Sandra fékk á sig tvö en Grindvíkingar tóku stigin þrjú Grindavík vann nauman 3-2 sigur er liðið tók á móti Augnabliki í níundu umferð Lengjudeildar kvenna í kvöld. Fótbolti 29. júní 2023 22:00
Mosfellingar héldu út og styrktu stöðu sína á toppnum Afturelding er nú með fimm stiga forskot á toppi Lengjudeildar karla eftir nauman 4-3 sigur gegn Fjölni í toppslag deildarinnar í kvöld. Fótbolti 29. júní 2023 21:22
Skagamenn halda í við toppliðin með stórsigri ÍA vann öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Þór frá Akureyri í Lengjudeild karla í kvöld. Fótbolti 29. júní 2023 19:54
Töpin gegn Slóvakíu og Portúgal fella Ísland um þrjú sæti Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fellur niður um þrjú sæti á nýjum heimslista FIFA sem gefinn var út í morgun. Fótbolti 29. júní 2023 19:17
Síðast mætti lögreglan en Viktor segir að harkan verði öll innan vallar Viktor Karl Einarsson segir möguleika Breiðabliks mjög góða fyrir úrslitaleikinn við svartfellska liðið Buducnost annað kvöld, í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Fótbolti 29. júní 2023 17:46
Raunhæf varaleið fyrir Ísland á næsta HM Nú er ljóst hvaða leið íslenska karlalandsliðið í fótbolta þarf að fara til að komast inn á heimsmeistaramótið sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada eftir þrjú ár. Fótbolti 29. júní 2023 15:00
Hópurinn gegn Finnlandi og Austurríki: Sú markahæsta ekki með Dagný Brynjarsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir eru á meðal þeirra fimm leikmanna sem ekki eru í nýjasta landsliðshópi Íslands í fótbolta, fyrir komandi vináttulandsleiki við Finnland og Austurríki í júlí, en voru í síðasta hópi. Fótbolti 29. júní 2023 13:05
Hlakkaði í Margréti að heyra: „Hún fékk starfið út af því að hún er kona“ Þjálfarinn Margrét Magnúsdóttir segir það hafa gefið sér kraft að heyra af efasemdum fólks um að hún ætti skilið að taka við U19-landsliði kvenna í fótbolta. Eftir eitt og hálft ár í starfi er hún á leið með liðið í sjálfa lokakeppni EM í næsta mánuði. Fótbolti 29. júní 2023 11:31
Orkumótið hófst með hvelli þegar tjöld fuku og stangir brotnuðu Mikið rok lék skipuleggjendur og þátttakendur Orkumóts ÍBV í Vestmannaeyjum grátt í gær þegar tjöld tókust á loft og tjaldstangir brotnuðu á tjaldstæðinu í Herjólfsdal. Eyjamenn ruku til að veita gestum aðstoð og var einhverjum komið í skjól en vel gekk að bjarga öllu, að sögn mótsstjóra. Innlent 29. júní 2023 11:23
Bandarísku fótboltastelpurnar fá verðlaun fyrir jafnréttisbaráttu sína Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta er að hefja titilvörn sína á heimsmeistaramótinu í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í næsta mánuði en það hefur mikið breyst síðan þær unnu heimsmeistaratitilinn sumarið 2019. Fótbolti 29. júní 2023 11:00
Cloé Eyja orðin leikmaður Arsenal Cloé Eyja Lacasse, kanadíska landsliðskonan sem er með íslenskan ríkisborgararétt, var í dag kynnt sem nýjasti leikmaður enska knattspyrnufélagsins Arsenal. Enski boltinn 29. júní 2023 10:15
Shearer býðst til að keyra Kane sjálfur til München Alan Shearer hefur skorað mest allra í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og hefur átt það met í nokkra áratugi. Nú nálgast hins vegar einn maður metið. Enski boltinn 29. júní 2023 10:00
Messi fær argentínskan þjálfara sem hann þekkir vel Það lítur út fyrir að Lionel Messi sé að fá nánast allt sem hann vill hjá bandaríska félaginu Inter Miami. Fótbolti 29. júní 2023 09:31
Brasilískur maður arfleiðir Neymar að ölllum eignum sínum Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hefur verið lengi í hóp launahæstu fótboltamanna heims og þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af peningum. Fótbolti 29. júní 2023 08:31
Fyrsti sigur Heimis með Jamaíka í höfn og hann var af glæsilegri gerðinni Heimir Hallgrímsson stýrði landsliði Jamaíka til sigurs í fyrsta sinn í nótt þegar liðið vann frábæran 4-1 sigur á Trínidad og Tóbagó í Gullbikarnum sem fer fram í Bandaríkjunum. Fótbolti 29. júní 2023 07:30
Stórþjóðir úr leik á Evrópumótinu Riðlakeppni Evrópumóts U-21 árs landsliða í knattspyrnu. Englendingar tryggðu sér örugglega sæti í 8-liða úrslitum en þrjár stórþjóðir eru fallnar úr leik. Fótbolti 28. júní 2023 22:31
Sigurður Ragnar: Erum að vinna í að fá styrkingu Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur var að vonum vonsvikinn með 2-0 tap sinna manna gegn KR nú í kvöld. Siggi Raggi viðurkendi að betra liðið hefði sigrað en á sama tíma sagðist hann geta tekið margt jákvætt út úr leiknum í kvöld. Fótbolti 28. júní 2023 22:18
„Þetta var ekki okkar besti fótbolta leikur.“ Jón Þórir Sveinsson, þjálfari Fram, var sáttur með 3-2 sigur á móti HK í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Leikurinn fór hægt af stað en þegar fimm mínútur voru til loka fyrri hálfleiks fengu Framarar víti sem hleypti lífi í leikinn. Fótbolti 28. júní 2023 21:55
Grótta með tvo sigra og Vestri vann á heimavelli Grótta vann sigra bæði í Lengjudeildum karla og kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þá lagði Vestri lið Leiknis í Lengjudeild karla. Fótbolti 28. júní 2023 21:37
Sandra tekur fram skóna og spilar með Grindavík á morgun Fyrrum landsliðskonan Sandra Sigurðardóttir hefur ákveðið að taka markmannshanskana af hillunni og spila með Grindavík í Lengjudeildinni. Fótbolti 28. júní 2023 21:18
Umfjöllun og viðtöl: Fram - HK 3-2 | Heimasigur í markaveislu í Úlfarsárdal Fram vann 3-2 sigur á HK þegar liðin mættust í Úlfarsárdal í Bestu deild karla í dag. Sigur Fram þýðir að Stjarnan er í fallsæti. Fótbolti 28. júní 2023 21:15
Knattspyrnupar trúlofað Glódís Perla Viggósdóttir greindi frá því fyrir skömmu að hún hefði trúlofast Kristófer Eggertssyni, kærasta sínum til margra ára. Það skammt milli fagnaðarefna hjá parinu en Glódís Perla varð 27 ára gömul í gær. Fótbolti 28. júní 2023 21:07
Umfjöllun og viðtal: KR - Keflavík 2-0 | KR upp í 5. sæti KR tók á móti botnliði Keflavíkur í 13. umferð Bestu deildar karla nú í kvöld. KR fór með afar sannfærandi 2-0 sigur af hólmi og komst í leiðinni í 5. sæti deildarinnar. Keflavík situr áfram á botninum. Fótbolti 28. júní 2023 21:05
Kaupir Liverpool manninn sem kom í veg fyrir að Ísland færi á EM? Liverpool hefur verið orðað við fjölmarga leikmenn á síðustu vikum en aðeins gengið frá samningum við Alexis Mac Allister síðan tímabilinu lauk. Nýtt nafn hefur nú dúkkað upp í umræðunni og það er leikmaður sem við Íslendingar könnumst of vel við. Enski boltinn 28. júní 2023 19:30
Umfjöllun: ÍBV - KA 2-0 | Eyjamenn komust úr fallsæti með sigri gegn KA ÍBV spyrnti sér frá fallsvæði Bestu-deildar karla í fótbolta með 2-0 sigri gegn KA á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í dag. Fótbolti 28. júní 2023 18:54
Tvö íslensk mörk í norska bikarnum Brynjar Ingi Bjarnason og Jónatan Ingi Jónsson voru báðir á skotskónum þegar lið þeirra léku í 16-liða úrslitum norska bikarsins í knattspyrnu í dag. Fótbolti 28. júní 2023 17:59
Lausnin við krampa er mjög sterkur drykkur sem kallar á fyndin viðbrögð Það hafa flestir fótboltamenn fengið krampa í fæturna í lokin á erfiðum leik. Lausnin hefur oftast verið að teygja á fætinum og margoft hafa jafnvel mótherjar komið leikmönnum til aðstoðar. Fótbolti 28. júní 2023 16:45
Banna leikmönnum að spila í treyju númer 88 Ítalir hafa bannað leikmönnum að spila í treyju númer 88 í ítalska boltanum og ástæðan er baráttan gegn gyðingahatri í landinu. Fótbolti 28. júní 2023 16:02
Tottenham og Leicester komast að samkomulagi um Maddison Enski landsliðsmaðurinn James Maddison, leikmaður Leicester, er við það að ganga í raðir Tottenham Hotspur. Fótbolti 28. júní 2023 15:31
Viðræður Gylfa og DC United haldi áfram en ekkert tilboð liggi fyrir Viðræður Gylfa Þórs Sigurðssonar og bandaríska MLS-liðsins DC United munu halda áfram næstu daga, en Gylfi hefur þó ekki fengið neitt samningstilboð frá félaginu. Fótbolti 28. júní 2023 14:29
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn