Viðskipti innlent

Miðlunar­lónin standa öll mun betur en á horfðist

Atli Ísleifsson skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. Vísir/Vilhelm

Miðlunarlón Landsvirkjunar standa öll mun betur en á horfðist eftir erfiða byrjun yfirstandandi vatnsárs og hefur nú ræst vel úr að undanförnu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun þar sem segir að við séum áfram háð duttlungum náttúrunnar. Horfur hafi þó breyst mjög til batnaðar frá því í ársbyrjun.

„Vatnsár Landsvirkjunar hefst 1. október og þann dag í fyrra var útlitið ekki bjart. Eftir kalt og þurrt sumar urðum við að tilkynna stórnotendum syðra að skerða þyrfti orku til þeirra. Sú staða skánaði strax í nóvember, þegar innrennsli jókst í miðlunarlón. Það hélt áfram næstu mánuði og í byrjun febrúar var hægt að aflétta öllum skerðingum, eftir óvenju gjöfula vetrarmánuði.

Snjór og jökulbráðnun

Staða Blöndulóns og Hálslóns er nú með besta móti í sögulegu samhengi. Um liðin áramót var staða Þórisvatns viðkvæm, en frá þeim tíma hefur hins vegar enginn niðurdráttur verið þar. Hlýr og vætusamur vetur hefur því bætt stöðuna verulega. Því til viðbótar er snjóstaða á hálendinu með ágætum, auk þess sem vænta má jökulbráðnunar í sumar. Þar er þó ekki á vísan að róa, eins og sannaðist sl. sumar.

Þegar allt er lagt saman teljum við ágætar líkur á góðum miðlunarforða næsta haust, ef tíðin verður áfram hagfelld. Þessar breytingar koma sér vel núna, þegar við sjáum t.d. fram á að þurfa að stöðva vinnslu í Sigöldustöð um þriggja mánaða skeið á næsta ári, vegna stækkunar stöðvarinnar,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×