Hvað er að gerast á leikmannamarkaðnum í NBA? Félagaskiptaglugginn í NBA deildinni rennur út annað kvöld og því er mikið slúðrað um hugsanleg leikmannaskipti á síðustu stundu. Leikmannamarkaðurinn hefur iðað síðustu daga eftir hver stórskiptin á fætur öðrum. Körfubolti 20. febrúar 2008 17:38
NBA í nótt: Denver lagði Boston Denver var fyrsta Vesturstrandarliðið til að vinna Boston í síðustu sautján slíkum leikjum síðarnefnda liðsins. Denver vann með 124 stigum gegn 118. Körfubolti 20. febrúar 2008 09:37
Garnett vill ólmur fá að spila í kvöld Framherjinn Kevin Garnett hjá Boston Celtics vonast til að fá að spila á ný með liðinu í nótt þegar það sækir Denver heim í NBA deildinni, en hann hefur misst af síðustu níu leikjum liðsins vegna meiðsla. Körfubolti 19. febrúar 2008 20:23
Jason Kidd kominn til Dallas Eftir langt þref er nú stjörnuleikstjórnandinn Jason Kidd loksins genginn formlega í raðir Dallas Mavericks þar sem hann hóf feril sinn í NBA deildinni á sínum tíma. Eigandi Dallas staðfesti þetta í samtali við ESPN nú undir kvöldið. Körfubolti 19. febrúar 2008 18:05
Félagaskipti Kidd sögð á næsta leyti Rod Thorn, forseti New Jersey Nets, sagði að allt útlit væri fyrir að félagaskipti Jason Kidd til Dallas Mavericks yrðu senn að veruleika. Körfubolti 19. febrúar 2008 14:05
NBA stjörnuleikurinn: Austrið lagði vestrið Þó svo að vesturhluti NBA-deildarinnar sé talinn mun sterkari en austrið sáu Ray Allen og LeBron James til þess að austrið hefndi ófaranna frá því í fyrra. Körfubolti 18. febrúar 2008 09:10
Stjörnuleikurinn í beinni á Sýn í nótt Stjörnuleikurinn í NBA deildinni verður í beinni útsendingu á Sýn í nótt klukkan eitt eftir miðnætti. Þar mætast skærustu stjörnur deildarinnar í árlegri viðureign úrvalsliða Austur- og Vesturdeildar, þar sem sóknarleikur og tilþrif eru í hávegum höfð. Körfubolti 17. febrúar 2008 21:20
Howard og Kapono unnu keppnir næturinnar Dwight Howard, leikmaður Orlando Magic, bar sigur úr býtum í troðslukeppni NBA deildarinnar í nótt. Howard var klæddur í Superman búning og sýndi skemmtileg tilþrif. Körfubolti 17. febrúar 2008 11:41
Mike Bibby á leið til Atlanta Leikstjórnandinn Mike Bibby hjá Sacramento Kings er á leið til Atlanta Hawks í NBA deildinni í skiptum fyrir fjóra leikmenn. Bibby hefur verið lykilmaður í liði Sacramento síðustu ár, en fær nú tækifæri með ungu og efnilegu liði Atlanta. Körfubolti 17. febrúar 2008 01:17
Gibson setti 11 þrista Daniel Gibson frá Cleveland Cavaliers stal senunni í nótt í árlegum leik nýliða gegn annars árs mönnum um stjörnuhelgina í NBA deildinni. Gibson skoraði öll 33 stig sín úr þristum og var valinn maður leiksins í auðveldum 136-109 sigri annars árs manna. Körfubolti 16. febrúar 2008 17:50
Nowitzki tekur sæti Bryant í skotkeppninni Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hefur samþykkt að taka sæti Kobe Bryant í þriggja stiga skotkeppninni um stjörnuhelgina. Bryant tekur ekki þátt í keppninni vegna meiðsla á fingri, en Nowizki hefur þrisvar tekið þátt í keppninni og vann hana árið 2006. Körfubolti 15. febrúar 2008 10:56
Kobe Bryant þarf í uppskurð Stjörnuleikmaðurinn Kobe Bryant hjá LA Lakers hefur átt við meiðsli að stríða á fingri undanfarna daga og nú er komið í ljós að hann þarf í uppskurð vegna þessa. Körfubolti 15. febrúar 2008 10:22
Phoenix lagði Dallas Tveir síðustu leikirnir í NBA deildinni fyrir stjörnuleikshlé fóru fram í nótt. Phoenix lagði Dallas á heimavelli og Miami tapaði níunda leik sínum í röð þegar það tapaði fyrir Chicago. Körfubolti 15. febrúar 2008 09:09
Ray Allen fer í stjörnuleikinn - Kobe tæpur Skotbakvörðurinn Ray Allen frá Boston Celtics fær að taka þátt í stjörnuleiknum í NBA um næstu helgi eftir að ljóst varð að Caron Butler frá Washington gæti ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla. Körfubolti 14. febrúar 2008 10:31
Mikið fjör í NBA í nótt Fjórtán leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og margir þeirra mjög áhugaverðir. Detroit vann 10. leik sinn í röð í annað sinn á leiktíðinni og Houston vann 8. leik sinn í röð. Þá lauk LA Lakers 9 leikja útivallarispu sinni og vann 7 af þeim. Körfubolti 14. febrúar 2008 09:27
Jason Kidd á leið til Dallas á ný? Heimildamenn ESPN sjónvarpsstöðvarinnar fullyrða að nú styttist í að leikstjórnandinn Jason Kidd hjá New Jersey Nets gangi í raðir liðsins sem tók hann í nýliðavalinu árið 1994, Dallas Mavericks. Körfubolti 13. febrúar 2008 19:21
Níu sigrar í röð hjá Detroit Detroit Pistons vann í nótt níunda leik sinn í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Atlanta á útivelli 94-90 í hörkuleik. Rasheed Wallace skoraði 21 stig fyrir Detroit og Chauncey Billups skoraði 12 af 16 stigum sínum í lokaleikhlutanum. Josh Smith skoraði 30 stig fyrir Atlanta. Körfubolti 13. febrúar 2008 09:31
Körfurnar í Phoenix þurfa að vera Shaq-heldar Leikmenn Phoenix Suns hafa farið þess á leit að körfurnar í æfingahúsnæði liðsins verði gerðar Shaq-heldar eftir að Shaquille O´Neal gekk í raðir liðsins og byrjaði að æfa. Körfubolti 12. febrúar 2008 19:07
NBA í nótt: Lakers á flugi Allt virðist ganga LA Lakers í haginn eftir að Pau Gasol gekk til liðs við félagið en félagið vann sinn þriðja útivallarsigur í röð í nótt. Körfubolti 12. febrúar 2008 09:15
NBA í nótt: Boston vann San Antonio Sjö leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt þar sem Boston vann góðan sigur á San Antonio, 98-90. Körfubolti 11. febrúar 2008 09:30
NBA í nótt: Indiana vann Portland Indiana virðist komið á beinu brautina á ný eftir sigur á Portland í NBA-deildinni í nótt, 101-93. Körfubolti 10. febrúar 2008 10:58
Skiptar skoðanir um félagaskipti Shaq Örlítill meirihluti lesenda Vísis telja að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Phoenix Suns að fá Shaquille O'Neal til liðsins. Körfubolti 9. febrúar 2008 16:26
Kidd nálgast hundrað þrefaldar tvennur Jason Kidd náði sinni 99. þrefaldri tvennu á ferlinum í nótt þegar að lið hans, New Orleans, vann Charlotte með fjórtán stiga mun í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 9. febrúar 2008 12:23
NBA í nótt: Kobe og Gasol með samtals 66 stig Kobe Bryant skoraði 36 stig og Pau Gasol 30 þegar að LA Lakers vann Orlando Magic á útivelli, 117-113. Körfubolti 9. febrúar 2008 11:35
Ég var ekki að hjálpa Boston Kevin McHale, forseti Minnesota Timberwolves, hafnar því alfarið að hann hafi verið að gera gamla félaginu sínu Boston Celtics greiða þegar hann færði því framherjann Kevin Garnett í skiptum fyrir Al Jefferson og fleiri í sumar. Körfubolti 8. febrúar 2008 17:21
Marion spilar líklega á sunnudaginn Þeir Shawn Marion og Marcus Banks hafa enn ekki lokið læknisskoðun hjá liði Miami Heat í NBA deildinni eftir að þeim var skipt frá Phoenix til Flórída fyrir Shaquille O´Neal. Pat Riley reiknar með því að þeir klári læknisskoðun í kvöld og verði með liðinu þegar það mætir LA Lakers á sunnudaginn. Körfubolti 8. febrúar 2008 17:07
NBA í nótt: Yao öflugur í sigri Houston á Cleveland Houston Rockets vann í nótt góðan sigur á Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta, 92-77. Körfubolti 8. febrúar 2008 08:51
Ég vinn titla þegar ég er reiður Shaquille O´Neal var formlega vígður inn í lið Phoenix Suns á blaðamannafundi í kvöld. Þar svaraði hann spurningum sem brunnið hafa á vörum margra síðan fréttist að hann ætlaði til Phoenix. Körfubolti 7. febrúar 2008 20:08
NBA í nótt: Ótrúlegur leikur í Phoenix Phoenix hélt upp á komu Shaquille O'Neal með því að bjóða upp ótrúlegan leik gegn New Orleans í nótt. Leikurinn verður sýndur á Sýn annað kvöld. Körfubolti 7. febrúar 2008 09:45
Shaquille O´Neal til Phoenix Nú rétt í þessu var staðfest að miðherjinn Shaquille O´Neal muni ganga í raðir Phoenix Suns í NBA deildinni - í einhverjum óvæntustu leikmannaskiptum síðari ára í deildinni. Körfubolti 6. febrúar 2008 23:12