

Olís-deild karla
Leikirnir

Tandri: Fórum upp á heilsugæslu eftir ÍR leikinn og fengum rotvarnarefni
„Ég er mjög ánægður með sigurinn, við sýnum ákveðinn karakter þó þetta hafi ekki verið sannfærandi en það eru stigin sem telja að leikslokum,” sagði Tandri Már Konráðsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir sigurinn á ÍBV í Olís deild karla í kvöld.

Patrekur: Við tókum allt í einu upp á því að fara í körfubolta
Stjarnan vann sinn annan leik í röð í kvöld. ÍBV mætti í TM höllina og var þetta háspennu leikur sem endaði með dramatík og gat ÍBV jafnað í lokasókn leiksins en það var innihaldslaus sókn sem fór í vaskinn og Stjarnan vann 30 - 29.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 30-29 | Dramatík í Garðabæ
Þó lítið hafi bent til þess framan af leik urðu lokamínúturnar í TM höllinni æsispennandi og fengu ÍBV seinustu sókn leiksins til að jafna leikinn en skot Dags er varið frá Tandra og Stjarnan vann sinn annan leik í röð.

ÍR skoraði ekki í sextán mínútur gegn KA og klúðraði þrettán sóknum í röð
ÍR átti í miklum vandræðum í sókninni gegn KA í Olís-deild karla í gær. ÍR-ingar töpuðu leiknum með helmingsmun, 32-16, og skoruðu ekki í sextán mínútur í seinni hálfleik.

Dagskráin í dag - Handboltaveisla á Stöð 2 Sport
Það er nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Þór 33-24 | Selfoss með öruggan sigur
Selfyssingar áttu ekki í miklum vandræðum með nýliða Þórs í Olís-deild karla í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Fram 34-28 | Haukar keyrðu yfir Fram í síðari hálfleik
Haukar unnu öruggan sigur á Fram í Olís-deild karla að Ásvöllum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: KA - ÍR 32-16 | KA-menn léku sér að Breiðhyltingum
KA-menn áttu ekki í neinum vandræðum með botnlið ÍR í Olís-deild karla í dag.

Aron: Ánægður með frammistöðuna í síðari hálfleik
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka var sáttur með frammistöðu sinna manna þegar þeir unnu góðan sigur á Fram í 8. umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag. Lokatölur 34-28.

Snorri Steinn: Markvarsla fyrri hálfleiks mörgu leyti mér að kenna
Valur kom sér aftur á beinu brautina með sigri á Gróttu í fyrsta leik dagsins í áttundu umferð. Valur voru búnir að tapa síðustu tveimur leikjum og voru hungraðir í sigur. Fór það svo að þeir unnu tveggja marka sigur, 30-28, á Seltjarnarnesi í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Valur 28-30 | Valsmenn náðu í tvö stig á Seltjarnarnesi
Valur vann tveggja marka sigur á Gróttu í dag í Olís deild karla í handbolta. Lokatölur 30-28 Val í vil.

Dagskráin í dag - Orrustan um Ofurskálina
Úrslitin ráðast í ameríska fótboltanum þegar Tom Brady og félagar taka á móti Patrick Mahomes og félögum.

Ekki sammála góðum vini sínum en skilur af hverju hann var svona grautfúll
Seinni bylgjan fór yfir dómana tvo sem þjálfari ÍR-inga var svo ofboðslega ósáttur með.

Aukakastið sem leiddi til vítisins umdeilda ranglega tekið
Að sjálfsögðu var farið yfir vítakastið umdeilda sem var dæmt í blálokin á leik FH og KA í Olís-deild karla í Seinni bylgjunni í gær.

Átta mörk og áttatíu prósent nýting í fyrsta leiknum fyrir Selfoss í áratug
Ragnar Jóhannsson lék sinn fyrsta leik fyrir Selfoss í áratug í gær. Hann hefði ekki getað beðið um betri um betri byrjun því hann skoraði átta mörk í öruggum sigri á Val, 24-30.

Sjáðu vítadóminn sem FH-ingar voru svo reiðir yfir
FH-ingar voru langt frá því að vera sáttir með vítið sem var dæmt á þá undir lok leiksins gegn KA-mönnum í Olís-deildinni í gær.

Sportið í dag: „Brjálaður ef þjálfari talaði svona um liðið mitt“
Kristinn Björgúlfsson, þjálfari ÍR, fór mikinn í viðtali við Vísi eftir tapið gegn Stjörnunni í Olís-deildinni í handbolta í gær. Skot hans á leikmenn Stjörnunnar voru honum ekki til sóma að mati strákanna í Sportinu í dag.

Tandri um ummæli Kristins: Segir meira um hans lið en okkar
„Þetta var torsóttur sigur, þetta var mjög erfiður leikur á köflum en mjög ánægjulegt að taka stigin tvö,” sagði Tandri Már Konráðsson, leikmaður Stjörnunnar, eftir mikilvægan en erfiðan sigur liðsins á ÍR í Olís deildinni í kvöld.

„Fullt af leikmönnum í Stjörnunni sem eru runnir út af dagsetningu“
Það var spennandi leikur í Austurbergi þar sem ÍR var hársbreidd frá því að vinna sinn fyrsta sigur en Stjarnan missti ekki trúna og gerðu þeir vel í að landa stigunum tveimur í kvöld.

Snorri Steinn: Hann dró verulega úr okkur tennurnar
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, sagði að sínir menn hefðu einfaldlega ekki verið nógu góðir í tapinu fyrir Selfossi í kvöld.

Sigursteinn: Best að ég tjái mig sem minnst
Það er óhætt að segja að dramatíkin hafi verið allsráðandi í Kaplakrika þegar FH og KA gerðu 31-31 jafntefli í Olísdeild karla í handbolta. KA jafnaði metin úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn og voru FH-ingar æfir yfir þeim örlagaríka vítadómi. Sigursteinn Arndal er þjálfari FH og hann var augljóslega ekki sáttur eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Selfoss 24-30 | Rasimas rosalegur í sigri Selfyssinga á Hlíðarenda
Selfoss vann öruggan sex marka sigur á Val, 24-30, í fyrsta leik sínum í Olís-deild karla í 125 daga.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Stjarnan 24-27 | Torsóttur Stjörnusigur
ÍR byrjaði leikinn stórkostlega og mátti sjá á liðinu að þeir voru staðráðnir í að svara fyrir slæmt tap á móti Gróttu í seinustu umferð.

Umfjöllun og viðtöl: FH - KA 31-31 | Allt á suðupunkti í Krikanum
FH og KA skildu jöfn 31-31 þegar liðin mættust í Kaplakrika í sjöundu umferð Olísdeildar karla í handbolta . KA jafnaði metin úr umdeildu vítakasti þegar leiktíminn var liðinn og allt gjörsamlega á suðupunkti í Krikanum.

Umfjöllun og viðtöl: Þór - Fram 19-22 | Mikilvæg stig Fram
Fram vann góðan sigur á Þór norðan heiða í kvöld. Fyrri hálfleikur var jafn og skiptust liðin á að skora. Sóknaleikur beggja liða var slappur og voru liðin að gera klaufaleg mistök.

Björgvin: Hálf súrrealískt að vera upp á hóteli að horfa á leik með sínu liði
Björgvin Páll Gústavsson, markmaður Hauka í handbolta var að vonum sáttur með sigur sinna manna þegar Haukar unnu Aftureldingu 24-30 í Varmá í kvöld. Björgvin sem spilaði ekki síðasta leik með liðinu vegna þess að hann var í sóttkví eftir HM, var fegin að vera mættur aftur.

Dramatískt jafntefli í Eyjum
ÍBV og Grótta gerðu jafntefli er liðin mættust í Vestmannaeyjum í Olís deild karla í dag. Lokatölur urðu 32-32 jafntefli en Grótta var 17-15 yfir í hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Haukar 24-30 | Haukar á toppnum
Haukar unnu góðan sigur á Aftureldingu, er liðin mættust í 7. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Haukar sem voru tveimur mörku undir þegar flautað var til hálfleiks unnu leikinn 24-30.

Fyrsti leikur Selfyssinga í 125 daga: Síðastir liðanna til að spila
Þegar Selfyssingar léku síðast leik í Olís deild karla þá voru enn 84 dagar til jóla. Selfyssingar komast loksins út á gólfið í kvöld.

Dagskráin í dag: Stórleikir í Mosfellsbæ og að Hlíðarenda ásamt spænska körfuboltanum
Þrjár beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag. Tvær úr Olís-deild karla í handbolta og ein úr spænska körfuboltanum. Um er að ræða enga smá leiki í Olís-deildinni.