Það er fátt erfiðara en að spá fyrir um hvernig leikir Tottenham Hotspur fara. Liðið vann 5-0 sigur á Everton í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Gengi Tottenham hefur verið vægast sagt sveiflukennt undanfarið. Lærisveinar Antonios Conte:
- Unnu 3-2 sigur á Leicester City þann 19. janúar.
- Töpuðu2-0 gegn Chelsea
- Unnu 3-1 sigur á Brighton & Hove Albion
- Töpuðu 3-2 fyrir Southampton
- Töpuðu 2-0 fyrir Wolves
- Unnu 3-2 sigur á Englandsmeisturum Manchester City
- Töpuðu 1-0 fyrir Burnley
- Unnu 4-0 sigur á Leeds United
- Töpuðu 1-0 gegn B-deildarliði Middlesbrough í FA-bikarnum
- Unnu 5-0 sigur á Everton
Miðað við gengið undanfarið mátti búast við sigri í kvöld og sá var vægast sagt öruggur. Michael Keane varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 14. mínútu, Son Heung-Min tvöfaldaði forystuna þremur mínútum síðar og Harry Kane skoraði þriðja mark Tottenham Hotspur áður en fyrri hálfleikur var úti.
Sergio Reguilon bætti við fjórða markinu strax í upphafi síðari hálfleiks og Kane bætti við fimmta markinu ekki löngu síðar. Eftir það virtust heimamenn taka fótinn af bensíngjöfinni og fleiri urðu mörkin því ekki að sinni, lokatölur 5-0.
Tottenham er sem stendur í 7. sæti deildarinnar með 45 stig eftir 26 stig eða jafn mörg og West Ham er með í 6. sæti eftir að hafa leikið 28 leiki. Manchester United er svo í 5. sæti með 47 stig eftir að hafa leikið 28 leiki.