Valsparið gæti yfirgefið Hlíðarenda Sindri Sverrisson skrifar 2. nóvember 2022 14:30 Elísa Viðarsdóttir hefur orðið Íslandsmeistari með Val þrisvar á síðustu fjórum árum. vísir/Diego Danski miðvörðurinn Rasmus Christiansen hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Val og kærasta hans, landsliðskonan Elísa Viðarsdóttir, kannar nú möguleika sína á að spila sem atvinnumaður erlendis.
Elísa varð Íslandsmeistari annað árið í röð með Val í haust, sem og bikarmeistari, en samningur hennar við Hlíðarendafélagið er að renna út. Í samtali við Vísi segist Elísa, sem á að baki 49 A-landsleiki, nú vera að skoða ásamt umboðsmanni hvaða kostir séu í boði erlendis. Hún búist þó ekki við neinni ákvörðun um framtíðina fyrr en nær dragi jólum. Ljóst er að Rasmusi býðst að spila áfram á Íslandi, með öðru liði í Bestu deildinni, og ef að parið heldur kyrru fyrir á Íslandi verður að teljast líklegt að Elísa verði áfram á Hlíðarenda, þó að hún segist ekki útiloka neitt. Rasmus Christiansen er hættur hjá Val.VÍSIR/BÁRA Valsarar vilja alla vega halda Eyjakonunni sem spilað hefur með Val frá árinu 2016, og áður með sænska liðinu Kristianstad og ÍBV. Áður en að ljóst varð að Rasmus yrði ekki áfram á Hlíðarenda hafði Vísir greint frá því að landi hans, Jesper Juelsgård, Svíinn Sebastian Hedlund og þeir Arnór Smárason og Heiðar Ægisson færu frá Val. Arnór og Heiðar héldu heim á fornar slóðir, til ÍA og Stjörnunnar. Sigurður Kristinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vals, staðfestir svo í samtali við Fótbolta.net að samningur verði ekki endurnýjaður við danska miðjumanninn Lasse Petry sem kom aftur til félagsins í sumar.
Besta deild kvenna Besta deild karla Valur Fótbolti Mest lesið Fylltu í eyðurnar: Vanmetnasti leikmaður deildarinnar? Enski boltinn Einkaviðtal við Carrick: „Hálfgerð tískubylgja sem einkennir fótboltann í dag“ Enski boltinn Fyrirliði Real Madríd þarf að fara í aðgerð á hné Fótbolti Stólarnir ekki í vandræðum á Egilsstöðum Körfubolti Markaóður Stefán Ingi eftirsóttur Fótbolti Dagskráin í dag: VARsjáin, Lokasóknin, íslenskur körfubolti og margt fleira Sport Öllu búin skildi snjóspáin raungerast Fótbolti „Varnarleikurinn er bara stórslys“ Enski boltinn Túfa rekinn frá Val Íslenski boltinn „Eitthvað sem við erum óvanar eftir Þjóðadeildina“ Fótbolti Fleiri fréttir Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Vestri og KR mætast á fyrsta degi vetrar: „Vona að það snjói ekki í nótt“ Lárus Orri framlengir á Skaganum „Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Tekur við af læriföður sínum Snjó kyngir niður á Akureyri og Evrópuleikur færður inn „Veistu hvað leikmaðurinn sagði við mig?“ „Ég þarf bara að láta verkin tala“ Valur og Sigurður Egill senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu Hemmi Hreiðars orðaður við Val Katrín kvödd með fallegum hætti: „Ég hef aldrei séð þetta áður“ Sjáðu þrumufleyg Fred og snöggt svar Stjörnunnar Enginn þjálfari hefur bæði byrjað og klárað Sambandsdeildina Stúkan birti skilaboðin: „Mér finnst þetta ömurlegt“ Uppgjörið: Fram-Stjarnan 1-1 | Úrslitaleikur um Evrópusæti um næstu helgi Sigurður Egill svarar yfirlýsingu Vals: Ómakleg og lágkúruleg setning Valinn dómari ársins í þriðja sinn á síðustu fjórum árum Skoraði meira í sumar en árin þrjú á undan til samans Sjá meira