Sjöundi sigur Detroit í röð Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og unnust þeir allir á heimavelli. Detroit vann sjöunda sigurinn í röð með því að leggja LA Clippers, Denver skellti Golden State og þá vann Utah fimmta sigurinn í röð þegar það burstaði Atlanta. Körfubolti 13. febrúar 2007 04:27
Pat Riley ætlar að snúa aftur eftir stjörnuleikinn Harðjaxlinn Pat Riley mun snúa aftur í þjálfarastólinn hjá NBA meisturum Miami strax eftir stjörnuhelgi ef marka má fréttir sem láku út í gærkvöldi. Þetta mun verða formlega tilkynnt á blaðamannafundi á miðvikudaginn. Riley hefur verið frá keppni síðan í byrjun janúar þegar hann gekkst undir aðgerð á hné og mjöðm, en engum datt í hug að hann kæmi til baka fyrr en í fyrsta lagi undir vorið. Körfubolti 13. febrúar 2007 02:11
Steve Nash verður ekki með í stjörnuleiknum Kanadamaðurinn Steve Nash hjá Phoenix Suns verður ekki með í stjörnuleiknum í NBA sem fram fer í Las Vegas á sunnudaginn. Nash er meiddur á öxl og verður honum því gefið algjört frí frá því að spila þangað til 20. febrúar. Körfubolti 12. febrúar 2007 21:35
Detroit - LA Clippers í beinni í kvöld Leikur Detroit Pistons og LA Clippers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. Þar gefst NBA áhugamönnum fyrst tækifæri til að sjá Chris Webber spila með Detroit, en liðið hefur unnið sex leiki í röð og tíu af tólf síðan Webber gekk í raðir liðsins. Clippers hefur ekki unnið Detroit síðan árið 2002. Körfubolti 12. febrúar 2007 17:37
Samkynhneigð Amaechi veldur fjaðrafoki í NBA Fyrrum NBA leikmaðurinn John Amaechi olli talsverðu fjaðrafoki í heimspressunni fyrir helgina þegar hann tilkynnti um samkynhneigð sína í ævisögu sinni sem kom í hillur á dögunum. Hann varð um leið fyrsti NBA leikmaðurinn til að opinbera samkynhneigð sína, en ekki eru allir jafn hrifnir af yfirlýsingunni. Körfubolti 12. febrúar 2007 13:57
Dwyane Wade kláraði San Antonio Dwyane Wade átti enn einn stjörnuleikinn í gærkvöldi þegar Miami Heat vann góðan sigur á San Antonio Spurs á heimavelli. Cleveland vann góðan sigur á LA Lakers og Boston tapaði enn eina ferðina. Körfubolti 12. febrúar 2007 01:42
Cuban ósáttur við ummæli Wade Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks í NBA-deildinni, og Avery Johnson, þjálfari liðsins, verja Dirk Nowitzki af öllum mætti eftir að Dwayne Wade, leikmaður Miami, gagnrýndi þýska leikmanninn fyrir skort á leiðtogahæfileikum. Cuban og Johnson skjóta föstum skotum að Wade og segja honum að líta í eigin barm. Körfubolti 11. febrúar 2007 18:30
Carmelo Anthony valinn í stjörnuleikinn Vandræðagemlingurinn Carmelo Anthony hefur verið valinn í lið Vesturdeildarinnar sem tekur þátt í stjörnuleik NBA-deildarinnar þann 18. febrúar næstkomandi. Það var framkvæmdastjóri deildarinnar, sjálfur David Stern, sem valdi Anthony í leikinn vegna meiðsla Carlos Boozer. Körfubolti 11. febrúar 2007 16:45
Sjötti sigur Detroit í röð Rasheed Wallace spilaði líklega sinn besta leik á tímabilinu og leiddi Detroit til sigurs gegn Toronto í NBA-deildinni í nótt, 98-92. Þetta var sjötti sigurleikur Detroit í röð en Toronto hefur hins vegar tapað síðustu átta leikjum sínum gegn Detroit. Körfubolti 11. febrúar 2007 12:41
Boston Celtics sett nýtt félagsmet Boston Celtics setti nýtt félagsmet í NBA-deildinni í nótt með því að tapa 17. leik sínum í röð. Í þetta sinn steinlá liðið á heimavelli fyrir New Jersey, 92-78, þrátt fyrir að Paul Pierce, helsta stjarna liðsins, hafi spilað með liðinu á ný eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Fjölmargir leikir fóru fram í NBA í nótt. Körfubolti 10. febrúar 2007 12:10
Bosh hafði betur gegn Howard í frábæru einvígi Toronto Raptors er heldur betur á góðu skriði í NBA deildinni þessa dagana og í nótt vann liðið fjórða leikinn í röð og þann níunda af síðustu ellefu þegar liðið skellti Orlando Magic 113-103. Stjörnuleikmennirnir Dwight Howard og Chris Bosh háðu mikið einvígi í leiknum og fóru báðir á kostum. Körfubolti 8. febrúar 2007 03:50
Washington - San Antonio í beinni á miðnætti Leikur Washington Wizards og San Antonio Spurs verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu á miðnætti í kvöld. Þar gefst NBA áhugamönnum tækifæri til að sjá einn litríkasta og besta leikmann deildarinnar Gilbert Arenas leika listir sínar. Körfubolti 7. febrúar 2007 20:20
Leikmenn Indiana enn til vandræða Lið Indiana Pacers er enn og aftur komið í fréttirnar á röngum forsendum en í dag greindi Indianapolis Star frá því að kráareigandi í borginni sakaði þrjá af leikmönnum liðsins um að hafa lamið sig illa aðfararnótt þriðjudags. Tveir af þessum leikmönnum voru einnig í eldlínunni í skotárásinni fyrir utan súlustað í borginni fyrr í vetur. Körfubolti 7. febrúar 2007 19:31
15 töp í röð hjá Boston Boston tapaði í nótt 15. leiknum í röð í NBA deildinni og ekkert lát virðist vera á hrakförum liðsins, þar sem aðalstjarnan Paul Pierce er enn langt frá því að snúa aftur úr erfiðum meiðslum. Boston steinlá fyrir Detroit í nótt og nú hefur liðið tapað 23 af 25 leikjum meðan Pierce er meiddur. Körfubolti 7. febrúar 2007 13:33
Memphis - Houston í beinni í nótt Leikur Memphis Grizzlies og Houston Rockets verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Hér er á ferðinni leikur tveggja liða með mjög ólíkan leikstíl og gaman verður að sjá hvort það verður sókn eða vörn sem hefur betur að þessu sinni. Körfubolti 6. febrúar 2007 20:41
Barkley vann tæpar 50 milljónir í Las Vegas um helgina Fyrrum körfuknattleiksmaðurinn Charles Barkley sem nú er sjónvarpsmaður á ESPN sjónvarpsstöðinni, segist hafa unnið tæpar 50 milljónir króna í Las Vegas um síðustu helgi þar sem hann veðjaði m.a. á úrslitin í Superbowl. Barkley viðurkennir að hann eigi við vandamál að stríða þegar kemur að veðmálum og segist hafa tapað 170 milljónum á 6 klukkutímum í spilavíti í fyrra. Körfubolti 6. febrúar 2007 13:51
Jordan og Dominique dæma í troðkeppninni Dómnefndin í troðslukeppninni í stjörnuleiknum í NBA þann 17. febrúar næstkomandi verða engir smákallar og ef til vill betri troðarar en sjálfir keppendurnir. Í gærkvöldi var tilkynnt að fyrrum meistararnir Dominique Wilkins, Michael Jordan, Dr. Julius Erving, Kobe Bryant og Vince Carter verði í dómnefndinni að þessu sinni. Körfubolti 6. febrúar 2007 05:49
Shaquille O´Neal allur að koma til Shaquille O´Neal virðist vera að ná heilsu á ný eftir löng og erfið meiðsli, en í nótt skoraði hann 22 stig á aðeins 21 mínútu í sigri Miami Heat á Charlotte. Dwyane Wade skoraði 27 stig og gaf 12 stoðsendingar fyrir Miami sem vann fjórða leikinn í röð, en Raymond Felton skoraði 20 stig fyrir Charlotte. Körfubolti 6. febrúar 2007 04:58
Detroit herðir takið á Cleveland Liðsmenn Detroit Pistons minntu LeBron James og félaga í Cleveland Cavaliers rækilega á það í nótt að liðið á enn nokkuð í að geta kallað sig stórveldi í Austurdeildinni. Detroit vann auðveldan útisigur á Cleveland 90-78 og var það fimmti sigur Detroit á Cleveland í röð í deildarkeppninni. Körfubolti 5. febrúar 2007 02:22
Þriðji sigur Utah á Phoenix í vetur Utah Jazz lagði Phoenix Suns nokkuð óvænt á útivelli í NBA deildinni í körfubolta í nótt og var þetta þriðji sigur Utah á Phoenix í vetur. Jazz ber því ábyrgð á vænum hluta aðeins 10 tapleikja Phoenix, en þar af eru tvö þeirra á heimavelli Suns. Þá áttust þeir Kobe Bryant og Gilbert Arenas við í miklu einvígi Washington og LA Lakers. Körfubolti 4. febrúar 2007 14:02
Vafasamt met hjá Boston Tíu leikir fóru fram í NBA í nótt. Indiana lagði LA Lakers í beinni útsendingu á Sýn. Sögufrægt lið Boston Celtics tapaði í nótt 14. leik sínum í röð og er þetta lengsta taphrina þessa stórveldis sem á að baki 16. meistaratitla. Denver vann langþráðan sigur þegar liðið skellti Portland í framlengingu. Körfubolti 3. febrúar 2007 13:20
Indiana - LA Lakers í beinni á Sýn í kvöld Leikur Indiana Pacers og Los Angeles Lakers verður sýndur beint á Sýn á miðnætti í kvöld. Lið Indiana er enn að slípa sig saman eftir mikil leikmannaskipti á dögunum og hefur liðið unnið 24 leiki og tapað 21. Lakers hefur ekki gengið jafn vel undanfarið en liðið vann þó stórsigur á Boston í síðasta leik þar sem Kobe Bryant fór á kostum með 43 stigum. Lakers hefur unnið 28 leiki og tapað aðeins 18. Körfubolti 2. febrúar 2007 17:02
Langþráður sigur hjá Phoenix - Wade fór hamförum Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Dwyane Wade tryggði Miami góðan sigur á Cleveland og Phoenix vann fyrsta leik sinn í vetur gegn toppliðunum í Vesturdeildinni þegar liðið skellti San Antonio í frábærum leik í beinni á NBA TV. Körfubolti 2. febrúar 2007 06:01
Nash og Bosh leikmenn mánaðarins í NBA Steve Nash hjá Phoenix Suns og Chris Bosh hjá Toronto Raptors voru í kvöld útnefndir leikmenn janúarmánaðar í NBA deildinni, en þeir verða báðir í byrjunarliðunum í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. Körfubolti 2. febrúar 2007 01:15
Carmelo Anthony ekki valinn í stjörnuliðið Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver var ekki á meðal þeirra leikmanna sem í kvöld voru valdir sem varamenn í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. Talið er víst að þáttaka Anthony í slagsmálunum í New York fyrir nokkrum vikum hafi spilað stóran þátt í því að þessi stigahæsti leikmaður í NBA var ekki valinn í liðið. Körfubolti 2. febrúar 2007 01:05
Fjórða tap Denver í röð Fjöldi leikja fór fram í NBA deildinni í nótt. Denver tapaði sínum fjórða leik í röð í nótt þegar liðið lá fyrir Portland á útivelli. Utah skellti San Antonio og Kobe Bryant sneri aftur með látum eftir leikbann og færði Boston 13. tapið í röð. Körfubolti 1. febrúar 2007 13:20
Boozer úr leik í 4-6 vikur Framherjinn Carlos Boozer hjá Utah Jazz verður frá keppni í 4-6 vikur eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í fæti eftir samstuð í leik gegn New Orleans á mánudagskvöldið. Þetta er mikið áfall fyrir lið Utah sem komið hefur verulega á óvart í NBA deildinni í vetur. Körfubolti 31. janúar 2007 19:25
Rodman í raunveruleikasjónvarp (myndbrot) Villingurinn og fyrrum NBA leikmaðurinn Dennis Rodman er nú kominn með sinn eigin raunveruleikasjónvarpsþátt sem framleiddur er af Mark Cuban, eiganda Dallas Mavericks. Þátturinn hefur fengið nafnið Geak to Freak og fjallar um það hvernig Rodman hjálpar venjulegu fólki að sleppa fram af sér beislinu. Smelltu á hlekkinn í fréttinni til að sjá brot úr þættinum. Körfubolti 31. janúar 2007 15:30
Eddie Jones á leið til Miami á ný Hinn fjölhæfi Eddie Jones hjá Memphis Grizzlies er nú að ganga frá því að verða keyptur út úr samningi sínum við félagið og fregnir herma að hann muni ganga í raðir meistara Miami Heat á morgun. Jones, sem bæði getur spilað sem bakvörður og framherji, spilaði í sex ár með Miami á sínum tíma. Körfubolti 31. janúar 2007 11:59
Þriðja tap Lakers í röð LA Lakers tapaði í nótt þriðja leik sínum í röð þegar liðið lá fyrir New York Knicks á útivelli 99-94, en liðið var án Kobe Bryant sem tók út leikbann. Miami þurfti hinsvegar ekki á Shaquille O´Neal að halda til að bursta Milwaukee og Dallas fékk góða hjálp úr óvæntri átt til að vinna Seattle. Körfubolti 31. janúar 2007 11:30