Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Jón Þór Stefánsson skrifar 22. nóvember 2024 15:43 Aksturinn var um Hvalfjörð í Kjósarhrepp. Vísir/Vilhelm Karlmanni á áttræðisaldri er gert að greiða hundrað þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna umferðarlagabrota og vopnalagabrots, en hann var sýknaður af ákæru um að ógna lífi og heilsu bóndahjóna með vítaverðum akstri.
Það er niðurstaða Landsréttar, en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að annarri niðurstöðu. Maðurinn var ákærður fyrir umferðarlaga- og hættubrot fyrir að aka tæplega tuttugu ára gamalli Toyotu Corollu, án ökuréttinda, með vítaverðum og ógnandi hætti í átt að bíl hjónanna, nýlegum Dodge Ram, um Kjósarhrepp þann 24. júní 2024. Honum var gefið að sök að hefja eftirför á eftir hjónunum um Þúfukotsveg. Eftirförin hafi verið um tíu kílómetra langan vegarkafla. Hann hafi farið að Meðalfellslandi og á Þjóðveg 47, og reynt að þvinga hjónin af veginum og stofnað lífi og heilsu þeirra í hættu með ófyrirleitnum hætti. „Ætlaði að fórna sjálfum sér og losna við okkur líka“ Í aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur kom fram að hjónin og maðurinn væru nágrannar. Þau gáfu skýrslu í héraði og útskýrðu að þau hefðu átt í deilum um landsvæði, en maðurinn væri fyrrverandi eigandi jarðar þeirra. Þá væri atvikið sem málið varðaði einungis eitt af mörgum málum sem hefði komið upp á milli þeirra. Fram kom í málinu að deilur fólksins hefðu áður ratað í dómstóla. Dómurinn féll í Landsrétti í gær.Vísir/Vilhelm „Hann ætlaði sér eitthvað með okkur. Ég veit ekki hvað það er. Ég veit það eftir fyrri reynslu og samskipti við hann,“ sagði bóndinn í skýrslugjöf í héraði, og konan hans tók undir: „Hann kemur eins og hann ætli gjörsamlega að gera út af við okkur. Það fyrsta sem maður hugsaði var að hann ætlaði að fórna sjálfum sér og losna við okkur líka.“ Vísir fjallaði ítarlega um aðalmeðferð málsins í héraði, en þá umfjöllun má finna hér. Bóndinn hafi reynt að keyra yfir hvolp Maðurinn vildi ekki gefa skýrslu í héraðsdómi, en gerði það hins vegar í Landsrétti. Þar sagðist hann hafa verið nýkominn úr baði þegar hann varð var við bóndann á trukknum. Hann hafi opnað út fáklæddur og þá hafi hvolpur sem hann var að passa hlaupið út. Maðurinn sagði bóndann hafa verið að agnúast út í hundinn og reynt að keyra yfir hann, og gert það þrisvar. Bóndinn hafi síðan stöðvað bílinn, og hundurinn þá verið undir henni. Þá hafi maðurinn hlaupið út og viljað ræða við bóndann sem hafi orðið hræddur og ekið í burtu. Hundurinn hafi komið skelkaður til baka með brotið skottið. Maðurinn hafi þá farið á eftir bóndanum á bíl og ætlað að ræða við hann um það sem gerðist þarna á undan. Bóndinn hafi ekið í burtu og þá hafi maðurinn ákveðið aða kaupa sér sígarettur í Kaffi Kjós, og ekið í átt að versluninni en elt bóndann um leið. Hann lýsti akstri sínum ekki sem ógnvænlegum líkt og bóndahjónin gerðu. Hann neitaði því að hann hafi ekið með vítaverðum hætti og reynt að þvinga hjónin af veginum. Á þessari leið hefði bóndinn ekið á 35 kílómetra hraða á vegi þar sem hámarkshraði er níutíu, og maðurinn verið fastur á eftir þeim. Maðurinn leið svo á að hjónin væru að tefja hann, en hann ætlaði á Kaffi Kjós fyrir lokun. Því reyndi hann að taka fram úr, en þau ekið í veg fyrir hann og hann ekið út af veginum skammt frá bænum Sogni. Hann hafi þó komist aftur upp á veginn og síðan ekið á Kaffi Kjós sem reyndist lokað. Flúði lögregluna Síðan hafi hann ekið áfram og orðið var við fullt af lögreglubílum, mótorhjólum og sjúkrabíl. Hann taldi að slys hefði orðið í nágrenninu og hann drifið sig og stöðvað bílinn til að hleypa lögreglunni fram úr sér. En stór svartur lögreglubíll hafi staðnæmst við hlið hans og úr bílnum kom maður með byssu sem hafi rifið hann úr bílnum og handtekið. Þónokkrir lögreglumenn gáfu skýrslu fyrir dómi. Einhverjir þeirra höfðu elt manninn á mótorhjólum.Vísir/Vilhelm Maðurinn var líka ákærður fyrir þessi afskipti við lögregluna. Honum var gefið að sök að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva bílinn þegar hún veitti honum eftirför um Hvalfjörðinn. Þá var hann líka ákærður fyrir vopnalagabrot með því að hafa í fórum sínum hníf með átján sentímetra löngu blaði. Tvö myndbönd sem bóndahjónin tóku á meðan meint eftirför fór fram voru á meðal gagna málsins. Að mati héraðsdóms sýndu þau hvernig maðurinn stofnaði með ásetningi lífi og heilsu hjónanna í hættu. Í héraði var maðurinn sakfelldur fyrir öll brotin. Hann hlaut fjögurra mánaða dóm, skilorðsbundinn til tveggja ára. Þá var hann sviptur ökuréttindum ævilangt og gert að greiða hjónunum hvoru um sig 400 þúsund krónur. Ram fjórum sinnum þyngri en Corolla Landsréttur komst að annarri niðurstöðu. Í dómnum er bent á að maðurinn hafi verið á 19 ára gamalli Toyota Corollu, en hjónin á nýjum Dodge Ram 3500. Mikill stærðarmunur sé á þessum bílum, en Raminn er sagður tæplega fjórum sinnum þyngri en Corollan, og mun lengri, hærri og breiðari. Þar að auki hafi bílnum verið breytt og hann sé á fjörutíu tommu dekkjum. Dómurinn gat ekki fallist á að akstur mannsins sem náðist á upptöku hafi verið vítaverður og ógnandi. Hann hafi þó verið ögrandi. Það var þó mat Landsréttar að vegna stærðarmunar bílanna hafi maðurinn í raun ekki verið í aðstöðu til að þvinga hjónin af veginum. Hann var því sýknaður fyrir ákærunni sem varðaði vítaverðan akstur, nema að því leyti að hann var ekki með ökuréttindi. Hann var síðan sakfelldur fyrir hin brotin, að koma sér undan lögreglu og vopnalagabrotið. Niðurstaða Landsréttar var sú að maðurinn skyldi greiða 100 þúsund krónur í sekt til ríkissjóð innan fjögurra vikna, ellegar sitja í fangelsi í sex daga. Þá var bótakröfum hjónanna vísað frá dómi.
Dómsmál Umferðaröryggi Kjósarhreppur Nágrannadeilur Mest lesið „Þetta er hættulegt ef við viljum áfram búa í frjálslyndu lýðræðissamfélagi“ Innlent Minni tekjur góðar fréttir Innlent Gríðarlega löng röð í verslun Nocco Lífið Misskilningur um losunarmarkmið „stórkostlegur áfellisdómur“ Innlent „Algjört vandræðamál og sorglegt“ Innlent Auka sýnileika milli rýma á leikskólum Innlent Árekstur rútu rannsakaður sem manndráp af gáleysi Erlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Herja á umsækjendur um alþjóðlega vernd Innlent Hætta notkun metanhemjandi íblöndunarefnis Erlent Fleiri fréttir Göngugarpar munu mynda Ljósafoss niður Esjuna Eftirlit í skötulíki, Trump hótar málsókn og Ljósafossgangan Minni tekjur góðar fréttir Ölvun og hávaði í heimahúsi Misskilningur um losunarmarkmið „stórkostlegur áfellisdómur“ „Þetta er hættulegt ef við viljum áfram búa í frjálslyndu lýðræðissamfélagi“ Auka sýnileika milli rýma á leikskólum „Algjört vandræðamál og sorglegt“ Þau eru nýir talsmenn fatlaðs fólks á þingi Herja á umsækjendur um alþjóðlega vernd Hælisleitendur og börn í auknum mæli notuð sem burðardýr Sameining geti aukið aðdráttarafl fyrir nýja íbúa Arnfríður og Víðir Smári tímabundið í Landsrétt Eldur í Sorpu á Granda Keyrði aftan á strætisvagn Vegagerðin býður út for- og verkhönnun Fljótaganga Safna undirskriftum til að styðja Fjarðarheiðargöng Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur í Garðabæ Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Sjö sækja um tvær lausar stöður Minni hagvöxtur og hjólhýsin mögulega í Skerjafjörðinn Ætla að flytja starfsemi Vogs Tvöfalt fleiri skipulagðir brotahópar en fyrir tíu árum Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Skortir lækna í Breiðholti Staðfesti tveggja ára dóm vegna nauðgunar í jólateiti fyrir austan Fleiri sem ekki verja neinum tíma í lestur Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Helgi Pétursson er látinn Sjá meira