

Innrás Rússa í Úkraínu
Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Versti dagur í langan tíma
Icelandair hefur lækkað mest íslenskra félaga á rauðum degi á hlutabréfamarkaði í dag. Hækkandi olíuverð bítur flugfélög - en mun væntanlega einnig bíta íslenska neytendur, þegar það ratar inn í bensínverð.

Jós fúkyrðum yfir rússneska sendiherrann
Mikill fjöldi fólks stóð við sendiráð Rússa við Túngötu síðdegis í gær og mótmæltu innrás Rússa í Úkraínu.

Heldur til í sprengjuskýli: Bardagar allt í kring um borgina
Íbúar í Kænugarði, sem hafa ekki flúið borgina, eru nú margir í sprengjuskýlum vegna árása Rússa í morgun. Rússar hófu árásir af fullum krafti um klukkan fjögur í nótt en tvær íbúðabyggingar í Kænugarði urðu fyrir rússneskri þotu sem var skotin niður og eru nú rústir einar.

Um hvað snýst stríðið í Úkraínu?
Stríð byrja skyndilega en eiga sér þó jafnan aðdraganda.

Vaktin: Hart barist í Kænugarði
Loftárásir Rússa hófust aftur klukkan fjögur í nótt að staðartíma í Úkraínu. Nú er sólarhringur liðinn síðan Rússar hófu allsherjarinnrás í Úkraínu og talið er að tæplega 140 Úkraínumenn hafi fallið í átökunum.

Selenskíj telur markmið Pútíns að bola sér frá völdum
Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur heitið því að halda kyrru fyrir í Kænugarði á meðan úkraínski herinn verst árásum Rússa, sem nálgast höfuðborgina óðfluga.

Instagram eyddi færslu Zinchenko um Putin
Stríð geisar nú í Úkraínu þar sem rússneski herinn hefur ráðist inn í suðri, austri og norðri.

Grípa til umfangsmikilla refsiaðgerða en ganga ekki eins langt og sumir myndu vilja
Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands og Evrópusambandsins tilkynntu síðdegis um refsiaðgerðir gegn Rússum vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þrátt fyrir að ríkin fullyrða að þeirra aðgerðir séu þær hörðustu og umfangsmestu í sögunni var ekki ákveðið að loka fyrir aðgengi Rússa að alþjóðlega SWIFT-greiðslukerfinu, sem flestir eru sammála um að myndi reynast mikið högg.

NATO eykur viðbúnað sinni í aðildarríkjunum í austri
Allar helstu þjóðir Vesturlanda hafa fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og ákveðið að herða á refsiaðgerðir sínar gagnvart þeim. Nato ætlar að styrkja herafla sinn í aðildarríkjum sínum í austur Evrópu.

Eins og fjölskylda að éta sjálfa sig
Rússnesk kona sem búsett hefur verið á Íslandi um árabil er í áfalli vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Hana óraði ekki fyrir því að Pútín léti til skarar skríða.

Forseti Úkraínu kallar almenning til vopna
Stjórnvöld í Úkraínu skora á almenning að sækja sér vopn í vopnabúr stjórnarhersins og berjast á móti innrásarher Rússlands. Mikill fjöldi manns hefur reynt að flýja í vesturátt frá austurhéruðum landsins þar sem ástandið er verst og frá höfuðborginni Kænugarði.

Sendiherra Rússa segir markmið að ganga frá her Úkraínu og nasistum þar
Sendiherra Rússlands á Íslandi segir markmið innrásarinnar í Úkraínu að afhernaðarvæða landið sem hafi ógnað öryggi Rússlands. Ganga þurfi milli bols og höfuðs á nasistum í Úkraínu sem þrífist þar í skjóli stjórnvalda.

„Sýnir okkur kannski að áhrifamáttur Vesturlanda er ekki eins mikill og þau sjálf halda“
Eiríkur Bergmann Einarsson prófessor segir að atburðirnir í Úkraínu sé heimssögulegur viðburður en að Vesturlönd hafi nánast sent boðsbréf til Kremlar og boðið Rússa velkomna að taka yfir Úkraínu.

Mótmæltu við rússneska sendiráðið
Boðað er til mótmæla við rússneska sendiráðið í Túngötu klukkan 17:30 í dag vegna innrásar Rússlands inn í Úkraínu. Fréttastofa verður í beinni frá mótmælunum á Vísi.

Sárt að fylgjast með úr fjarlægð og vill refsiaðgerðir gegn ólígörkum
Úkraínumaðurinn Naz Davidoff segir erfitt og sársaukafullt að fylgjast með átökunum í Úkraínu úr fjarlægð frá Íslandi. Hann hefur verið í nánu sambandi við vini og ættingja sína í landinu í dag og hefur áhyggjur af öryggi þeirra.

Mótmæli við sendiráðið: „Erfitt að lýsa þessu með orðum“
Rússneskur blaðamaður búsettur á Íslandi kveðst skammast sín fyrir hönd þjóðar sinnar í dag, nú þegar rússneski herinn hefur ráðist af fullum mætti inn í Úkraínu. Boðað er til mótmæla við rússneska sendiráð við Túngötu klukkan 17.30.

UEFA ætlar að taka úrslitaleik Meistaradeildarinnar af Rússum
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, ætlar að taka úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu af Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu.

„Vona að þessir stóru menn með engan heila muni stöðva þetta stríð“
Rúmenski knattspyrnustjórinn Mircea Lucescu, sem stýrir Dymamo Kiev í Úkraínu, segist verða að sýna gott fordæmi og ætlar ekki að yfirgefa Kænugarð þrátt fyrir innrás Rússa í landið og sprengingar í borginni.

Félag Guðlaugs Victors fjarlægir merki Gazprom af treyjunni
Schalke 04, sem landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson, leikur með hefur ákveðið að fjarlægja merki rússneska olíufyrirtækisins Gazprom af treyju sinni vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Var viku að forða eignum fyrirtækisins úr landi
Aron Arngrímsson, íslenskur kafari og atvinnurekandi sem hefur stundað rekstur í Úkraínu undanfarin ár, vann sleitulaust að því undanfarna viku að færa allar eignir fyrirtækis síns úr landi og í bandarískan banka.

Matvöruverslanir og hraðbankar tæmdir í Kænugarði
Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og íbúi í Kænugarði í Úkraínu var nokkuð rólegur þegar fréttastofa náði af honum tali á tólfta tímanum. Hann segir íbúa borgarinnar þó mjög kvíðna fyrir komandi dögum og mikil óvissa ríki meðal landsmanna um framhaldið.

Umheimurinn bregst harkalega við innrás Rússa
Leiðtogar ríkja um allan heim hafa fordæmt innrás Rússa í Úkraínu og boða hertar refsiaðgerðir gegn þeim. Pútin Rússlandsforseti hótar öllum þeim sem reyni að stöðva innrásina afleiðingum sem aldrei hafi sést áður í veraldarsögunni.

Lýsir stórmerkilegum persónulegum kynnum af Pútín
Harald Malmgren, hagfræðingur og ráðgjafi fjölda Bandaríkjaforseta í alþjóðamálum í gegnum tíðina, skrifar grein á vefmiðilinn Unherd í dag, þar sem hann lýsir persónulegum kynnum sínum af Vladimír Pútín Rússlandsforseta.

„Sorglegt að við séum að horfa upp á stríðsátök í Evrópu á þessum tímum“
Forsætisráðherra fordæmir innrás Rússa í Úkraínu og segir að íslensk stjórnvöld muni þegar í stað leggja aukið fé í mannúðaraðstoð. Þá megi búast við aukinni umferð og liðsflutningum af hálfu Atlantshafsbandalagsins um varnarsvæðið á næstu dögum og vikum.

Neyðarsöfnun vegna vopnaðra átaka í Úkraínu
Rauði krossinn hefur hafið neyðarsöfnun vegna vopnaðra átaka í Úkraínu sem hófust í morgun. Alþjóða Rauði krossinn er þegar með umfangsmikla mannúðaraðstoð í landinu vegna ástandsins sem hefur varað í austur Úkraínu undanfarin átta ár og vinnur hönd í hönd með Rauða krossinum í Úkraínu við að mæta þörfum almennra borgara og lina þjáningar vegna vopnaðra átaka.

Rússar fá að keppa í Eurovision þrátt fyrir allt
Rússland mun fá að taka þátt í Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, þrátt fyrir innrás í Úkraínu. Þetta tilkynntu skipuleggjendur keppninnar í hádeginu.

Sextán íslenskir ríkisborgarar enn í Úkraínu
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins fylgist grannt með stöðu 28 einstaklinga sem staddir eru í Úkraínu. Sextán þeirra eru íslenskir ríkisborgarar og hinir tólf hafa náin tengsl við Ísland, eru annað hvort makar eða börn íslenskra ríkisborgara.

„Ég svara ykkur eftir nokkra daga ef ég verð enn á lífi“
Þessi orð mælti faðir Oksönu Shabatura þegar hún bað hann um að leggja mat á ástandið og spá fyrir um framhaldið í Úkraínu. Þau eru til marks um þá óvissu og skelfingarástand sem almenningur í Úkraínu býr nú við.

Búast við að virkja viðbragð við Keflavíkurflugvöll
„Það sem kann að gerast er að virkjaðar verði viðbragðsáætlanir, varnaráætlanir, sem myndi þá og gæti þýtt - jafnvel óháð því hvort það yrði gert að aukinn viðbúnaður, aukin viðvera, aukið eftirlit og þar er Keflavíkursvæðið mikilvægt svæði. Og svona strategísk staðsetning okkar hér gerir það að verkum að það má búast við því að það verði aukinn viðbúnaður, aukið eftirlit og frekara viðbragð, hér eins og annars staðar.“

Rússneski sendiherrann kallaður á teppið
Mikhaíl V. Noskov, sendiherra Rússlands á Íslandi var kallaður á teppið í utanríkisráðuneytingu, bæði í gær og í dag, þar sem íslensk stjórnvöld fordæmdu árásir Rússa í Úkraínu. Forsætisráðherra segir það sorglegt að stríðsátök hafi brotist út í Evrópu.