrir til að fylgjast með mögulegri gasmengun, sem væri til dæmis í formi brennisteinsdíoxíðs (SO2).

„Áður en þessar hræringar hófust var aðeins ein mælistöð á Reykjanesskaga sem mældi SO2 en það var stöð HS Orku í Grindavík. Umhverfisstofnun hefur sett upp tvo mæla til viðbótar, einn í Vogum og annan í Njarðvík og unnið er að því að fjölga enn frekar mælum í Reykjanesbæ til að fylgjast með styrk SO2,“ segir í tilkynningu.
Þá hefur Veðurstofan sett upp dreifilíkan sem spáir fyrir um dreifingu gasmengunar út frá veðurspá hverju sinni. Með mælingum og dreifilíkaninu er hægt að meta áhrif mengunar af völdum mögulegs goss á íbúa á svæðinu og senda í framhaldinu út tilkynningar með skilaboðum um viðeigandi viðbrögð.
Fréttin hefur verið uppfærð.