Innlent

Bein út­sending: Ástralski sundkappinn kemur á land í Naut­hóls­vík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ross Edgley og tækið sem er notað til að safna sýnum úr sjónum.
Ross Edgley og tækið sem er notað til að safna sýnum úr sjónum. Bjarni/aðsend

Heimsfrægur sundkappi frá Ástralíu lýkur tæplega fjögurra mánaða sundi sínu í kringum Ísland í Nauthólsvík í dag. Vísir verður í beinni frá lokasprettinum.

Sundkappinn Ross Edgley hefur sett hvert heimsmetið á fætur öðru og líkur nú enn einni áskoruninni; sextán hundruð kílómetra sundi í kringum Ísland. Hann lagði af stað frá Garði á Suðurnesjum þann 16. maí.

Tómas Arnar Þorláksson fréttamaður Sýnar hefur fylgst vel með sundi Ástralans og tekur á móti honum. Fróðlegt verður að sjá stöðuna á tungunni á kappanum eftir svo langa veru í söltum sjó.

Beina útsendingu má sjá hér að neðan en reiknað er með því að kappinn komi á fast land í Nauthólsvík um hálf fjögur leytið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×