Ölfusá er vatnsmesta á landsins. Áin er núna meira og minna öll ísilögð og klakastíflur hafa myndast í ánni. Almannavarnaráð Árborgar kom saman í morgun vegna ástandsins og hlákunnar, sem spáð er á föstudaginn.
„Áin er ísilögð hér upp með öllu og það hefur safnast mikið íshröngl fyrir og elstu menn muna ekki annað eins af ís margir hverjir, þannig að það verður úr vöndu að ráða þegar það fer að hlána. Það spáir mikilli rigningu og talsverðum hlýindum en það er spurning eftir svona mánaðar frost, hvort að það sé nógu langt til að hreyfa við því en þetta veit ég auðvitað ekki,“ segir Kjartan Björnsson, formaður Almannavarnaráðs Árborgar.
Starfsmenn Árborgar voru að kanna í dag hvort dælur neðan jarðar í kringum Ölfusá væru ekki allar í lagi þurfi að nota þær.
Mikið flóð var í ánni árin 1948 og 1968.
„Það flæddi hér þá út um allt eins og yfir Þóristúnið og alveg upp að Austurvegi, þannig að það er alveg von á því ef það verður mikið flóð en við vonum að til þess komi ekki,” bætir Kjartan við.

Og Kjartan á þessi skilaboð til íbúa á Selfossi.
„Við viljum bara hvetja íbúana að fara í forvarnir, losa niðurföll og annað slíkt og auðvitað skemmir það ekki fyrir hjá þeim, sem eiga heima næst ánni að setja sandpoka fyrir niðurföll ef af yrði en ég tek það alveg skýrt fram að við erum í rauninni bara að undirbúa viðbragðið,” segir Kjartan og bætir við.
„Og svo síðdegis á fimmtudag þá mælumst við auðvitað til þess þegar það fer að hlána á föstudaginn að fólk sé ekki á óþarfa vappi í kringum ána, því auðvitað vitum við ekkert hvað getur gerst og það er bara gott að hafa varan á.”