Síðast tók þjálfari Þjóðverja æðiskast á Íslandi og nú fæst hér hveitibjór Sindri Sverrisson skrifar 8. september 2021 12:00 Rudi Völler í viðtalinu fræga við Waldemar Hartmann sem sat í þægilegum stól að mati Völlers. Getty/skjáskot Þegar Þjóðverjar hugsa til Íslands og fótbolta þá hugsa þeir um Rudi Völler að hella úr skálum reiði sinnar og láta fjölmiðlamenn heyra það, eftir markalaust jafntefli á Laugardalsvelli árið 2003.
Þetta sagði þýskur blaðamaður á blaðamannafundi Hansi Flick, núverandi landsliðsþjálfara Þýskalands, í gær. Völler, sem var landsliðsþjálfari Þýskalands á árunum 2000-2004, var ekki þekktur fyrir að missa stjórn á skapi sínu. Hann brást hins vegar reiður við gagnrýni á spilamennsku Þjóðverja á Laugardalsvelli fyrir átján árum. Völler sakaði sjónvarpsmann sem hann ræddi við, Waldemar Hartmann, meðal annars um að sitja bara í þægindum á sínum stól, eftir að hafa drukkið þrjá hveitibjóra, og láta eins og það væri ekkert mál að vinna Ísland 5-0. Þjálfaranum var reyndar strax bent á það að hveitibjór fengist ekki á Íslandi og baðst hann afsökunar á þeim ummælum. Hundrað manna sjónvarpsher Þjóðverja sem nú er staddur hér á landi getur aftur á móti pantað sér hveitibjór kjósi hann svo. „Get ekki hlustað á þetta lengur“ Völler stóð hins vegar við önnur ummæli en hann hafði hraunað yfir tvo sjónvarpsmenn; fyrrverandi landsliðsmanninn Günter Netzer og Gerhard Delling. Blaðamaðurinn Karl Blöndal sá viðtalið og þýddi hluta þess í grein í Morgunblaðinu á sínum tíma: „Ég hafna því að alltaf þurfi að draga allt í gegnum skítinn, það er síðasta sort. Þegar við erum komnir á botninn segja þeir að við getum fallið enn neðar. Þetta er kjaftæði, ég get ekki hlustað á þetta lengur,“ hafði Karl meðal annars eftir Völler og benti á að þjálfaranum hefði verið heitt í hamsi og hvað eftir annað líkt greiningu þeirra Netzers og Dellings við „skít“. Eftir jafnteflið á Laugardalsvelli átti Þýskaland á hættu að missa af sæti á EM 2004 en með því að vinna svo Skotland og Ísland á heimavelli enduðu Þjóðverjar efstir í riðlinum. „Held að ég myndi aldrei gera svona hluti“ Flick kvaðst á blaðamannafundinum í gær muna illa eftir viðtalinu við Völler. Aðspurður hvort hann væri týpan í það að láta sína leikmenn heyra það, eða fjölmiðlamenn, svaraði Flick: „Ég er þjálfari og ef ég er óánægður þá segi ég mínu liði hvers ég vænti af þeim. Í slíkum aðstæðum þarf ég að tjá mig í ákveðnum tóni og það er bara skylda þjálfara. Þið getið haldið að ég sé „góður gæi“ en ég kann líka að beita röddinni öðruvísi til að koma skilaboðum áleiðis. Það veltur alltaf á aðstæðum. Fjölmiðlamenn hafa aðrar forsendur og öðrum skyldum að gegna en við. Ég held að ég myndi aldrei gera hlutina svona gagnvart þeim.“
HM 2022 í Katar Fótbolti Tengdar fréttir Herra Áreiðanlegur og ferskur Vindur heiðraðir í Dalnum í dag Tveir af allra dyggustu þjónum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta frá upphafi verða heiðraðir á Laugardalsvelli í kvöld fyrir að ná að spila 100 A-landsleiki. Þeir gætu báðir bætt leikjamet Rúnars Kristinssonar áður en árið er á enda. 8. september 2021 09:01 Andri Lucas gæti byrjað gegn Þýskalandi en „auðvelt að brenna leikmenn“ Andri Lucas Guðjohnsen gæti fengið tækifæri í fremstu víglínu Íslands gegn Þýskalandi á morgun en Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari segist hugsa vandlega um það hvenær og hvar sé best að gefa ungum leikmönnum tækifæri. 7. september 2021 13:44 Jóhann Berg klár í slaginn gegn Þjóðverjum Íslenska karlandsliðið í knattspyrnu saknaði Jóhanns Bergs Guðmundssonar sárlega í leiknum gegn Norður-Makedóníu en mun endurheimta hann í leiknum gegn Þýskalandi á morgun. 7. september 2021 13:15 Vitum að Íslendingarnir leggja afar mikið á sig og fá góðan stuðning Hansi Flick hefur farið frábærlega af stað sem þjálfari þýska karlalandsliðsins í fótbolta, eins og búast mátti við. Hann talaði fallega um íslenska landsliðið fyrir leik liðanna á Laugardalsvelli annað kvöld. 7. september 2021 11:45 Auglýsingar og sjónvarpspallur taka 500 sæti á Laugardalsvelli Gera þarf talsverðar breytingar á Laugardalsvelli og fórna 500 sætum vegna stórrar útsendingar þýskrar sjónvarpsstöðvar frá leik Íslands og Þýskalands í undankeppni HM karla í fótbolta í næsta mánuði. 20. ágúst 2021 11:40 Mest lesið Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Fleiri fréttir Haaland fær frí vegna jarðarfarar Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Grátleg niðurstaða Birnis og Gísla „Við Mosfellingar erum öðruvísi, við erum sérstakir“ Fertugasti leikur Glódísar og félaga í röð án taps Tímabilið búið hjá Rodri? Bara tvær fljótari en Sveindís Fyrirliðinn framlengir og tekur slaginn í Bestu deildinni Uppgjörið: Fjölnir - Afturelding 0-0 | Afturelding fer aftur á Laugardalsvöll Bandaríkjamenn að eignast Everton Leiðrétting löngu eftir EM: Þetta hefði átt að vera víti Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Haaland ekki refsað Viðar Ari fjórbrotinn Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Sjá meira
Herra Áreiðanlegur og ferskur Vindur heiðraðir í Dalnum í dag Tveir af allra dyggustu þjónum íslenska karlalandsliðsins í fótbolta frá upphafi verða heiðraðir á Laugardalsvelli í kvöld fyrir að ná að spila 100 A-landsleiki. Þeir gætu báðir bætt leikjamet Rúnars Kristinssonar áður en árið er á enda. 8. september 2021 09:01
Andri Lucas gæti byrjað gegn Þýskalandi en „auðvelt að brenna leikmenn“ Andri Lucas Guðjohnsen gæti fengið tækifæri í fremstu víglínu Íslands gegn Þýskalandi á morgun en Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari segist hugsa vandlega um það hvenær og hvar sé best að gefa ungum leikmönnum tækifæri. 7. september 2021 13:44
Jóhann Berg klár í slaginn gegn Þjóðverjum Íslenska karlandsliðið í knattspyrnu saknaði Jóhanns Bergs Guðmundssonar sárlega í leiknum gegn Norður-Makedóníu en mun endurheimta hann í leiknum gegn Þýskalandi á morgun. 7. september 2021 13:15
Vitum að Íslendingarnir leggja afar mikið á sig og fá góðan stuðning Hansi Flick hefur farið frábærlega af stað sem þjálfari þýska karlalandsliðsins í fótbolta, eins og búast mátti við. Hann talaði fallega um íslenska landsliðið fyrir leik liðanna á Laugardalsvelli annað kvöld. 7. september 2021 11:45
Auglýsingar og sjónvarpspallur taka 500 sæti á Laugardalsvelli Gera þarf talsverðar breytingar á Laugardalsvelli og fórna 500 sætum vegna stórrar útsendingar þýskrar sjónvarpsstöðvar frá leik Íslands og Þýskalands í undankeppni HM karla í fótbolta í næsta mánuði. 20. ágúst 2021 11:40