
Leikur stöðvaður því snjóboltum rigndi yfir markvörð gestanna
Stöðva þurfti leik HJK og Aberdeen í Sambandsdeild Evrópu þar sem stuðningsfólk heimamanna gat ekki hætt að kasta snjóboltum í markvörð Skotanna.
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.
Stöðva þurfti leik HJK og Aberdeen í Sambandsdeild Evrópu þar sem stuðningsfólk heimamanna gat ekki hætt að kasta snjóboltum í markvörð Skotanna.
Brighton & Hove Albion er komið upp úr riðli sínum í Evrópudeildinni í knattspyrnu. Enn á þó eftir að koma í ljós hvort liðið vinnur riðilinn og fer beint í 16-liða úrslit eða hvort Marseille steli toppsætinu.
Maccabi Tel Aviv sótti 2-1 sigur gegn Breiðablik í 5. umferð riðlakeppni Sambands-deildarinnar. Írska knattspyrnugoðsögnin Robbie Keane þjálfar liðið og gaf sig til tals við undirritaðan strax að leik loknum en rauk út þegar talið barst að ísraelska fánanum sem leikmaður liðsins flaggaði við fögnuð opnunarmarksins.
Þýska fótboltalandsliðið er ekki að spila vel og ekki að byrja vel undir stjórn Julian Nagelsmann. Berti Vogts er með lausnina og er hún heldur róttæk. Hann segir að þjálfarinn ætti að vera aðstoðarþjálfari liðsins á komandi Evrópumóti.
Breiðablik tapaði leik sínum gegn Maccabi Tel Aviv á Kópavogsvelli í 5. umferð riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Þeir grænklæddu voru lengst af með yfirhöndina í leiknum en tókst aðeins að skora eitt mark og klaufaleg mistök leiddu til tveggja marka hjá gestunum sem dugði þeim til 1-2 sigurs.
Knattspyrnusamband Íslands hefur formlega óskað eftir aðkomu íslenska ríkisins að fjármögnun á leigu sambandsins á hitapylsunni svokölluðu sem notuð hefur verið til að gera Laugardalsvöll, þjóðarleikvang Íslendinga, leikfæran fyrir leikina sem fram hafa farið á vellinum núna undanfarnar vikur.
Breiðablik laut í lægra haldi fyrir Maccabi Tel Aviv, 1-2, þegar liðin áttust við í Sambandsdeild Evrópu á Kópavogsvelli í dag.
Aroni Jóhannssyni finnst Arsenal líklegri til að vinna titil á þessu tímabili en því síðasta.
Dan Biton, leikmaður Maccabi Tel Aviv, fagnaði marki sínu gegn Breiðabliki í Sambandsdeild Evrópu á Kópavogsvelli með ísraelska fánann.
Alisson Becker meiddist um helgina og verður ekki með Liverpool liðinu á næstunni. Hann missir af Evrópuleiknum í kvöld og verður hugsanlega frá í tvær vikur.
Stuðningsmenn Palestínu annars vegar og Ísraelsríkis hins vegar eru samankomnir við Kópavogsvöll vegna leiks Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu.
Breiðablik komst hársbreidd frá sínu fyrsta stigi í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar eftir stórfína frammistöðu á Kópavogsvelli, en tapaði leiknum á endanum 1-2 gegn Maccabi Tel Aviv.
Höskuldur Gunnlaugsson fagnar því að Blikar fá að spila leikinn á móti ísraelska félaginu Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu á þeirra eigin heimavelli í riðlakeppninni en ekki í Laugardalnum. Það kom þó ekki af góðu því færa þurfti leikinn af Laugardalsvellinum vegna veðuraðstæðna.
Maddie Cusack, varafyrirliði Sheffield United sem lést í september, átti erfitt með að ná endum saman. Móðir hennar segir of mikla pressu á fótboltakonum.
Lið í ensku úrvalsdeildinni hafa haldið áfram að spila leikmönnum vitandi það að þeir hafa fengið á sig ásakanir um kynferðisbrot eða heimilisofbeldi.
Fótboltamaðurinn Alex Þór Hauksson ætlar að taka sér góðan tíma í að ákveða næsta áfangastað á ferlinum. Hann útilokar ekki að spila á Íslandi á næsta tímabili.
Það vantaði svo sannarlega ekki mörkin í leiki Meistaradeildarinnar í gærkvöldi og nú er hægt að sjá öll mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.
Blikar mæta Macabbi Tel Aviv í Sambandsdeildinni á morgun. Leikurinn hefur verið færður af Laugardalsvelli yfir á Kópavogsvöll.
Liðsfélagi Orra Steins Óskarssonar hjá FCK í Danmörku er eftirsóttur af mörgum stórliðum í Evrópu og gæti yfirgefið félagið strax í janúar.
Það var mikið skorað í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld. Benfica fór illa að ráði sínu gegn Inter á heimavelli og þá kom PSV sér í góða stöðu í B-riðli.
Real Madrid tryggði sér í kvöld efsta sætið í C-riðli Meistaradeildarinnar með 4-2 sigri á Napoli á heimavelli í kvöld. Napoli dugir stig í lokaumferðinni til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum.
Orri Steinn Óskarsson og félagar hans í FCK eiga fína möguleika á því að komast í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Liðið er í harðri baráttu um annað sætið þegar ein umferð er eftir.
Arsenal náði heldur betur að hefna fyrir tapið gegn Lens í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni í knattspyrnu. Arsenal niðurlægði franska liðið á heimavelli í kvöld.
Arnór Sigurðsson kom inn sem varamaður í hálfleik þegar Blackburn vann góðan sigur í Championship-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Innkoma Arnórs hafði góð áhrif á lið Blackburn.
Manchester United og Galatasaray gerðu 3-3 jafntefli þegar liðin mættust í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld. United missti niður tveggja marka forystu í leiknum.
Spurning sem fréttamaður TNT Sports spurði Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, hefur vakið talsverða athygli.
Fyrrverandi leikmaður RB Leipzig og fyrrverandi unglingalandsliðsmaður Þýskalands, Agyemang Diawusie, lést aðeins 25 ára.
Það er enn ekki ljóst hver mun taka á sig að kostnaðinn við undirbúning Laugardalsvallar fyrir Evrópuleiki Breiðabliks í vetur. Undirbúningur síðustu þriggja vikna fyrir síðasta heimaleikinn, sem fara átti fram á Laugardalsvelli annað kvöld, er farinn í vaskinn með einhliða ákvörðun UEFA í gær og hyggst framkvæmdastjóri KSÍ taka málið upp á fundi UEFA um komandi helgi.
Halldór Árnason, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta, og Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði liðsins sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Kópavogsvelli í dag fyrir leik liðsins gegn Maccabi Tel Aviv í 5.umferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun.
Dani Carvajal, varnarmaður Real Madrid, heldur því fram að leikmenn væru til í það að taka á sig launalækkun gegn því að spila færri leiki, minnka álagið og meiðast þar með minna.