Grant Hill fékk botnlangakast Framherjinn Grant Hill getur ekki leikið með liði Phoenix næstu tvær til þrjár vikurnar eftir að hafa gengist undir botnlangauppskurð. Hill hefur verið í byrjunarliði Phoenix í fyrstu 34 leikjum tímabilsins og leikið mjög vel. Körfubolti 10. janúar 2008 02:09
Riley íhugar að hætta þjálfun Pat Riley, þjálfari Miami Heat í NBA deildinni, útilokar ekki að hætta þjálfun að loknu yfirstandandi keppnistímabili. Riley er líka forseti Heat en er reyndar með samning sem þjálfari út leiktíðina 2010. Körfubolti 9. janúar 2008 19:51
NBA í nótt: Frábært afrek Jason Kidd dugði ekki til Jason Kidd náði sinni 97. þrefaldri tvennu á ferlinum í nótt en það dugði engu að síður ekki til gegn Charlotte Bobcats. Körfubolti 9. janúar 2008 09:05
NBA í nótt: Golden State vann San Antonio í framlengingu Baron Davis og Stephen Jackson áttu stjörnuleik er lið þeirra, Golden State, vann San Antonio Spurs í framlengdum leik í nótt, 130-121. Körfubolti 8. janúar 2008 09:02
NBA í nótt: 24 stig LeBron í fjórða leikhluta LeBron James bætti félagsmet þegar hann skoraði 24 stig í fjórða leikhluta leiks Cleveland og Toronto sem fyrrnefnda liðið vann, 93-90. Körfubolti 7. janúar 2008 08:59
Risasigur hjá Boston Boston Celtics vann í nótt stærsta sigur sinn til þessa á leiktíðinni í NBA þegar liðið skellti sjóðheitu liði Detroit Pistons á útivelli 92-85. Körfubolti 6. janúar 2008 06:02
Pippen á fullu með ToPo í Finnlandi Fyrrum NBA leikmaðurinn Scottie Pippen spilaði um helgina annan leik sinn í röð með finnska liðinu ToPo í Helsinki, en það er fyrrum lið Loga Gunnarssonar. Körfubolti 6. janúar 2008 00:13
NBA í nótt: Tæpt hjá toppliðunum Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Toppliðin í deildinni unnu nauma sigra á lægra skrifuðum andstæðingum sínum. Körfubolti 5. janúar 2008 13:23
NBA í nótt: Portland þurfti tvær framlengingar Portland Trail Blazers vann sinn fimmtánda sigur í síðustu sextán leikjum sínum þegar liðið vann Chicago í nótt í tvíframlengdum leik, 115-109. Körfubolti 4. janúar 2008 10:08
Hætti ekki fyrr en við vinnum titil Isiah Thomas, þjálfari New York Knicks í NBA deildinni, hefur ekki misst móðinn þó illa gangi hjá liðinu í vetur. Körfubolti 3. janúar 2008 16:42
Howard og Paul leikmenn mánaðarins Dwight Howard hjá Orlando Magic og Chris Paul hjá New Orleans voru í nótt útnefndir leikmenn desembermánaðar í NBA deildinni. Körfubolti 3. janúar 2008 12:23
Dallas lagði Golden State Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Dallas vann góðan sigur á erkifjendum sínum í Golden State 121-99 og hefur nú unnið sigur í báðum viðureignum liðanna í vetur. Körfubolti 3. janúar 2008 09:38
Odom fær eins leiks bann Framherjinn Lamar Odom hjá LA Lakers missir af leik liðsins gegn Philadelphia þann 4. janúar næstkomandi eftir að hann var dæmdur í eins leiks bann fyrir grófa villu á Ray Allen hjá Boston í leik liðanna á sunnudaginn. Körfubolti 1. janúar 2008 22:30
Detroit valtaði yfir Milwaukee Detroit Pistons er heitasta liðið í NBA deildinni í dag eftir að liðið rótburstaði Milwaukee með 45 stiga mun í nótt. Þrettán leikja sigurganga Portland var loksins stöðvuð í Utah. Körfubolti 1. janúar 2008 05:23
Stór yfirlýsing hjá Boston Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Efsta lið deildarinnar Boston Celtics tók erkifjendur sína í LA Lakers í bakaríið á útivelli 110-91. Körfubolti 31. desember 2007 04:24
NBA í nótt: 8. sigur Detroit í röð Detroit Pistons vann sinn áttunda sigur í röð í NBA-deildinni í körfubolta í nótt er liðið vann útisigur á Indiana, 98-92. Körfubolti 30. desember 2007 13:22
NBA í nótt: 12. sigur Portland í röð Portland hélt áfram sigurgöngu sinni í NBA-deildinni í nótt með sínum tólfta sigri í röð. Liðið vann ellefa stiga sigur á Minnesota, 109-98. Körfubolti 29. desember 2007 13:31
San Antonio - Toronto beint á Sýn í nótt Leikur San Antonio Spurs og Toronto Raptors í NBA deildinni verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 01:30 í nótt. Meistarar San Antonio hafa farið mjög vel af stað á leiktíðinni þrátt fyrir meiðsli lykilmanna, en Toronto reynir í kvöld að afstýra þriðja tapi sínu í röð á erfiðu sjö leikja ferðalagi sínu yfir jólin. Körfubolti 28. desember 2007 23:18
NBA í nótt: Lakers vann Phoenix Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt þar sem hæst bar sigur LA Lakers á Phoenix Suns í stigamiklum leik, 122-115. Körfubolti 26. desember 2007 11:22
Jólaævintýrið heldur áfram í Portland Jólin koma snemma hjá öskubuskuliði Portland Trailblazers í ár og í nótt vann liðið 99-96 sigur á Denver Nuggets á heimavelli. Þetta var tíundi sigur liðsins í röð í deildinni. Körfubolti 22. desember 2007 12:27
Payton langar að spila með Boston Leikstjórnandinn Gary Payton er sagður hafa mikinn áhuga á að taka fram skóna að nýju og ganga til liðs við Boston Celtics í NBA deildinni. Payton ákvað að hætta í sumar en hringdi í umboðsmann sinn eftir að hann sá Boston tapa fyrir Detroit í fyrrinótt. Körfubolti 21. desember 2007 15:56
James hafði betur gegn Bryant Þrír æsispennandi leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Einvígi LeBron James og Kobe Bryant var í sviðsljósinu þegar Cleveland tók á móti LA Lakers. Körfubolti 21. desember 2007 09:46
Heimtar 2,5 milljarða í skaðabætur Leikstjórnandinn Tony Parker hjá San Antonio hefur farið í 2,5 milljarða skaðabótamál við vefsíðuna x17 online eftir að hún hélt því fram að hann hefði haldið framhjá konu sinni Evu Longoriu með franskri fyrirsætu. Körfubolti 20. desember 2007 12:32
Ferill Mourning hugsanlega á enda Miðherjinn Alonzo Mourning hjá Miami Heat í NBA kann að hafa spilað sinn síðasta leik á ferlinum í nótt þegar liðið tapaði fyrir Atlanta í framlengdum leik. Mourning meiddist illa á hné og var borinn af velli. Körfubolti 20. desember 2007 10:16
Detroit stöðvaði sigurgöngu Boston Stórlið Detroit Pistons minnti rækilega á sig í NBA deildinni í nótt þegar það færði Boston Celtics fyrsta tapið á heimavelli með 87-85 sigri í Garðinum. Það var Chauncey Billups sem tryggði gestunum sigurinn með vítaskotum innan við sekúndu fyrir leikslok. Körfubolti 20. desember 2007 09:34
Stuðningsmenn Knicks heimta höfuð Thomas Stuðningsmenn New York Knicks eru nú búnir að fá sig fullsadda af vanhæfni þjálfarans Isiah Thomas og hafa skipulagt kröfugöngu í kvöld þar sem þeir krefjast þess að hann verði rekinn tafarlaust. Körfubolti 19. desember 2007 15:40
Michael Jordan æfir með Bobcats Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan er nú búinn að taka fram skóna að nýju og æfir á fullu með liði Charlotte Bobcats í NBA deildinni. Jordan er í stjórn félagsins og ákvað að reyna að efla andann í liðinu með uppátæki sínu, en liðinu hefur gengið afleitlega á síðustu vikum. Körfubolti 19. desember 2007 14:55
Keyrði fullur á afmælisdaginn Harðjaxlinn Charles Oakley sem á árum áður lék með New York Knicks í NBA deildinni hélt full glannalega upp á 44 ára afmælið sitt á dögunum. Hann var handtekinn ölvaður á bíl sínum norðan við Atlanta og þurfti að dúsa þrjá tíma í fangaklefa. Hann sýndi lögreglu þó engan mótþróa og hegðaði sér vel ef marka má frétt New York Daily News. Körfubolti 19. desember 2007 10:11
Lakers lagði Chicago Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. LA Lakers vann góðan sigur á Chicago á útivelli 103-91, en stuðningsmenn Chicago létu þá vera að kalla nafn Bryant eins og þeir gerðu eftir eitt stórtap liðsins í haust. Körfubolti 19. desember 2007 09:33
Fyrsta tap San Antonio á heimavelli Phoenix Suns varð í nótt fyrsta liðið til að leggja San Antonio á heimavelli þess með 100-95 sigri í Texas. Grant Hill skoraði 22 stig fyrir Phoenix en Tim Duncan skoraði 36 stig og hirti 17 fráköst fyrir San Antonio. Körfubolti 18. desember 2007 09:16