Fjórir tímar höfðu liðið frá því að vélin lenti í Frankfurt þar til líkið fannst. Í grein þýska miðilsins Hessenschau segir að lögreglan í Frankfurt hafi ekki viljað tjá sig frekar um málið. Ekki er vitað hversu lengi manneskjan hafði verið í vélinni þegar flugferðin hófst.
Flugtíminn á milli Teheran og Frankfurt eru fimm klukkutímar og 35 mínútur. Ástandið í Íran er alvarlegt þessa stundina en mikið hefur verið um mótmæli á götum borga landsins. Þar mótmæla íbúar hörðum lögum um klæðaburð kvenna en nýlega lést hin 22 ára gamla Mahsa Amini í haldi lögreglunnar þar í landi. Hún hafði verið handtekinn fyrir að klæðast ekki slæðu á almannafæri.