Býður sig ekki fram til formanns og styður Svandísi Eiður Þór Árnason skrifar 23. september 2024 18:23 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra sækist eftir því að gegna áfram embætti varaformanns VG. Vísir/Bjarni Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra og starfandi formaður Vinstri grænna (VG) ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssætið á komandi landsfundi. Í stað þess vill hann sjá Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra og þingmann VG leiða flokkinn en hún hefur ekki tilkynnt framboð.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur verið án kjörins formanns frá því að Katrín Jakobsdóttir steig til hliðar sem formaður og forsætisráðherra í apríl samhliða framboði sínu til embættis forseta Íslands. Þá tók Guðmundur Ingi við sem starfandi formaður VG en hann gegndi áður stöðu varaformanns. Hann hyggst sækjast eftir að gegna því embætti áfram eftir næsta landsfund. Guðmundur Ingi tilkynnir þetta í færslu á Facebook-síðu sinni. Landsfundur Vinstri grænna fer fram þann 4. til 6. október næstkomandi. Áfram oddviti í Kraganum „Ég er ekki að hætta í stjórnmálum, langt því frá. Ég mun áfram bjóða fram krafta mína sem varaformaður hreyfingarinnar og oddviti VG í Kraganum. Ég brenn fyrir umhverfismálum, mannréttindum og félagslegum áherslum og vil áfram vinna þeim baráttumálum brautargengi í íslensku samfélagi,“ segir Guðmundur Ingi í tilkynningu sinni. Hann segir það hafa verið heiður að leiða flokkinn frá því í vor en hann treysti engum betur til þess verks en Svandísi Svavarsdóttur. Guðmundur Ingi segist hafa greint henni frá þessari afstöðu sinni. Vill sjá sterka félagshyggjustjórn „Ég er þakklátur fyrir þau fjölmörgu tækifæri sem ég hef fengið til að hafa áhrif. Allar friðlýsingarnar sem umhverfisráðherra, lögfesting kolefnishlutleysis Íslands og það að skylda fyrirtæki og almenning til að flokka sorp. Og, í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu að koma á réttlátara og einfaldara örorkulífeyriskerfi sem snertir fólk um land allt og beðið hefur verið eftir í fjöldamörg ár – og ná í gegn fyrstu landsáætluninni í málefnum fatlaðs fólks. Nú hillir auk þess undir fyrstu stefnu Íslands í málefnum innflytjenda. Fleiri og sterkari raddir þarf til að tala fyrir náttúrunni, réttindum hinsegin fólks, kvenna, fatlaðs fólks og innflytjenda, og berjast fyrir vinstri gildum þar sem við fáum öll raunverulega að vera með í samfélaginu,“ skrifar Guðmundur Ingi. Hann kallar eftir því að „sterk félagshyggjustjórn“ sitji í Stjórnarráðinu á næsta kjörtímabili og vilji eiga þátt í því að gera það að veruleika. Fréttin hefur verið uppfærð.
Vinstri græn Tengdar fréttir Segir afsögn sína heillaspor fyrir VG Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir afsögn sína sem formanns flokksins gefa Vinstri grænum tækifæri og svigrúm til breytinga og að brottför sín úr flokknum verði heillaspor. 7. apríl 2024 12:10 Katrín gefur kost á sér Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til embættis forseta Íslands. 5. apríl 2024 13:06 Mest lesið Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Innlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Innlent Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Innlent Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Innlent Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Ringulreið á lánamarkaði Innlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fleiri fréttir Þarf ekki að skerða heitt vatn í vetur vegna nýrrar borholu Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur „Þetta er ekki átak til einhverra daga eða vikna“ Skilur að fólk sé hugsi yfir mögulegum skyldleika við sæðisgjöf Úkraínumenn berjist með „aðra hönd bundna fyrir aftan bak“ Ringulreið á lánamarkaði Jódís fer fram gegn Guðmundi Inga í varaformann VG Býður sig ekki fram til formanns og styður Svandísi Ótti um allsherjarstríð, ringulreið á lánamarkaði og íslenskir sæðisgjafar „Vonumst til að sem flestir fari svo í óverðtryggð íbúðalán“ Söfnuðu um níu milljónum í minningu Bryndísar Klöru Leituðu á stóru svæði en fundu ekki fleiri hvítabirni Situr undir gelti, urri og að vera kölluð api Telja Ísland með „hættuleg viðhorf“ gagnvart Rússlandi Með mörg þúsund evrur af illa fengnu fé Íslendingur í Ísrael óskaði eftir aðstoð utanríkisráðuneytisins Brotist inn í tvær verslanir sömu nóttina Guðrún skýst upp fyrir Katrínu Vetrarfærð á fjallvegum norðaustanlands Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Kanna hvort fleiri bjarndýr leynist fyrir vestan Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Máttu vita að eiturlyfjasalinn þeirra væri að flytja inn eiturlyf Ungmenni í viðkvæmri stöðu hagnýtt í afbrot hér á landi Ógn Rússa við Norðurlönd og Eystrasaltsríki rædd í HR Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Lögreglan segir hóp ungmenna hagnýttan í skipulagða brotastarfsemi Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Sjá meira
Segir afsögn sína heillaspor fyrir VG Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir afsögn sína sem formanns flokksins gefa Vinstri grænum tækifæri og svigrúm til breytinga og að brottför sín úr flokknum verði heillaspor. 7. apríl 2024 12:10
Katrín gefur kost á sér Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tilkynnt að hún gefi kost á sér til embættis forseta Íslands. 5. apríl 2024 13:06