Víkingur fór í vetur lengra en nokkurt íslenskt félag hefur gert í Evrópukeppni áður og féll naumlega úr leik fyrir gríska stórliðinu Panathinaikos í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar. Um var að ræða fyrstu leikina undir stjórn Sölva sem segir Víkinga geta borið höfuðið hátt.
„Það segir dálítið mikið að við göngum út úr þessari keppni, eftir að hafa rétt misst af 16-liða úrslitum, svona svekktir. Það sýnir kannski bara hvaða stað við erum komnir á að geta gefið Panathinaikos þetta góðan leik um þetta sæti,“
„Við horfum til baka mjög stoltir af frammistöðu okkar í Sambandsdeildinni. En nú er það búið og við getum farið að einbeita okkur að deildinni. Það eru spennandi tímar fram undan,“ segir Sölvi Geir í samtali við íþróttadeild.
Lengsta tímabil íslensks liðs
Tímabil Víkings í fyrra var því það lengsta í sögunni, frá undirbúningstímabili fram í febrúar í ár varði það í meira en tólf mánuði. Leikmenn og þjálfarar tóku stutt frí í kringum jól og áramót en enginn tími gefst til að slaka á nú, þegar aðeins um fimm vikur eru í fyrsta leik í Bestu deildinni.
Því tekur við frábrugðið undirbúningstímabil þar sem félagið þurfti að segja sig úr Lengjubikarnum, sem öll önnur lið í Bestu deildinni taka þátt í.
„Við þurftum að segja okkur úr Lengjubikarnum því það var bara ekki hægt að púsla þessum leikjum saman. Með þetta einvígi í Sambandsdeildinni inni í þessu öllu. Þannig að við höfum bara þurft að finna leiðir til þess að finna æfingaleiki. Svo förum við í æfingaferð 2. mars og svo erum við búnir að stilla upp æfingaleikjum eftir hana,“ segir Sölvi.
Einn mótsleikur fram að deild
Víkingar munu því ekki spila neina mótsleiki fram á deildarkeppninni, að einum undanskildum. Bose-mótið klárast yfirleitt fyrir áramót en aðeins úrslitaleikur þess stendur eftir. Sá fer ekki fram fyrr en skömmu fyrir mót og vonast Sölvi eftir að þeim leik muni líkja til
„Svo á eftir að spila úrslitaleikinn í Bose-mótinu sem verður vonandi að stærri gerðinni og verður svolítið eins og meistarar meistaranna leikirnir. Úrslitaleikurinn er rétt fyrir mót við KR, ég held það sé spennandi að mæta á hann og það verði flottur leikur,“ segir Sölvi Geir.
Fréttina má sjá í spilaranum að ofan .