

Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Enska úrvalsdeildin í fótbolta hefst á ný um helgina eftir landsleikjahlé en búnar eru sjö umferðir af tímabilinu.
Stuðningsmenn Liverpool þurfa væntanlega að horfa á eftir einum vinsælasta leikmanni liðsins eftir þetta tímabil.
Enska götublaðið The Sun hefur greint frá því að Annie Kilner hafi sótt um skilnað frá Kyle Walker, leikmanni Englandsmeistara Manchester City og enska landsliðsins eftir þrálátt framhjáhald hans.
Gary Neville, sparkspekingur og fyrrum landsliðsmaður Englands, segist fyrir ákveðnum vonbrigðum að Thomas Tuchel hafi verið ráðinn þjálfari enska landsliðsins. Hann sé þó góður kostur í starfið.
Fótboltamaðurinn Gary Martin er ekki parsáttur við ráðningu enska knattspyrnusambandsins á Þjóðverjanum Thomas Tuchel. Hann segist nú vera Íslendingur.
Forráðamenn Manchester United hafa bannað Sir Alex Ferguson, sigursælasta knattspyrnustjóra í sögu félagsins, og öðrum í fótboltastjórn þess að fara inn í búningsklefann á Old Trafford eftir leiki.
Enska knattspyrnusambandið hefur nú staðfest það að Þjóðverjinn Thomas Tuchel taki við sem nýr landsliðsþjálfari þegar Þjóðadeildinni lýkur.
Thomas Tuchel verður næsti landsliðsþjálfari Englendinga og byrjar í nýju starfi í janúar. Hann hefur skrifað undir samning við enska knattspyrnusambandið.
Eigendur Manchester United hafa ákveðið að endurnýja ekki samning við Sir Alex Ferguson um að starfa sem sendiherra félagsins. Eric Cantona er æfur yfir þessu og segir félagið sýna stjóranum sigursæla vanvirðingu.
Þjóðverjinn Thomas Tuchel verður næsti þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta.
Jonas Eidevall er hættur sem knattspyrnustjóri Arsenal eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Hann hafði stýrt liðinu í þrjú ár.
Nýir eigendur enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United hafa verið duglegir að skera niður hjá félaginu og það virðist hreinlega enginn vera óhultur hjá félaginu.
Sebastian Hoeness, knattspyrnustjóri Stuttgart, var upp með sér yfir áhuga Manchester United en var ekki tilbúinn að taka við liðinu.
Dagný Brynjarsdóttir kom inn af bekknum hjá liði West Ham sem gerði jafntefli í úrvalsdeild kvenna á Englandi í dag.
Stuðningsmenn Arsenal fengu eflaust aðeins fyrir hjartað þegar tilkynnt var að Bukayo Saka hefði yfirgefið enska landsliðshópinn vegna meiðsla. Þeir geta nú andað léttar.
Mohamed Salah hefur yfirgefið landsliðshóp Egyptalands og er farinn aftur heim til Liverpool. Egypski stjörnuleikmaðurinn var ekki spenntur fyrir seinni leik Egypta gegn Máritaníu.
Erling Haaland gæti verið að leika sitt síðasta tímabil með Manchester City. Fregnir á Spáni herma að Norðmaðurinn hafi áhuga á að spila í La Liga frá og með næsta tímabili.
Hlerunarbúnaði var komið fyrir í klefa Manchester United fyrir leik liðsins gegn Aston Villa í úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Ræður knattspyrnustjórans Erik Ten Hag heyrast vel á upptökum sem The Sun er með í sínum fórum.
Jason Daði Svanþórsson var í byrjunarliði Grimsby Town sem vann góðan sigur í League Two-deildinni á Englandi í dag. Þetta var fjórði sigur Grimsby í síðustu fimm leikjum.
Pabbi Son Heung-min, fyrirliða enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham, hefur verið fundinn sekur um líkamlegt og andlegt ofbeldi gegn ungum fótboltamönnum.
Bukayo Saka verður ekki með enska landsliðinu þegar það mætir Finnum á morgun í Þjóðadeildinni í fótbolta, eftir að hafa meiðst í tapinu gegn Grikklandi á fimmtudaginn.
Julio Enciso, leikmaður Brighton, var hætt kominn í flugi frá Englandi til Suður-Ameríku. Hann hélt að hann væri að fara að deyja.
Bukayo Saka, leikmaður Arsenal, fór meiddur af velli þegar England tapaði fyrir Grikklandi í Þjóðadeildinni í gær.
Erling Haaland skráði sig í norsku sögubækurnar í kvöld þegar hann varð markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins en hann stal þó fyrirsögnunum með öðrum hætti eftir leik þegar hann tilkynnti að hann og unnusta hans ættu von á barni.
Noussair Mazraoui, leikmaður Manchester United, hefur gengist undir smávægilega aðgerð vegna of hraðs hjartsláttar.
Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason minntist samherja síns hjá Panathinaikos, Georges Baldock, í færslu á Instagram. Hann segir að sorgin vegna fráfalls hans sé óbærileg.
Enska knattspyrnusambandið rannsakar nú mögulega aðild brasilíumannsins Lucas Paqueta að víðtæku veðmálasvindli. Hann gæti átt yfir höfði sér lífstíðarbann en félag hans West Ham ætlar að gera sitt til að koma í veg fyrir að svo verði.
AC Milan hefur áhuga á að næla í Victor Lindelöf frá Manchester United til að styrkja meiðslahrjáða varnarlínu sína. Þeir telja sig vera með rétta manninn til að sannfæra Svíann um að færa sig um set til Ítalíu.
George Baldock, fyrrum leikmaður Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni, fannst í dag látinn í sundlaug við heimili sitt í Grikklandi. Baldock lék á sínum tíma með ÍBV í efstu deild hér á landi.
Þrátt fyrir að þéna vel býr Levi Colwill, leikmaður Chelsea, enn með foreldrum sínum, yngri bróður og hundi í Southampton.