Innlent

Vilja ræða afléttingar á ríkisstjórnarfundi

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra. Vísir/Stöð 2

Ráðherrar telja rétt að ræða afléttingar á samkomubanni í ljósi faraldursins á ríkisstjórnarfundi á morgun. Sóttvarnalæknir segir að fara þurfi hægt í tilslakanir.

Fjórða bylgja faraldursins er nú á stöðugri niðurleið þar sem sífellt færri greinast smitaðir og flestir þeirra sem greinast smitaðir eru í sóttkví þegar þeir greinast.

Tuttugu og sex greindust með veiruna í gær og meirihluti þeirra var í sóttkví. Átta eru á sjúkrahúsi og enginn á gjörgæslu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, sagðist fyrir helgi telja að ríkisstjórnin ætti að skoða afléttingar í ljósi stöðunnar.

„Ég bind vonir við að ríkistjórnin setjist yfir það í næstu viku og aflétti einhverjum takmörkunum hér. Það þurfa auðvitað að vera gríðarlega miklar ástæður rök fyrir því að takmarka frelsi fólks svo mikið eins og við erum að gera,“ sagði hún.

Ríkisstjórnin fundar á morgun og í samtali við fréttastofu segist Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitastjórnaráðherra sammála dómsmálaráðherra. Í ljósi faraldursins sé morgunljóst að það hljóti að stefna í afléttingar.

Þrátt fyrir að ráðherrar vilji ræða afléttingar segist sóttvarnalæknir ekki hafa skilað nýjum tillögum en núgildandi reglur renna ekki út fyrr en 17. september. Tilslakanir megi þó skoða í ljósi betri stöðu. Góð tök á landamærunum séu forsendur þeirra.

„Ég held að við þurfum að fara hægt eins og áður,“ segir Þórólfur.

Hvað þýðir það? 

„Það þýðir bara að við getum ekki farið að aflétta öllu,“ segir Þórólfur.

Hann segir nauðsynlegt að stíga varlega til jarðar þrátt fyrir að staðan á spítalanum sé betri og enginn á gjörgæslu vegna covid.

„Það má lítið út af bregða eins og við sáum í júlí þegar allt fór á flug eftir að við losuðum um allar tilslakanir innanlands. Það er ekki mikið svigrúm á spítalanum á gjörgæslunni ef spítalinn á að sinna sínu hlutverki varðandi aðra sjúklinga og svo framvegis.“

„Við erum með takmarkanir sem jú sumum finnst vera íþyngjandi en öðrum finnst ekkert vera mikið íþyngjandi,“ segir sóttvarnalæknir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×