Varar fólk við að vera of nærri virkum gígum Breytingar urðu við eldgosið í gær þegar hraunbarmur gígsins brast. Þorvaldur Þórðarson, jarðfræðingur, segir það hafa verið mikið sjónarspil þegar gígbarmurinn brast en að það megi ekki gleyma því að um hættusvæði sé að ræða. Innlent 19. júlí 2023 11:57
Stúlka örmagnaðist á gosstöðvum Töluverður erill var hjá lögreglunni á Suðurnesjum á gossvæðinu í gær og í gærkvöldi. Aðstoða þurfti nokkra göngugarpa og þá voru einhverjir sem ekki hlýddu fyrirmælum. Ekki gengur vel í öllum tilvikum að biðja fólk að halda sig utan hættusvæðis. Innlent 19. júlí 2023 10:16
Loka svæðinu klukkan fimm í dag vegna slæms skyggnis Lokað verður fyrir aðgang að gossvæðinu við Litla Hrút klukkan fimm í dag. Er það vegna þess hve lélegt skyggni verður þá. Innlent 19. júlí 2023 10:13
Sjáðu þegar gígur Litla-Hrúts hrundi Vesturhlið gígsins við Litla-Hrút hrundi í nótt og varð mikið hraunflóð út úr honum til vesturs. Gígskálin virðist hafa gefið sig eftir að hrauntjörnin inni í honum hækkaði töluvert. Innlent 19. júlí 2023 09:46
Ferðamaðurinn sem hneig niður á gosstöðvum látinn Ferðamaður sem hneig niður við gosstöðvarnar við Litla Hrút í gærkvöldi og var sóttur af þyrlu landhelgisgæslunnar er látinn. Innlent 19. júlí 2023 09:07
Gígbarmurinn brast í nótt Breytingar urðu á rennslinu í Eldgosinu við Litla-Hrút í nótt þegar gígbarmurinn brast og hraunið rennur nú í nýjum farvegi. Innlent 19. júlí 2023 07:16
Fluttur með þyrlu af gosstöðvunum Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar frá gosstöðvunum nú í kvöld til aðhlynningar á Landspítalanum. Innlent 18. júlí 2023 22:17
Langir dagar hjá slökkviliðinu: Hraunið nái til Suðurstrandarvegar upp úr miðjum ágúst Niðurstöður HEC-RAS hermunar Verkís á rennsli hraunsins í gosinu við Litla-Hrút sýnir að hraunrennsli muni ná til Suðurstrandarvegar upp úr miðjum ágúst. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá rannsóknarstofu í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands. Slökkviliðsmenn hafa undanfarna daga beitt tveimur aðferðum við að slökkva í gróðureldum á svæðinu og mæðir mikið á slökkviliðsfólki. Innlent 18. júlí 2023 19:31
Gossvæðið bara opið frá Suðurstrandarvegi Eldstöðvarnar við Litla Hrút eru eingöngu opnar frá Suðurstrandavegi í dag. Öðrum vegum eða vegaslóðum hefur verið lokað. Leið þessi kallast Meradalaleið og er um tuttugu kílómetra löng, fram og til baka. Innlent 18. júlí 2023 10:24
Mesti mosabruni frá upphafi skráninga Enn hefur ekki tekist að ráða niðurlögum gróðurelda, sem geisað hafa á Reykjanesi frá upphafi eldgoss þar fyrir rúmri viku síðan. Fram kemur í grein sem birtist á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands í gær að um mesta mosabruna sé að ræða frá því að skráningar á gróðureldum hófust hér á landi. Innlent 18. júlí 2023 07:15
Þrír áttavilltir við gosið Björgunarsveitir leiðbeina nú þremur áttavilltum erlendum ferðamönnum við gosstöðvarnar. Búið er að ná sambandi við fólkið sem er norðan megin við Keili og ekki á hættusvæði. Innlent 17. júlí 2023 21:38
Myndband sýnir enn töluverða virkni: Gossvæðið fylltist strax og það var opnað Lögregla segir að vel hafi gengið eftir að gosstöðvar voru opnaðar á ný á Reykjanesi í dag þegar fjögurra daga banni við ferðum fólks var aflétt eftir hádegi. Ferðamenn voru agndofa þegar fréttastofa ræddi við þá um gosið. Ótrúlegt drónamyndband frá Birni Steinbekk sýnir að enn er töluverður kraftur í gosinu. Innlent 17. júlí 2023 21:24
Leituðu að manneskju á gosstöðvunum Leitað var að karlmanni á gossvæðinu á Reykjanesskaga. Björgunarsveitarfólk hefur verið kallað út úr mörgum sveitum sökum þess hve fáliðaðar þær eru á þessum árstíma. Innlent 17. júlí 2023 14:32
Opna aftur fyrir aðgang fólks að gossvæðinu Búið er að opna aftur inn á gossvæðið við Litla-Hrút en almenningi hefur verið óheimilt að ganga þar um frá því á fimmtudag. Slökkvistarf vegna gróðurelda heldur áfram en lögregla telur nú óhætt að hleypa fólki inn á Meradalaleið. Lögð er áhersla á að fólk fari ekki inn á skilgreint hættusvæði sem nær frá Náttaga að Keili. Innlent 17. júlí 2023 13:11
Bjartsýnn að slökkvistarfi við gosstöðvar ljúki í dag Tekin verður ákvörðun eftir hádegi um opnun við gosstöðvar. Slökkvistarf hófst í morgun og hefur gengið vel. Unnið er að því að slökkva í síðasta kafla gróðurelda. Innlent 17. júlí 2023 11:59
Fóru inn á lokaðar gosstöðvarnar og þurftu hjálp björgunarsveita Gosstöðvarnar eru ennþá lokaðar en þær hafa verið það síðan síðastliðinn fimmtudagsmorgun. Staðan verður endurmetin eftir hádegi í dag þegar viðbragðsaðilar hafa lokið fundi sínum. Leita þurfti að tveimur ferðamönnum í nótt. Innlent 17. júlí 2023 10:01
Eldgosið mallar áfram Eldgosið við Litla Hrút á Reykjanesi mallar áfram og engar breytingar hafa verið mældar yfir helgina. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir þó að svæðinu hafi verið lokað alveg í gærkvöldi og því hafi engar nýjar tölur borist. Þá bendir ekkert til þess að dregið hafi úr gasmengun á svæðinu. Innlent 17. júlí 2023 07:46
„Hugsanlegt að það sé að draga aðeins úr flæði“ Rennsli í hraunánni frá gíg eldgossins við Litla-Hrút virðist hafa minnkað síðasta hálfa sólarhringinn, að sögn eldfjallafræðings. Virknin hefur þó haldist nokkuð stöðug yfir helgina. Hraun heldur áfram að renna í suður, niður í Meradali, yfir hraun frá 2021 og er nú einnig komið upp á hraun frá því í gosinu í fyrra. Gígbarmar aðalgígsins eru orðnir 22 metra háir. Innlent 16. júlí 2023 13:44
Myndband: Þyrla Landhelgisgæslunnar slekkur gróðurelda við Litla-Hrút Þyrla Landhelgisgæslunnar var við slökkvistörf í gærkvöldi við eldstöðvarnar við Litla-Hrút en gróðureldar hafa myndast á svæðinu frá upphafi gossins. Innlent 16. júlí 2023 09:47
Áfram lokað að gosstöðvunum Lokað verður áfram að gosstöðvunum við Litla-Hrút. Það er gert til að tryggja öryggi fólks á svæðinu en þar er mikil mengun vegna gróðurelda. Þá er vindáttin sérstaklega óhagstæð þar sem gasmengunin berst yfir gönguleiðir og Suðurstrandarveg. Innlent 16. júlí 2023 09:40
Norðvestanátt á landinu og gasmengun gæti borist til Grindavíkur Það verður áfram norðan- og norðvestanátt á landinu í dag. Á norðanverðu landinu verður væta og svalt í veðri, en annars skýjað með köflum, stöku skúrir og hlýtt. Á Austfjörðum hvessir seinnipartinn. Gasmengun við gosstöðvarnar berst til suðurs yfir gönguleiðir, Suðurstrandarveg og mögulega til Grindavíkur. Veður 16. júlí 2023 09:03
Ólga innan björgunarsveita vegna tíu milljóna Grindavíkurstyrks Björgunarsveitin Þorbjörn hlaut í gær tíu milljóna króna styrk frá ríkinu til brunavarna á gossvæðinu á Reykjanesi. Nokkur óánægja ríkir meðal björgunarsveitarfólks vegna styrkveitingarinnar, þar sem fjölmargar sveitir komi að verkefninu og því eigi styrkurinn að renna jafnt til sveita eftir aðkomu. Innlent 15. júlí 2023 18:52
Birtir myndir af hrauninu flæða yfir það gamla Í gær flæddi hraunið úr eldgosinu við Litla-Hrút yfir hraunbreiðuna í norðaustanverðum Meradölum sem myndaðist í eldgosinu í Fagradalsfjalli árið 2021. Innlent 15. júlí 2023 12:15
Lokað verður áfram að gosstöðvunum Lokað verður áfram að gosstöðvunum við Litla-Hrút til að tryggja öryggi ferðamanna og viðbragðsaðila. Ákvörðunin verður endurskoðuð klukkan níu í fyrramálið á fundi viðbragsaðila. Innlent 15. júlí 2023 10:00
Líftryggingar halda en slysabætur gætu skerst í glannaskap við gosið Glannaskapur við gosstöðvarnar ógildir ekki líftryggingar fólks en möguleiki er á því að slysabætur skerðist vegna vítaverðs gáleysis. Borið hefur á því að fólk fylgi ekki fyrirmælum lögreglu og setji sig í hættu. Innlent 15. júlí 2023 07:46
Funda klukkan níu um hvort opna eigi gossvæðið á ný Viðbragðsaðilar munu funda nú klukkan níu vegna eldgossins við Litla-Hrút. Á þeim fundi verður ákveðið hvort gossvæðið verður opnað almenningi á ný. Innlent 15. júlí 2023 07:31
„Þetta er mjög erfitt en okkur gengur vel“ Slökkviliðsmenn börðust við gróðurelda á gossvæðinu á Reykjanesi í allan dag meðal annars með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að styrkja Björgunarsveitina í Grindavik um tíu milljónir króna og verið er að athuga gerð á nýju bílastæði sem myndi stytta göngu að gosstöðvunum verulega. Innlent 14. júlí 2023 21:28
Ása Steinars við gosstöðvarnar: „Ég held að einhver muni deyja hér í kvöld“ Ævintýrakonan og ferðaljósmyndarinn Ása Steinars lét sitt ekki eftir liggja og arkaði upp að eldgosinu í góðra vina hópi í fyrradag. Upplifunina segir hún stórfenglega þó mikill hópur fólks sýni glæfralega hegðun í námundan við gosið. Lífið 14. júlí 2023 20:01
Fyrsta þrívíddarlíkanið af gossvæðinu Náttúrufræðistofnun Íslands hefur birt fyrsta þrívíddarlíkanið af gossvæðinu við Litla-Hrút á Reykjanesskaga. Líkanið er unnið út frá ljósmyndum sem teknar voru úr lofti í gær, þann 13. júlí, þremur dögum eftir að eldgosið hófst. Innlent 14. júlí 2023 14:34
Ríkið styrkir Þorbjörn um tíu milljónir króna Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra og dómsmálaráðherra um að styrkja björgunarsveitina Þorbjörn í Grindavík um 10 milljónir króna. Innlent 14. júlí 2023 13:55