

Ferðalög
Greinar um ferðalög, ferðasögur og frábæra staði til að heimsækja.

Nýbakaðir hjólhýsaeigendur ana út í umferðina án hliðarspegla
Samkvæmt Samgöngustofu hafa 381 hjólhýsi verið nýskráð í ár. Hvort fólk hafi réttindi til að aka með þyngri eftirvagna getur velt á því hvenær maður fékk fyrst ökuréttindi. Að sögn lögreglu gerist það einstaka sinnum að fólk keyri réttindalaust en það sé hins vegar farið að gerast í auknum mæli að fólk aki án hliðarspegla.

Kvörtunum í tengslum við flugferðir rignir inn
Kvörtunum vegna seinkana og niðurfellinga á flugferðum hefur stórfjölgað að sögn formanns Neytendasamtakanna en mikil mannekla er á flugvöllum víða um heim. Hann telur flugfélög þurfa að standa sig betur í að upplýsa farþega um réttindi sín.

Leika sér ekki að því að aflýsa flugi
Vél flugfélagsins Play er komin í gagnið á ný eftir að ekið var á hana fyrir helgi. Tafir urðu á viðgerð sem varð til þess að aflýsa þurfti flugferðum til og frá Madrid, flugfarþegum til mikils ama. Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play, segir flugfélagið ekki leika sér að því að aflýsa flugi - allt sé reynt áður en gripið sé til þess ráðs.

Salan eykst þó Íslendingar flykkist til útlanda
Sala á hjólhýsum er í hæstu hæðum þetta sumarið, þrátt fyrir að frelsið til utanlandsferða sé mun meira en síðustu tvö sumur. Sölumaður telur að kórónuveirufaraldurinn hafi valdið því að fólk hafi uppgötvað landið upp á nýtt. Aukin ferðalög innanlands séu komin til að vera.

Dansstelpur óttast að missa af keppni eftir að flugi þeirra var aflýst
Hópur stelpna frá danslistarskóla JSB lenti í því að flugi hans til Madrídar með flugfélaginu Play var aflýst. Stelpurnar, sem eru á aldrinum fimmtán til sautján ára, eru miður sín enda stefnir í að þær missi af alþjóðlegri danskeppni sem þær hafa æft fyrir í fleiri mánuði.

Mannekla veldur ófremdarástandi um allan heim
Fréttir berast nú víða að af biðröðum og seinkunum á erlendum flugvöllum. Margir Íslendingar eru farnir að hafa áhyggjur af því að ástandið muni bitni á ferðalögum þeirra. Upplýsingafulltrúar flugfélaganna Play og Icelandair segja mikla aukningu hafa orðið á „tösku-seinkunum“ og að ástandsins gæti um allan heim.

Menningarveisla í Fjarðabyggð
Innsævi, menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar hefst í dag. Hátíðin er nú haldin í annað sinn og teygir dagskráin sig frá Mjóafirði til Breiðdalsvíkur. Jóhann Ágúst Jóhannsson, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar sem heldur utan um Innsævi, segir hátíð sem þessa mikilvæga samfélaginu og hafi margvísleg jákvæð áhrif.

Búið að opna veginn inn í Landmannalaugar
Vegagerðin opnaði í morgun leiðina inn í Landmannalaugar um Sigölduvirkjun. Þá styttist í opnun Landmannaleiðar og búist við að hún verði jeppafær um helgina, samkvæmt upplýsingum Magnúsar Inga Jónssonar hjá umferðarþjónustu Vegagerðarinnar.

Töskurnar fóru með út en komust ekki í hendur farþega
Allur farangur sem farþegar tóku með sér í flug Icelandair til Amsterdam á mánudag fylgdi þeim út. Vegna manneklu á Schipol-flugvelli komst farangurinn hins vegar ekki til farþega að flugi loknu.

Kossasjálfa og bannað að tala um börnin í fríinu
Athafna- og fjölmiðlakonan Guðbjörg Gissurardóttir keypti sér eldgamlan, rauðan húsbíl á Bland sem hún nefndi Runólf og ferðast um landið og ræktar sambandið með eiginmanni sínum Jóni Árnasyni en þau fóru meðal annars í brúðkaupsferðina sína á bílnum.

Bylgjulestin ferðast björt og brosandi um landið í sumar
Bylgjulestin lagði af stað í ferð sína um landið um helgina og verður í beinni útsendingu á hverjum laugardegi í sumar. Hugmynd á bakvið lestina er að ferðast um landið björt og brosandi, hitta hlustendur í öllum landshlutum og skemmta sér með þeim.

Vika 3: Hvar er Magnús Hlynur?
Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður flakkar um landið í sumar og tekur fyrir eitt bæjarfélag í kvöldfréttum Stöðvar 2 á laugardögum. Hér á Vísi birtum við lauflétta getraun á laugardagsmorgnum.

Ferðaðist til Kaupmannahafnar til að skila orðu afa síns til drottningar
Kjartan Þorbjörnsson, betur þekktur sem Golli, gerði sér sérstaka ferð, í tilefni 17. júní, frá Helsingborg til Kaupmannahafnar til að skila Dannebrogsorðunni sem afi hans, Gísli Konráðsson, hlaut 43 árum áður.

Ævintýraleg upplifun við Gardavatn
„Það er svo ótal margt sem heillar mig við Garda. Garda er hjartastaður. Ég hef þvælst þarna um á ferðum mínum upp í fjöllin og fæ aldrei nóg af þessum griðastað við alparætur,“ segir rithöfundurinn Kristín Helga Gunnarsdóttir.

„Viðbjóðslegt“ hótel sem Play bauð strandaglópum í París
Það var engin lúxussvíta sem beið farþega sem þáðu hótelgistingu frá Play í París í dag. „Algjör horbjóður“ raunar, samkvæmt einum þeirra farþega sem Vísir náði tali af. Flugfélagið aflýsti ferð sinni frá París til Íslands og bauð farþegum sínum þrjá kosti í kjölfarið; hótelgistingu og fyrsta far heim, seinkun heimferðar eða endurgreiðslu.

Sumir með hundruð bita eftir helgina
Lúsmý hefur verið landsmönnum til mikils ama síðastliðna daga víðsvegar um landið. Heilsugæslur urðu fyrst varar við bitin að einhverju ráði fyrir um viku síðan að sögn Sigríðar Dóru Magnúsdóttur framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Ferðagleði Íslendinga birtist í metkortaveltu erlendis
Heildarvelta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 21,5 milljörðum króna í apríl og hefur ekki verið hærri frá því að mælingar hófust árið 1997. Jókst veltan um tæpa 12,4 milljarða frá sama tíma árið 2021.

Hoppaði beint út í bullandi „vertíð“ skemmtiferðaskipa
„Það var smá áfall að hafa kynnst miklu work-life balance hjá Dönum í Wonderful Copenhagen og fara svo út í vertíðar brjálæði á Íslandi hjá Gáru. En ég dáist af íslenska „þetta reddast“ andanum, það er ekki gefist upp, bara spýtt í lófana,“ segir Gyða Guðmundsdóttir, nýráðin sérfræðingur í samfélagsþjónustu hjá AECO, samtaka útgerða leiðangursskipa á Norðurslóðum.

Komu að tjaldsvæðinu lokuðu og enduðu sem tjaldverðir
Tveir ungir karlmenn höfðu ætlað sér að búa í tjaldi á Eskifirði í sumar á meðan þeir ynnu í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Skömmu eftir að þeir höfðu komið sér vel fyrir á tjaldsvæði kom í ljós að loka átti tjaldsvæðinu vegna skorts á tjaldvörðum. Þeir voru ekki lengi að taka starfið einfaldlega að sér sjálfir.

Vika 2: Hvar er Magnús Hlynur?
Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður flakkar um landið í sumar og tekur fyrir eitt bæjarfélag í kvöldfréttum Stöðvar 2 á laugardögum. Hér á Vísi birtum við lauflétta getraun á laugardagsmorgnum.

Fjöldi brottfara í maí aldrei verið meiri
Brottfarir Íslendinga í maí voru um 65 þúsund talsins og hafa ekki mælst svo margar í maí síðan mælingar hófust. Þetta kemur fram í talningu Ferðamálastofu. Þá voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um 112 þúsund talsins sem er fimmti fjölmennasti maímánuður frá því að mælingar hófust.

Taktu þátt í leik og þú gætir unnið nótt á Hótel Húsafelli
Spennandi gjafabréfaleikur stendur nú yfir á facebooksíðu Hótels Húsafells.

Icelandair flýgur á slóðir upphafsmanna flugsins
Ef einhver staður getur gert þá kröfu að teljast sá merkilegasti í flugsögunni, þá er það strandbærinn Kitty Hawk í Norður-Karólínu. Það var þar sem Wright-bræður, þeir Orville og Wilbur, gerðu flugtilraunir sínar í byrjun síðustu aldar og þann 17. desember árið 1903 tókst þeim fyrstum manna að fljúga þar vélknúinni flugvél.

Stökkið: „Andlega var ég gríðarlega tilbúin að flytja út“
Selma Soffía Guðbrandsdóttir flutti til Spánar fyrir tveimur árum til þess að fara í nám en ákvað eftir námið að vera þar áfram og starfar í dag sem þjónustustjóri (e. Client services manager) hjá fyrirtæki í Marbella sem leigir út lúxus villur.

Ferðaðist þúsundir kílómetra til að ná fyrsta flugi Niceair
Þjóðverjinn Tino Oelker gerði sér ferð alla leið frá München í Þýskalandi til Akureyrar í vikunni í þeim eina tilgangi að fljúga með jómfrúarferð Niceair til Kaupmannahafnar. Skapti Hallgrímsson hjá Akureyri.net tók viðtal við Oelker fyrir flugið á fimmtudaginn þar sem hann greindi frá óhefðbundnum áhugamálum sínum, ferðalaginu til Íslands og öðrum skemmtilegum ferðasögum.

Vika 1: Hvar er Magnús Hlynur?
Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður flakkar um landið í sumar og tekur fyrir eitt bæjarfélag í kvöldfréttum Stöðvar 2 á laugardögum. Hér á Vísi birtum við lauflétta getraun á laugardagsmorgnum.

„Fyrir utan grjót og mosa veit ég ekki hvað er svona merkilegt“
Leikarinn Rainn Wilson, sem fór á kostum sem hinn sérvitri Dwight Schrute í gamanþáttaröðinni The Office, er staddur hér á landi. Hann er á ferðalagi um heiminn um þessar mundir fyrir þáttaseríu sína Rainn Wilson and the Geography of Bliss.

„Fólk þarf stundum að láta sannfæra sig um að prófa“
Fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir og fjölskyldan hennar hafa ferðast um allan heim án þess að borga fyrir húsnæði. Það var einn snjóþungan vetur sem hún fékk nóg af því að allir væru alltaf blautir í fæturna og ákvað að leita lausna.

Parka Camping bókunarvélin bjargar buguðum ferðafjölskyldum
„Það gerir ferðalagið svo miklu ánægjulegra og þægilegra að geta kíkt í símann að morgni og séð hvort það er laust pláss þar sem besta veðrið er í stað þess að komast að því að allt er fullt þegar við erum mætt á staðinn með bugaða og grenjandi krakka í aftursætinu,“ segir Arna Haraldsdóttir markaðsstjóri Parka en á vefsíðu Parka er hægt að bóka pláss á tjaldstæðum um allt land á einfaldan hátt.

Bjóða upp sérhönnuð sundferðalög
Hönnunarsafn Íslands bíður upp á ferðagjöf þetta árið en hún er í formi þriggja sérhannaðra sundferða sem tengjast sýningunni Sund sem stendur ný yfir í safninu.