Tottenham og Man United mætast í bikarúrslitum Tottenham Hotspur og Manchester United mætast í úrslitum ensku bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Tottenham lagði Leicester City í undanúrslitum á meðan Man United lagði Englandsmeistara Chelsea. Enski boltinn 14. apríl 2024 16:24
Ódeigur Andri Lucas steig aftur á punktinn og skoraði Andri Lucas Guðjohnsen var óhræddur við að stíga aftur á punktinn eftir að hafa brennt fyrri vítaspyrnu sína í 1-1 jafntefli Lyngby og Hvidovre. Fótbolti 14. apríl 2024 16:23
Allt lagt í sölurnar á Anfield en niðurstaðan grátlegt tap Liverpool tapaði 0-1 fyrir Crystal Palace og missti af gullnu tækifæri til að koma sér í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 14. apríl 2024 15:00
Katla komst á blað í fyrsta deildarleik Tveimur leikjum lauk rétt í þessu í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Katla Tryggvadóttir opnaði markareikning sinn fyrir Kristianstad þegar hún skoraði annað markið í 3-1 útisigri gegn AIK. Fótbolti 14. apríl 2024 12:55
Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Sunnudagar eru uppáhalds dagar sumra sem njóta þess til dæmis að sofa út og kveikja svo á sjónvarpinu. Með offramboði af streymisveitum, þáttaseríum og kvikmyndum gætu sumir þó veigrað sér frá því að kveikja á imbanum sökum valkvíða. Lífið á Vísi heldur áfram að taka púlsinn á fjölbreyttum hópi fólks í Hámhorfinu þar sem ýmsar hugmyndir af sjónvarpsglápi koma fram. Bíó og sjónvarp 14. apríl 2024 12:31
Mikil meiðslavandræði fyrir stórleikinn gegn Arsenal Það bætti gráu ofan á svart fyrir Bayern München þegar Kinglsey Coman fór meiddur af velli í 2-0 sigri þeirra gegn Köln. Fótbolti 14. apríl 2024 11:02
Dagur Dan, Messi og Suárez á markaskónum Fjöldi leikja fór fram í MLS deildinni í Bandaríkjum í nótt. Íslendingurinn Dagur Dan Þórhallsson skoraði gott mark í útivallarsigri og stjörnuprýtt lið Inter Miami vann dramatískan sigur eftir hlýjar kveðjur frá Patrick Mahomes. Fótbolti 14. apríl 2024 09:30
Ten Hag strunsaði út af blaðamannafundi: „Vitum að þetta er ekki nógu gott“ Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, viðurkenndi að lið sitt hefði ekki átt skilið að vinna Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gær, laugardag. Þá gagnrýndi hann leikmenn sína fyrir slakan fyrri hálfleik. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Enski boltinn 14. apríl 2024 07:01
Hollywood-lið Wrexham upp um deild annað árið í röð Ævintýri Wrexham virðist engan endi ætla að taka. Liðið komst í dag, laugardag, upp um deild annað árið í röð þökk sé ótrúlegum 6-0 sigri á Forest Green. Enski boltinn 13. apríl 2024 23:00
Ísak Bergmann á skotskónum og Düsseldorf dreymir Fortuna Düsseldorf vann 2-0 útisigur á Wehen í þýsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Liðið hefur nú unnið fimm leiki í röð og lætur sig dreyma um sæti í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Fótbolti 13. apríl 2024 22:15
La Liga: Toppliðin tvö unnu nauma sigra Real Madríd og Barcelona unnu bæði leiki sína í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, í dag með einu marki gegn engu. Þá vann Atlético Madríd góðan sigur á Girona í baráttunni um 3. sætið. Fótbolti 13. apríl 2024 21:00
Man United stal stigi á Vitality-vellinum AFC Bournemouth og Manchester United gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Gestirnir frá Manchester lentu tvívegis undir en komu til baka í bæði skiptin. Það má þó með sanni segja að þeir hafi stolið stiginu í dag. Enski boltinn 13. apríl 2024 18:40
„Að fá á sig þrjú mörk er bara of mikið” Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA í Bestu deild karla í knattspyrnu, segir erfitt að vinna þegar andstæðingurinn skorar þrjú mörk líkt og FH gerði á Greifavellinum í dag og fór með 3-2 sigur af hólmi gegn lærisveinum Hallgríms. Íslenski boltinn 13. apríl 2024 18:34
Eyþór Wöhler á leið í KR Framherjinn Eyþór Aron Wöhler er á leið í KR samkvæmt öruggum heimildum Vísis. Íslenski boltinn 13. apríl 2024 18:11
„Heyrði „skjóttu“ þannig ég lét bara vaða“ Kjartan Kári Halldórsson skoraði eitt mark og átti stóran þátt í öðru þegar FH vann 3-2 útisigur á KA í 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Mark Kjartans Kára kom á 58. mínútu og reyndist sigurmark leiksins. Íslenski boltinn 13. apríl 2024 18:01
Dramatík á lokamínútunum í fyrstu umferð Sænska úrvalsdeildin í knattspyrnu, Damallsvenskan, fór af stað með látum í dag. Fótbolti 13. apríl 2024 14:58
Eftirmaður Rubiales liggur líka undir grun í spillingarmálinu Spillingarmál hefur skekið spænska knattspyrnusambandið undanfarnar vikur. Fyrrum forseti þess, Luis Rubiales, var handtekinn fyrir rúmri viku. Eftirmaður hans í starfi gaf vitnisburð en liggur nú einnig undir grun lögreglu fyrir brotlegt athæfi. Fótbolti 13. apríl 2024 14:44
Mark Kristínar dugði skammt gegn AGF Kristín Dís Árnadóttir skoraði eina mark Bröndby í 2-1 tapi gegn AGF í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hafrún Rakel Halldórsdóttir var utan hóps hjá Bröndby í dag. Fótbolti 13. apríl 2024 13:58
Meiðsli herja á landsliðskonur Áfram herja meiðsli á sóknarmenn íslenska landsliðsins og setja svip sinn á þýsku úrvalsdeildina í fótbolta. Sveindís Jane Jónsdóttir verður ekki með Wolfsburg næstu misserin og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayer Leverkusen, fór meidd af velli í dag. Fótbolti 13. apríl 2024 13:40
„Hart og ljótt brot“ en Sveindís slapp með slitin liðbönd Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, kveðst þakklát yfir því að geta spilað fótbolta á ný fyrr en óttast var í fyrstu, eftir að hún meiddist í öxl í leiknum við Þýskaland í síðsutu viku. Fótbolti 13. apríl 2024 09:30
Leicester að fatast flugið í toppbaráttunni Leicester City ætlar að ganga bölvanlega að tryggja sér sæti í efstu deild að ný en liðið tapaði í kvöld á útivelli gegn Plymouth 0-1. Fótbolti 12. apríl 2024 22:31
Emma Hayes svaraði fyrir sig með ljóði Samskipti, eða samskiptaleysi jafnvel, þeirra Emmu Hayes, stjóra Chelsea og Jonas Eidevall stjóra Arsenal, eftir bikarúrslitleik liðanna á dögunum halda áfram að rata í fjölmiðla en Hayes tjáði sig um málið á blaðamannafundi í dag en á nokkuð óhefðbundin hátt. Fótbolti 12. apríl 2024 17:45
KSÍ ræður fyrrum landsliðskonu til starfa á skrifstofunni Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Katrínu Ómarsdóttur tímabundið til starfa á skrifstofu sambandsins. Fótbolti 12. apríl 2024 15:11
KR-ingar líta í kringum sig: „Þetta er mikill skellur“ Gregg Ryder, þjálfari karlaliðs KR í fótbolta, segir vonbrigði að missa tvo kantmenn liðsins í meiðsli. Þetta sé tækifæri fyrir aðra að stíga upp og þá útilokar hann ekki styrkingu á hópnum í ljósi þessa. Íslenski boltinn 12. apríl 2024 11:08
Börn Kane sluppu vel Harry Kane, framherji Bayern München, var nýlentur í London á mánudag, vegna leiksins við Arsenal, þegar hann fékk þær fréttir að þrjú elstu börn hans hefðu lent í árekstri í Þýskalandi. Fótbolti 12. apríl 2024 09:31
Á kafi í fjárhættuspili í afmæli dóttur sinnar Myndband af brasilíska fótboltakappanum Neymar á kafi í netpóker í sex mánaða afmæli dóttur sinnar hefur breiðst út eins og eldur í sinu um netheima. Fótbolti 11. apríl 2024 22:57
„Við spiluðum illa og áttum skilið að tapa“ „Þetta var skelfilegur leikur, guð minn góður. Við byrjuðum vel, mjög vel, en héldum því ekki áfram. Við vorum alls staðar en á sama tíma ekki neins staðar“ sagði Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, eftir 0-3 tap gegn Atalanta. Fótbolti 11. apríl 2024 22:30
Mikael Neville og Stefán Teitur mætast í bikarúrslitaleik AGF fór með sigur af hólmi í einvígi sínu gegn Nordsjælland, 4-2 samanlagt. Mikael Neville Anderson og Stefán Teitur Þórðarson munu því mætast í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar. Fótbolti 11. apríl 2024 21:36
Stíflan brast undir lokin og Leverkusen vann West Ham tók á móti Bayer Leverkusen í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar og veitti gestunum hörku viðureign, en tapaði að endingu 0-2. Jonas Hoffmann og Victor Boniface tryggðu Leverkusen sigurinn. Fótbolti 11. apríl 2024 18:31
Rauði herinn horfði á slæmt tap Liverpool mátti þola slæmt tap, 0-3 á heimavelli, gegn Atalanta í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Fótbolti 11. apríl 2024 18:31