Leita enn sönnunargagna og rannsaka bílinn sem var notaður Lovísa Arnardóttir skrifar 12. mars 2025 10:06 Maðurinn fannst þungt haldinn á göngustíg í Gufunesi. Vísir/Anton Brink Lögreglan á Suðurlandi framkvæmir nú rannsókn á bíl sem, samkvæmt heimildum, er talinn hafa verið notaður til að ferja mann á sjötugsaldri frá Þorlákshöfn og til Reykjavíkur þar sem gengið var í skrokk á honum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er enn leitað sönnunargagna í málinu.
Maður á sjötugsaldri fannst þungt haldinn á göngustíg í Gufunesi snemma í gærmorgun og lést samkvæmt tilkynningu lögreglunnar stuttu eftir komu á spítala. Lögregla hóf leit að manninum eftir að þeim hafði verið tilkynnt að hann hefði horfið af heimili sínu á mánudagskvöld og óttast væri um hann. Samkvæmt tilkynningu grunaði lögreglu snemma að um frelsissviptingu væri að ræða. Sjá einnig: Maður handtekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að alls hafi átta verið handtekin í málinu. Fimm voru handtekin um hádegisbil í gær og svo þrjú seinni partinn eða um kvöldið. Þremur var sleppt úr haldi að skýrslutöku lokinni. Fram kemur í tilkynningu lögreglunnar að rannsókn beinist að frelsissviptingu, fjárkúgun og manndrápi. Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að tekin verði ákvörðun síðar í dag hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir hinum handteknu. Í fréttum í gær var talað um að maðurinn hefði verið tekinn á leikvöll í Gufunesi. Það hefur þó ekki verið staðfest af lögreglu. Aðeins kemur fram í þeirra tilkynningu að maðurinn hafi fundist í Gufunesi. Vísir/Anton Brink Margdæmdur ofbeldismaður Lögreglustjórinn á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en líkt og áður hefur verið greint frá hafa lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Vesturlandi auk sérsveitar ríkislögreglustjóra einnig komið að henni. Umfangsmikil leit fór fram í gær í Kópavogi að lokinni eftirför lögreglunnar. Einn var handtekinn í kjölfar eftirfarar og svo leitaði lögregla að konu sem var handtekin um klukkan 21. Sjá einnig: Nokkur hinna handteknu tengjast tálbeituhópum Einn þeirra sem hefur verið handtekinn er margdæmdur ofbeldismaður. Þá hafa einhverjir í hópnum samkvæmt heimildum fréttastofu tengsl við tálbeituhópa sem hafa starfað síðustu vikur og mánuði. Málið er þó aðeins sagt tengjast fjárkúgun. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Ef vaktin birtist ekki hér að neðan er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðuna.
Lögreglumál Ölfus Kópavogur Reykjavík Mest lesið Krefjast gæsluvarðhalds Innlent Vaktin: Fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést skömmu síðar Innlent Stórfelldur laxadauði í Berufirði Innlent Rannsókn lögreglu enn á frumstigi Innlent Lögregla lýsir eftir manni Innlent Rússar gefa lítið fyrir niðurstöðu fundar Bandaríkjanna og Úkraínu Erlent Framstuðarinn horfinn í morgun: „Ég á enga óvini svo ég viti til“ Innlent Hörfa frá Kúrsk Erlent Mætt í sína fyrstu opinberu heimsókn innanlands Innlent Demokraatit og Naleraq stærstir eftir kosningarnar á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Samþykkt að fella 700 til 900 tré í næsta áfanga Ráðherra mátti sín lítils gegn ríkinu Fangelsisdómar Zúistabræðra staðfestir Lögregla lýsir eftir manni Bæjarfulltrúum í Suðurnesjabæ fækkað um tvo Bindur vonir við að aukið fjármagn fáist í viðhald fyrir vestan Ekki meira en 350 grömm af rauðu kjöti á viku og sem minnst af sykri Lögregla segir rannsókn manndrápsins enn á frumstigi Rannsókn lögreglu enn á frumstigi Mætt í sína fyrstu opinberu heimsókn innanlands Mæla gegn því að ungbörn séu hnykkt Bein útsending: Landlæknir endurskoðar ráð sín um mataræði Krefjast gæsluvarðhalds Almyrkvi á tungli snemma á föstudagsmorgun Stórfelldur laxadauði í Berufirði Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Svefnlyf ávanabindandi og auki hættu á heilabilun Framstuðarinn horfinn í morgun: „Ég á enga óvini svo ég viti til“ Vinna hafin við nýja göngubrú í Vogahverfinu „Núna reynir auðvitað á Rússa“ Nokkur hinna handteknu tengjast tálbeituhópum Manndráp, varnardrónar og umferðaröngþveiti við Látrabjarg Vaktin: Fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést skömmu síðar Maður handtekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu Fimm í haldi vegna rannsóknar á andláti Rúmmál kviku ekki verið meira frá því goshrinan hófst 2023 Skoða að taka í notkun ómannaðan eftirlitskafbát Níu af þrettán styrkjum fara í kjördæmi ráðherra Bjarni Þór segir Höllu keyra á aldursfordómum í kosningabaráttu Telur tillögu um afnám áminningar á leið í ruslið Sjá meira