

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Bergþór áfram þingflokksformaður
Bergþór Ólason hefur verið kjörinn þingflokksformaður Miðflokksins. Hann var einnig þingflokksformaður á síðasta kjörtímabili. Karl Gauti Hjaltason verður varaformaður stjórnar þingflokks og Ingibjörg Davíðsdóttir verður ritari.

Stjórnmálamenn þurfa ekki að lepja dauðann úr skel
RÚV greindi frá því nú rétt í þessu að borgarfulltrúar sem kjörnir voru á þing í nýafstöðnum kosningum fengu hver um sig hátt í fimm milljóna króna launagreiðslur um mánaðamótin.

Óljóst hve mörg atkvæði voru í pappakassanum sem barst of seint
Ekki liggur fyrir hversu mörg utankjörfundaratkvæði voru í pappakassa sem barst yfirkjörstjórn í Norðausturkjördæmi ellefu dögum eftir alþingiskosningar. Formaður yfirkjörstjórnar vonar að dreginn verði lærdómur af uppákomunni og verkferlar hugsaðir upp á nýtt.

Lögheimili á landsbyggðinni
Nokkuð merkileg umræða er í gangi þessa dagana um aðsetur og lögheimili alþingismanna. Kemur ekki á óvart að umræðan sé nokkuð beinskeytt og óvægin af hendi þess hóps sem fór halloka í nýafstöðnum kosningum til alþingis.

Viðvarandi verkefni að finna jafnvægi milli íhalds og frjálslyndis
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að flokkur sem vilji eiga erindi inn í framtíðina þurfi að skilja framtíðina. Þótt hún hafi lýst yfir áhuga á að leiða flokkinn eftir brotthvarf formannsins vill hún ekki að svo stöddu lýsa formlega yfir að hún bjóði sig fram.

Alþingi kemur að öllum líkindum saman eftir hálfan mánuð
Alþingi kemur að öllum líkindum saman í fyrsta skipti frá kosningum eftir rétt rúman hálfan mánuð. Landskjörstjórn skilar þinginu skýrslu um framkvæmd kosninganna og einstök kæru- og álitamál á miðvikudag.

Nefndir þingsins að taka á sig mynd
Ragnar Þór Ingólfsson, þingmaður Flokks fólksins í Reykjavík og fyrrverandi formaður VR, verður formaður fjárlaganefndar. Þetta herma heimildir fréttastofu.

„Mogginn er ekki flokksblað Framsóknarflokksins“
Fréttir þess efnis að þrýstingur sé innan úr hluta Framsóknar um að flýta eigi flokksþingi koma formanninum spánskt fyrir sjónir. Hann segir allt í eðlilegum farvegi innan flokksins, og fjölmiðlaumfjöllun ráði þar engu um.

Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi
Kjördæmissamband Framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmunum hefur samþykkt að óska eftir miðstjórnarfundi hjá flokknum í þeim tilgangi að flýta megi flokksþingi.

Titringur á Alþingi
Allt leikur á reiðisskjálfi með reglulegu millibili í fundarherbergi á fimmtu hæð í nýrri skrifstofubyggingu Alþingis sögn formanns Flokks fólksins sem hefur aldrei upplifað annað eins. Þetta sé þó aðeins einn af nokkrum göllum í húsnæðinu. Brýnt sé að ráðast í úrbætur.

Gerði ráð fyrir að verða formaður þingflokksins
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, segist hafa gert ráð fyrir því að verða þingflokksformaður flokksins. Guðmundur Ari Sigurjónsson var kjörinn formaður þingflokksins í gær.

Sjálfstæðismenn orðnir eins og vinstrimenn
„Þetta er dálítið eins og með vinstrimennina sem gátu aldrei komið sér saman um nokkurn hlut,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður og samfélagsrýnir um þá stöðu sem komin er upp innan Sjálfstæðisflokksins.

„Þetta er sannarlega mikill heiður“
Nýr þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir mikla samstöðu hafa ríkt innan þingflokksins þegar kom að tillögu formann um að hann tæki við embættinu. Dagur B. Eggertsson er ekki meðal þeirra þriggja sem mynda stjórn þingflokksins.

Guðmundur Ari þingflokksformaður og Dagur kemst ekki á blað
Guðmundur Ari Sigurjónsson, nýkjörinn þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, hefur verið útnefndur þingflokksformaður flokksins. Tillaga Kristrúnar Frostadóttur þess efnis var samþykkt á þingflokksfundi Samfylkingarinnar í dag. Dagur B. Eggertsson kemst ekki á blað í stjórn þingflokksins.

Farið yfir feril Bjarna: Spáði því að hann ætti nóg eftir fyrir átján árum
Tímamótafréttir bárust af sviði stjórnmálanna í gær. Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann væri að kveðja pólitíkina þar sem hann hefur verið í aðalhlutverki um langa hríð. Bjarni tók sæti á Alþingi árið 2003 og hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins síðan 2009. Þangað til í nýliðnum desember hafði Bjarni, í forystu Sjálfstæðisflokksins, setið í ríkisstjórn með mörgum mismunandi flokkum í hinum ýmsum ráðherraembættum.

Brýnt að bregðast hratt við vanda í orkumálum
Aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar segir brýnt að ný ríkisstjórn hefjist strax handa við að tryggja orkuöryggi þjóðarinnar. Orkumarkaðurinn einkennist af óöryggi þar sem skorti leikreglur og fyrirsjáanleika. Það þurfi að skýra hver beri ábyrgð á að orkuöryggi.

Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur telur að Bjarni Benediktsson muni fá góða dóma í sögubókunum. Hann tilkynnti í dag að hann hygðist ekki taka sæti á þingi né gefa kost á sér í áframhaldandi setu sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Hún telur að Bjarni hafi sjálfur viljað halda áfram, en ákveðið að gera það ekki eftir samtöl við flokksmenn og fjölskyldumeðlimi.

Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd
Nokkur nöfn hafa verið nefnd þegar talið berst að hugsanlegum arftaka Bjarna Benediktssonar sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni tilkynnti í dag að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri á næsta landsfundi flokksins, en hann hefur verið formaður í tæp sextán ár og er einn þaulsetnasti formaður Sjálfstæðisflokksins í sögunni. Sjálfstæðismenn bæði innan og utan þingflokksins hafa verið orðaðir við embættið.

Ekki búinn að taka ákvörðun um formannsframboð
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir tilkynningu Bjarna Benediktssonar hafa komið á óvart. Hann vill ekkert gefa upp um það hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns. Hann segist þó hugsa um það og að fólk hafi komið að máli við sig. Mikilvægast sé þó að Sjálfstæðismenn stilli saman sína strengi.

Tár féllu þegar Bjarni sagði þingflokknum frá ákvörðun sinni
Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins segir að mörgum þingmönnum hafi verið brugðið þegar Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann ætlaði að hætta sem formaður og þingmaður í dag. Nokkur tár hafi fallið.

Tekur sætið og útilokar ekki formannsframboð
Jón Gunnarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, mun taka sæti á Alþingi, þar sem ljóst er orðið að Bjarni Benediktsson afsala sér þingmennsku þegar þing kemur saman. Hann segist ekki hafa leitt hugann að formannsframboði en útilokar ekkert.

„Helsti valdamaður landsins í meira en áratug“
Stjórnmálafræðiprófessor segir það ekki koma á óvart að Bjarni Benediktsson ætli sér nú að kveðja stjórnmálin, eftir 12 ára setu í ráðherrastólum. Það sé alveg opin spurning í hvaða átt nýr formaður muni leiða flokkinn.

Jón Gunnarsson kemur inn við brotthvarf Bjarna
Jón Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, mun geta tekið sæti á komandi þingi, nú þegar ljóst er að Bjarni Benediktsson mun ekki taka sæti.

Hildur áfram þingflokksformaður
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður áfram þingflokksformaður flokksins þegar þing kemur saman. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnti um þetta á þingflokksfundi í dag.

Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér í formannskjöri á komandi landsfundi flokksins. Hann ætlar ekki að taka sæti á þingi síðar í mánuðinum.

Fjögur mál til landskjörstjórnar vegna alþingiskosninganna
Píratar í Suðvesturkjördæmi fara fram á í kæru sinni til landskjörstjórnar að alþingiskosningarnar verði gerðar ógildar. Formaður landskjörstjórnar segir að alls hafi tvö erindi og tvær kærur borist vegna kosninganna. Búist sé við að Alþingi fái umsögn um málin í næstu viku.

Gott sparnaðarráð fyrir ríkisstjórnina að leggja niður ÁTVR
Netverslun með áfengi hefur tekið stakkaskiptum með sérstöku „sýningarrými“ sem opnað var um helgina. Þingmaður Miðflokksins segir gott sparnaðarráð til ríkisstjórnarinnar vera að leggja niður ÁTVR. Enginn grundvöllur sé fyrir einkasölu ríkisins á áfengi.

Gefur lítið fyrir áform ríkisstjórnarinnar
„Ný ríkisstjórn þarf því í raun ekki að móta nýja auðlindastefnu um sjálfbæra nýtingu þegar kemur að sjávarútvegi. Íslenskur sjávarútvegur er sjálfbær og með aflamarkskerfinu hefur almennt tekist vel við endurreisn fiskistofna frá því að þeir voru við það að hrynja og sumir hrundu. Fækkun báta, skipa og útgerða hefur gerst á forsendum markaðarins og er nú svo komið að íslenskur sjávarútvegur leggur hlutfallslega mest til þjóðarbúsins meðal allra fiskveiðiþjóða“

Þarf að taka hápólitískar ákvarðanir vegna Sundabrautar
Framkvæmdir við Sundabraut verða boðnar út á Evrópska efnahagssvæðinu að sögn verkefnisstjóra hjá Vegagerðinni. Ef allt gangi upp verði Sundabraut komin í gagnið árið 2032. Margir komi að ákvörðunartöku og mismunandi hagsmunir sem þurfi að taka tillit til í ferlinu

Viðreisn og Framsókn dala en sósíalistar yfir kjörfylgi
Fylgi Viðreisnar mælist nú tveimur prósentum minna en flokkurinn fékk í þingkosningunum í nýjum þjóðarpúls Gallup. Framsóknarflokkurinn dalar enn eftir sögulega lélega kosningu en Sósíalistaflokkurinn er tveimur prósentustigum yfir kjörfylgi sínu.