Arsenal niðurlægði West Ham á útivelli Arsenal vann sannkallaðan stórsigur er liðið heimsótti West Ham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 6-0 og Arsenal því aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Liverpool. Fótbolti 11. febrúar 2024 15:53
Magdeburg fór illa með Melsungen í Íslendingaslag Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon léku stórt hlutverk í liði Magdeburg er liðið vann afar öruggan 15 marka sigur gegn Melsungen í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 39-24. Handbolti 11. febrúar 2024 15:36
Leiknir nældi í jafntefli gegn Íslandsmeisturunum Íslandsmeistarar Víkings gerðu 3-3 jafntefli við Lengjudeildarlið Leiknis er liðin mættust í fyrstu umferð Lengjubikarsins í dag. Fótbolti 11. febrúar 2024 14:12
Segir að bláu spjöldin hefðu breytt leiknum í villta vestrið Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að ef nú þegar væri búið að taka upp notkun bláu spjaldann í ensku úrvalsdeildinni hefði leikur Liverpool og Burnley í gær breyst í villta vestrið. Fótbolti 11. febrúar 2024 12:31
Segja Tottenham og Newcastle hafa áhuga á Alberti Ensku úrvalsdeildarfélögin Tottenham og Newcastle hafa áhuga á því að fá íslenska landsliðsmanninn Albert Guðmundsson í sínar raðir í sumar ef marka má fréttir frá Ítalíu. Fótbolti 11. febrúar 2024 10:46
„Sem betur fer er hún minn helsti stuðningsmaður“ Fótboltamaðurinn Gísli Eyjólfsson hefur yfirgefið uppeldisfélagið Breiðablik og freistar gæfunnar í atvinnumennsku með Halmstad í Svíþjóð. Hann þakkar unnustunni traustið og segir verkefnið tikka í öll box. Fótbolti 11. febrúar 2024 09:00
Vilja breyta reglum eftir mál Arnars Stjórn Íslensks Toppfótbolta hefur lagt fram tillögu til ályktunar á ársþingi KSÍ síðar í mánuðinum. Tillagan kemur til eftir kærumál vegna leikbanns Arnars Gunnlaugssonar á síðustu leiktíð. Fótbolti 11. febrúar 2024 08:00
Stórt tap hjá Íslendingaliðinu | Hákon fékk tækifæri gegn PSG Íslendingaliðið Eupen í Belgíu mátti sætta sig við stórt tap þegar liðið mætti Club Brugge í kvöld. Þá kom Hákon Arnar Haraldsson inn af bekknum hjá Lille gegn stórliði PSG. Fótbolti 10. febrúar 2024 22:46
Brons til Suður-Afríku Suður-Afríka tryggði sér í kvöld bronsverðlaunin á Afríkumótinu í knattspyrnu eftir dramatískan sigur á Kongó. Fótbolti 10. febrúar 2024 22:16
Stórir sigrar í Lengjubikarnum Þór vann stóran sigur á Njarðvík í Lengjudeild karla í knattspyrnu í dag. Þá vann Þór/KA stóran sigur á ÍBV í Lengjubikar kvenna. Fótbolti 10. febrúar 2024 20:54
Bakverðirnir á bakvið sigur Leverkusen gegn Bayern Leverkusen vann í kvöld 3-0 sigur á Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni. Lærisveinar Xabi Alonso eru nú með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar. Fótbolti 10. febrúar 2024 19:32
Bellingham meiddist þegar Real Madrid valtaði yfir spútnikliðið Real Madrid er komið með fimm stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir stórsigur á Girona í toppslag deildarinnar í kvöld. Fótbolti 10. febrúar 2024 19:27
Inter vann stórleikinn og styrkti stöðu sína á toppnum Inter vann frábæran 4-2 útisigur á Roma í Serie A í dag. Inter er því áfram á toppi deildarinnar og er nú með sjö stiga forystu á Juventus. Fótbolti 10. febrúar 2024 18:58
Tveir tvítugir tryggðu Fjölni sigur gegn HK Lengjudeildarlið Fjölnis vann góðan sigur á liði HK í Lengjubikarnum í dag. Fótbolti 10. febrúar 2024 18:31
Landsliðsmenn í eldlínunni í Evrópu Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði Pisa sem vann 2-0 sigur á Sampdoria á Ítalíu í dag. Jón Dagur Þorsteinsson og Guðmundur Þórarinsson máttu hins vegar sætta sig við töp. Fótbolti 10. febrúar 2024 17:45
Vestri snéri taflinu við gegn Keflavík Keflavík og Vestri gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í fyrstu umferð riðils 1 í A-deild Lengjubikarsins í dag. Fótbolti 10. febrúar 2024 16:10
Glódís og stöllur styrktu stöðu sína á toppnum með stórsigri Íslenska landsliðskonan Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í þýska stórveldinu Bayern München unnu 5-0 stórsigur er liðið heimsótti Köln í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 10. febrúar 2024 15:02
Haaland skaut meisturunum á toppinn Erling Braut Haaland skoraði bæði mörk leiksins er Englandsmeistarar Manchester City komu sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri gegn Everton í dag. Fótbolti 10. febrúar 2024 14:32
Ísak skoraði í fjórða leik Düsseldorf í röð án sigurs Ísak Bergmann Jóhannesson skoraði eina mark Fortuna Düsseldorf er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Elversberg í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 10. febrúar 2024 13:56
Harðneituðu að spila í Ísrael: „UEFA steig sem betur fer inn“ Ísraelska knattspyrnusambandið pressaði stíft á KSÍ og UEFA að fá að halda umspilsleik karlalandsliða Íslands og Ísrael í heimalandinu. KSÍ harðneitaði ítrekuðum beiðnum og UEFA ákvað að leikurinn skyldi haldinn á hlutlausum velli. Fótbolti 10. febrúar 2024 12:00
Tennisboltar, súkkulaðipeningar og regnslár töfðu leiki Mótmæli settu svip sinn á leiki í tveimur af stærstu knattspyrnudeildum Evrópu í gær og þurfti ýmist að gera hlé eða flauta leiki snemma af vegna þeirra. Fótbolti 10. febrúar 2024 11:31
Leggja til sumarfrí í íslenskum fótbolta Stjórn Leikmannasamtaka Íslands leggur til að á ársþingi KSÍ verði samþykkt að innleitt verði sumerhlé á keppnistímabili í Íslandsmóti mestaraflokka í knattspyrnu á Íslandi. Fótbolti 10. febrúar 2024 10:45
Bláu spjöldin muni rústa leiknum Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham, er ekki hrifinn af þeirri hugmynd að taka upp notkun blárra spjalda í deildinni á næstunni. Fótbolti 10. febrúar 2024 09:31
Eggert Aron um atvinnumennskuna og A-landsliðið: Draumur síðan ég var krakki Knattspyrnumaðurinn Eggert Aron Guðmundsson gekk í raðir silfurliðs Svíþjóðar, Elfsborg, frá Stjörnunni fyrir ekki svo löngu síðan. Fótbolti 10. febrúar 2024 09:00
Bláu kortin ekki kynnt til sögunnar jafn fljótt og vonast var til Það virðist sem öll séu ekki á sömu blaðsíðu þegar kemur að bláaum spjöldum í knattspyrnu. Prófa átti regluverkið á næstu leiktíð en nú virðist sem því hafi verið frestað. Fótbolti 9. febrúar 2024 23:01
Bæði lið án nokkurra lykilmanna í toppslagnum í Þýskalandi Hið taplausa lið Bayer Leverkusen tekur á móti Bayern München, liðinu sem hefur unnið þýsku deildina undanfarin 11 tímabil. Leikurinn er sýndur beint á Vodafone Sport en það eru þó nokkrir sterkir leikmenn sem verða hvergi sjáanlegir þar sem þeir eru á meiðslalistanum fræga. Fótbolti 9. febrúar 2024 22:15
De Jong til í að yfirgefa Barcelona í sumar Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong gæti yfirgefið Spánarmeistara Barcelona í sumar. Hann var þrálátlega orðaður við Manchester United árið 2022. Fótbolti 9. febrúar 2024 20:16
„Ekki draumastaða, ég get alveg sagt það“ Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins hefur valið leikmannahóp sem tekur þátt í mikilvægu einvígi um laust sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar undir lok mánaðarins. Hann tekur andstæðinginn í umspilinu alvarlega og segir okkar konur þurfa að mæta klárar í allt. Fótbolti 9. febrúar 2024 18:00
Gunnhildur Yrsa nýr styrktarþjálfari landsliðsins Landsliðskonan fyrrverandi, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, er nýr styrktarþjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu. Frá þessu var greint á blaðamannafundi Knattspyrnusambands Íslands í dag. Fótbolti 9. febrúar 2024 17:31
Afar ólíkar tillögur KSÍ og ÍTF um kjörgengi Ljóst er að stjórn KSÍ (Knattspyrnusambands Íslands) er á öndverðum meiði við stjórn ÍTF (Íslensks toppfótbolta) hvað varðar kjörgengi stjórnarmanna KSÍ. Tvær ólíkar tillögur liggja fyrir ársþingi KSÍ sem fram fer eftir rúmar tvær vikur. Fótbolti 9. febrúar 2024 14:19