
Sannfærandi sigur Arsenal gegn Bournemouth
Arsenal áttu ekki í miklum vandræðum með Bournemouth á útivelli í dag og unnu sannfærandi 0-4 sigur.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Arsenal áttu ekki í miklum vandræðum með Bournemouth á útivelli í dag og unnu sannfærandi 0-4 sigur.
Manchester United tók á móti Crystal Palace í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Liðin mættust fyrr í vikunni í enska deildarbikarnum en þar vann United 3-0. Palace áttu harma að hefna og náðu því heldur betur í dag.
Liverpool tapaði 1-2 fyrir Tottenham eftir að hafa misst tvo menn af velli í leiknum. Sigurmarkið kom í uppbótartíma þegar Joel Matip setti boltann í eigið net.
Wolves vann 2 -1 á heimavelli gegn ríkjandi meisturunum frá Manchester í 7. umferð ensku úrvaldsdeildarinnar. Sigurhrina City í upphafi tímabils er lokið og Liverpool getur hrifsað toppsætið af þeim með sigri í dag.
Aston Villa fór létt með Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag en Brighton höfðu verið á miklu flugi og unnið þrjá leiki í röð fyrir þennan. Ollie Watkins gerði nánast út um leikinn með tveimur mörkum á sjö mínútna kafla í fyrri hálfleik.
Lewis Jones, tippsérfræðingur Sky Sports, segir að það sé ekki óvitlaust að setja pening á að Arsenal tapi sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar liðið sækir Bournemouth heim í dag.
Ensku landsliðsmennirnir Bukayo Saka og Declan Rice hafa ekki æft með Arsenal frá Norður-Lundúnaslagnum gegn Tottenham á sunnudaginn.
Michail Antonio, leikmaður West Ham United, mætti ekki í eigið hlaðvarp eftir tapið fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur áhuga á að fá leikmann frá gamla liðinu sínu, Borussia Dortmund.
Brasilíumaðurinn Antony, leikmaður Manchester United, er mættur til æfinga hjá félaginu og er laus úr banni frá því að spila fyrir liðið. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa ætlar að binda endi á samstarfið við íþróttavöruframleiðandann Castore.
Eigendur enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, Fenway Sports Group (FSG), hefur selt fjárfestingafyrirtækinu Dynasty Equity hlut í félaginu.
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Sigurðsson, er að fara ansi hreint vel af stað í sínum fyrstu keppnisleikjum með enska B-deildar liðinu Blackburn Rovers. Þjálfari liðsins, Jon Dahl Tomasson, er afar ánægður með innkomu Arnórs í liðið en vill þó fara varlega af stað með hann.
Arnór Sigurðsson og félagar í Blackburn Rovers tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum enska deildabikarsins með 5-2 sigri á Cardiff City í gær.
Meðferð Manchester United á leikmanni sínum Jadon Sancho hefur vakið upp spurningum um hvort félagið sé þarna í órétti.
Leikmenn kvennaliðs Aston Villa kvíða fyrir að spila í nýjum treyjum liðsins í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn.
Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segir að félagið sé ekki í leit að nýjum framherja þrátt fyrir gagnrýni á framherja liðsins í byrjun tímabils.
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, segist ánægður með framfarir Darwin Nunez síðustu vikur.
Manchester United mun mæta Newcastle United í 16-liða úrslitum deildarbikarsins.
Liverpool er komið áfram í deildarbikarnum eftir 3-1 sigur á Leicester á Anfield í kvöld.
Alexander Isak skoraði eina mark leiksins er Newcastle hafði betur gegn Manchester City í deildarbikarnum.
Arsenal er komið áfram í deildarbikarnum eftir 0-1 sigur á Brentford í kvöld en mark Arsenal skoraði Reiss Nelson.
Reece James hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir meint brot eftir leik Chelsea gegn Aston Villa um helgina. Brotið á að hafa átt sér stað í göngunum sem liggja að búningsherbergjum.
Chelsea situr í fjórtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sex leiki og nær því ekki að skora eitt mark í leik.
Englandsmeistarar Manchester City heimsækja Newcastle United í kvöld í enska deildabikarnum en knattspyrnustjóri félagsins hefur áhyggjur af ferðalaginu heim.
Brasilíski sóknarmaðurinn Antony, leikmaður Manchester United, mun mæta í yfirheyrslu hjá lögreglunni í Greater Manchester og svara þar spurningum tengdum ásökunum á hendur honum vegna meints ofbeldis.
Forráðamenn Borussia Dortmund eru efins um að fá Jadon Sancho aftur til liðsins vegna agaleysis hans.
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, segir að eigendur félagsins séu velkomnir inn í búningsklefa liðsins svo lengi sem þeir mæti ekki til að halda ræðu.
Leik Sheffield United og Crystal Palace í ensku B-deildinni kvennamegin hefur verið frestað eftir að leikmaður Sheffield United, Maddy Cusack, lést á dögunum.
Manchester United vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Crystal Palace í 32-liða úrslitum enska deildarbikarsins í knattspyrnu í kvöld.