Slíta samstarfi við Pennann/Eymundsson vegna afstöðu á verkfallsdegi kvenna og kvára Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. október 2023 15:17 Til stóð að halda útgáfuhóf í Pennanum/Eymundsson til að fagna útgáfu bókar Sveindísar Jane Jónsdóttur í dag. Samsett Knattspyrnuverslunin Heimavöllurinn hefur ákveðið að draga sig úr samstarfi við Pennann/Eymundsson vegna afstöðu fyrirtækisins á verkfallsdegi kvenna og kvára.
Heimavöllurinn sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í dag þar sem greint er frá þessu. Þar kemur fram að afstaða Pennans/Eymundsson stríði gegn gildum Heimavallarins og því hafi þessi ákvörðun verið tekin. „Til stóð að Heimavöllurinn myndi halda útgáfuhóf í dag laugardaginn 28. október í samstarfi við Pennann/Eymundsson til að fagna útgáfu bókar Sveindísar Jane Jónsdóttur, leikmanns íslenska landsliðsins og Wolfsburg í knattspyrnu,“ segir í yfirlýsingu Heimavallarins. „Í ljósi frétta um afstöðu Pennans/Eymundsson á verkfallsdegi kvenna og kvára þann 24. október síðastliðinn höfum við á Heimavellinum ákveðið að draga okkur út úr samstarfinu með Pennanum/Eymundsson þar sem afstaða þeirra stríðir gegn gildum Heimavallarins og því sem við stöndum fyrir. Við höfum reynt að fá frekari svör frá Pennanum/Eymundsson án árangurs.“ Heimavöllurinn segir enn fremur að markmið hans hafi alla tíð verið að stuðla að jafnrétti og auka fjölbreytni fyrirmynda í knattspyrnu. „Markmið verslunar Heimavallarins hefur frá upphafi verið að stuðla að jafnrétti og auka fjölbreytni fyrirmynda í knattspyrnu. Þetta höfum við gert eð því að standa við bakið á íslenskum knattspyrnukonum, segja sögu þeirra, auka sýnileika þeirra og halda viðburði þar sem að ungir knattspyrnuiðkendur geta hitt átrúnaðargoð og fyrirmyndir sínar augliti til auglitis.“ „Við stöndum fullum fetum við bakið á Sveindísi og munum styðja hana í öllum hennar verkefnum. Við hlökkum til að halda áfram að aðstoða Sveindísi við afhendingu, kynningu og sölu á bókinni,“ segir í yfirlýsingu heimavallarins.
Fótbolti Mest lesið Gagnrýndu HSÍ: „Höfum ekki efni á að koma svona fram við okkar besta fólk“ Handbolti Króatíski herinn lék íslenska þjóðsönginn til heiðurs Degi Handbolti Meistarar verja Brynjar: „Allt er þetta ástríða og væntumþykja“ Körfubolti Liverpool væri ekki á toppnum án VAR Enski boltinn Newcastle lét draum Víkings rætast Enski boltinn Stelpurnar stóðu í Tyrkjum fyrir framan troðfulla höll Körfubolti Greindi frá válegum tíðindum Fótbolti Ferðast fimm hundruð kílómetra á dag fyrir kærustuna Fótbolti Martröð fyrir Man. Utd og Slátrarann Enski boltinn Íslensku stelpurnar vinsælar í Izmit Körfubolti Fleiri fréttir Hætta við leikinn í miðnætursólinni Framarar lausir við Frambanann Sjáðu mörkin sem skutu Newcastle á Wembley Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Newcastle gerði grín að afsökun Arteta Martröð fyrir Man. Utd og Slátrarann Greindi frá válegum tíðindum Newcastle lét draum Víkings rætast U21-strákarnir í riðli með Frökkum Farinn að sakna landsliðsins eftir nokkurra ára fjarveru Liverpool væri ekki á toppnum án VAR Atvinnumaður í fótbolta bæði í alvörunni og í tölvunni Ferðast fimm hundruð kílómetra á dag fyrir kærustuna Tvítugur strákur kom Real Madrid til bjargar Gömlu Chelsea mennirnir skutu AC Milan áfram í bikarnum Newcastle á Wembley eftir aðra kennslustund í að refsa Arsenal Dagný og félagar komust ekki í úrslitaleikinn Duttu út úr bikarnum á sigurmarki í uppbótatíma Guardiola þarf skilja einn nýju mannanna eftir útundan Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Segir að Ronaldo eigi þátt í óförum Rashford Risavaxið verkefni Arsenal í norðrinu: „Leggjum allt undir“ Útskýrði af hverju Napoli fékk ekki Garnacho Trent úr leik en mætir mögulega Guðlaugi Victori Arteta vonsvikinn Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Markahrókur City varð fyrir kvenhatri og rasisma Þunnskipuð og ísköld framlína ekki endilega stærsta vandamál Amorim Aron Sig nýr fyrirliði KR Sjá meira